Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 46
34 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Nostalgía er ákaf-
lega merkilegt fyr-
irbæri. Hún getur
verið afturhvarf til
þess tíma þegar
okkur leið vel en
jafnframt verið
flótti til þess tíma-
bils þegar við vor-
um í öruggu um-
hverfi. Nostalgía er þó fyrst og
fremst persónubundið ástand.
Á vinnustaðnum í gær skapaðist
hins vegar mjög sérstök stemning.
Varð einhver múgsefjun. Nostalg-
íufílingur meðal ákveðins aldurs-
hóps. Ástæðan var Duran Duran
tónleikarnir um kvöldið. „Best of“
geisladisk var skellt á og einhverjir
rauluðu með. Með útsýni til þess að
drepa, Villtir Sveinar og Geymdu
bæn ómuðu um allt. Einhverjir
rauluðu með.
Ég var á bleiutímabilinu þegar
Duran urðu vinsælir og var rétt
farinn að fíla eitthvað annað en
Brúðubílinn þegar tímabil þeirra
rann sitt skeið. Fann engu að síður
til samkenndar með þessum sam-
starfsmönnum mínum. Þegar ég
heyri lög á borð við Step it up með
Stereo Mc’s eru viðbrögð mín þau
sömu.
Undir sönglinu varð mér hugsað
til Týndu kynslóðar Bjartmars
Gunnlaugssonar. Í stað „Manstu
eftir John, Manstu eftir Paul, réttu
mér albúmið,“ kæmi. „Manstu eftir
Simon, manstu eftir Roger, réttu
mér I – Podinn.“
Nostalgíutrippið smitaði út frá
sér og fljótlega var farið að ræða
um allt aðra hluti sem verður þó að
telja til þessa fyrirbæris. Einhver
sagðist hafa verið að horfa á Miami
Vice og minntist þess að Don John-
son hefði verið svalur. Honum brá
því heldur betur í brún þegar hon-
um varð ljóst að svo hafði ekki ver-
ið. Philip Michael Thomas hefði þar
að auki verið leiðinlegur.
Þegar deginum var loks að ljúka
stefndi í óefni. Einhverjir voru
farnir að dansa og spennan var orð-
in rafmögnuð. Það styttist enda
óðum í eina mestu nostalgíu trú-
arathöfn sem farið hefur fram hér
á landi. Tónleikana sem á morgun
yrðu enn ein nostalgíuminningin
fyrir þennan ágæta aldurshóp.
STUÐ MILLI STRÍÐA
FREYR GÍGJA GUNNARSSON VELTIR FYRIR SÉR NOSTALGÍUNNI
Villtir sveinar og geymd bæn
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Útsalan byrjar í
dag, föstudaginn
1 júlí
H Æ Ð A S M Á R A O G G R A F A R V O G I
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Jæja þá hefur Þorgeir
kennari keypt miðann í
síðustu förina.
Það er erfitt að lýsa Þor-
geiri kennara en þau orð
sem koma upp í hugann...
„Harður og ákveðinn,
strangur og með sterka
réttlætiskennd, hvass og
þröngsýnn.... eehh.....“
Já! Miðað við
öll stærð-
fræðiprófin!
Rólegur,
rólegur....
Klukkan er
fjögur! Ég verð
að vakna!
Ég svaf
yfir mig!
Bíddu, nei...
það er júlí.
Það er ekki hægt
að sofa yfir sig í
sumarfríinu.
....sagði illa
upplýsti ung-
lingurinn.
Vélmennahundur??! Er ég þá
orðinn ónauðsynlegur? Já, hann
lítur út eins og hundur og hagar
sér eins og einn slíkur...
En hefur hann hjarta hundsins?
Hefur hann sál hundsins?
Býr hann yfir ást hundsins??
Á hann
nokkuð
snýtibréf?
Ekki hreyfa
þig pabbi!
Það er
kónguló á
þér!
Þú verður að passa þig,
kóngulær geta meitt
mann.