Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Jæja, þá eru samtök samkyn-hneigðra í San Fransiskó búin að
fara í sína árlegu prýðisgöngu – en
ef einhverjir setja svip á bæinn eru
það einmitt meðlimir þessara sam-
taka. Án þeirra væri þessi fallega
borg óttalega uppaleg. Hér ganga
menn gjarnan í jakkafötum með
bindi, eru allir í merkjum, búa á
réttum stöðum og keyra rétta tegund
af bílum, vinna sextán til átján tíma
á dag, búa einir í stúdíóíbúðum árum
og áratugum saman – til að hanga á
framabrautinni eins og hundur á
roði.
ÞAÐ ER gaman að hitta fólk eins
og trompetleikarann og vin minn
sem gengur undir nafninu Marla, er
nýgiftur fimmtu konunni sem hann
elskar út af lífinu, er leigubílstjóri
til að eiga fyrir vatni í grautinn, var
árum saman í lögreglunni, þar áður í
hernum – og gengur alltaf um í kjól-
um og kvendrögtum, með neglur
lakkaðar og mikinn andlitsfarða.
Heldur mest upp á bleikan varalit og
bleikt naglalakk. Á mikið af skart-
gripum og hleður ávallt of miklu af
þeim utan á sig. Getur sagt synd-
samlega skemmtilegar sögur tímun-
um saman.
ÞAÐ VAR ekki lítil tilhlökkun að
eiga þess kost að fylgjast með
„Pride Parade“ í San Fransiskó, en
þær göngur eru annálaðar fyrir
skrautlega búninga og vagna, dynj-
andi tónlist, mikið fjör og mikið
gaman, fullkomin karnivalstemmn-
ing. En vei, ó vei, þetta árið var
gangan alger bolaganga. Það voru
allir í bolum.
VEÐRIÐ VAR grátt svona framan
af, en eftir hádegi birti til og hlýn-
aði. Samt birtust engir fallegir bún-
ingar. Þeir sem voru ekki í bolum
voru í engu. Þarna gengu rosknir
karlar um á krumpnum dillanum
sem þeir veifuðu framan í alla sem
framhjá gengu og fengu kikk út úr
því að leyfa fólki að mynda sig.
ÉG SKIL þetta ekki. Í Bandaríkjun-
um mega konur ekki bera brjóstin á
ströndinni, en karlar mega dingla
dillanum framan í börn í miðborg-
inni. Ég ansa því ekki að það hafi
verið í tilefni dagsins. Það eru engin
tengsl á milli samkynhneigðra og
þess hóps fólks sem haldið er sýni-
áráttu.
FORLÖGUNUM sé lof fyrir næð-
inginn á Íslandi. Enginn vill fá
kuldabólgu í dillann. Gay Pride get-
ur þess vegna haldið reisn sinni þar.
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Pr‡›isgangan