Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 44
1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR32 Golfkort KB banka er fullgilt kreditkort sem veitir kylfingum fjölmörg frí›indi sem tengjast golfi og getur flannig spara› fleim umtalsver›ar fjárhæ›ir. Allir geta sótt um Golfkort, hvort sem fleir eru í vi›skiptum vi› KB banka e›a ekki, á golfkort.is, í síma 444 7000 e›a næsta útibúi KB banka. HAGKVÆMUR KOSTUR FYRIR GOLFARA GOLFKORT KB BANKA FH-ingar s‡ndu litla meistaratakta á heimavelli sínum í gær en ger›u fla› sem flurfti til a› vinna sigur á Fram. FH er enn me› fullt hús stiga eftir níu umfer›ir. FH sigraði á seiglunni Edda og Úlfar valin best í Landsbankadeild kvenna FÓTBOLTI Edda Garðarsdóttir, sem leikur með liði Breiðabliks, var í gær valin besti leikmaður fyrstu sjö umferða Landsbankadeildar kvenna. Þjálfari hennar, Úlfar Hinriksson, var kosinn besti þjálf- arinn. Edda Garðarsdóttir hefur verið kjölfestan í liði Breiðabliks það sem af er Íslandsmótinu, en félagið er með fullt hús stiga að fyrri umferð lokinni. „Ég bjóst nú ekki við því að vera kosin best. En við höfum spilað vel og náð að ein- beita okkur að einum leik í einu, sem er mikilvægt í svona stuttu móti.“ Edda gekk til liðs við Breiða- blik frá KR í vetur og segist ekki sjá eftir því núna. „Ég hafði leikið með KR síðan ég var lítil stelpa, þannig að þetta var svolítið erfitt til að byrja með. Þetta er skemmtilegur hópur hjá Breiða- bliki og auðvelt að komast inn í hann.“ Mótið er aðeins hálfnað Úlfar Hinriksson, þjálfari Breiðabliks, segir velgengnina í sumar ekki hafa komið sér á óvart. „Það er búið að vinna að því hörðum höndum að koma Breiða- bliki aftur í fremstu röð, og það eru margir þættir sem skapað hafa þennan ágæta árangur í fyrri umferðinni. Það voru fengnar hingað stelpur sem eru góðir knattspyrnumenn, auk þess sem ungu stelpurnar eru árinu eldri en í fyrra og hafa þroskast mikið sem leikmenn á þessu eina ári. Umgjörðin í kringum kvenna- knattspyrnuna hjá Breiðabliki er sú besta á íslandi, og það hefur mikið að segja ef félög ætla sér að ná árangri.“ Val á liði fyrstu sjö umferð- anna kom ekki á óvart, en liðið var skipað leikmönnum frá Breiða- bliki, Val, ÍBV og KR. Fimm leik- menn liðsins fengu fullt hús stiga í valinu, en það voru Þóra Helga- dóttir og Edda Garðarsdóttir úr Breiðabliki, Laufey Ólafsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val og Hólmfríður Magnúsdóttir hjá ÍBV. - mh SÚ BESTA Edda Garðarsdóttir úr Breiðabliki tekur hér við viðurkenningu úr hendi Geirs Þorsteinssonar fyrir að hafa verið besti leikmaður fyrri umferðar Landsbanka- deildar kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN LIÐ FYRRI UMFERÐAR: Þóra Björg Helgadóttir Breiðablik Ásta Árnadóttir Valur Erna Björk Sigurðardóttir Breiðablik Pála Marie Einarsdóttir Valur Edda Garðarsdóttir Breiðablik Greta Mjöll Samúelsdóttir Breiðablik Hólmfríður Magnúsdóttir ÍBV Laufey Ólafsdóttir Valur Hrefna Jóhannesdóttir KR Margrét Lára Viðarsdóttir Valur Hnefaleikarinn Mike Tyson: Ekki dau›ur úr öllum æ›um HNEFALEIKAR Umboðsmaður hnefa- leikarans Mikes Tyson, sem ný- lega hét því að stíga aldrei fæti inn í hringinn aftur, hefur sagt frá því að hann sé að undirbúa sér- staka mótaröð þar sem fyrrum stórstjörnur í þungavigtinni munu leiða saman hesta sína. Jeff Fenech, hinn ástralski um- boðsmaður Tysons, sér fram á að kappinn verði að berjast meira til að bjarga sér frá gjaldþroti og hefur í huga að setja á fót nokkra fjögurra lotna bardaga, þar sem fallnar stjörnur eins og Riddick Bowe og Evander Holyfield eru nefndar til sögunnar sem hugsan- legir andstæðingar Tysons. „Þó Tyson hafi ekki lengur það sem til þarf í stóra tíu lotna bardaga er hann enn fílhraustur og sannur meistari,“ sagði Fenech. -bb Fyrri umferð Íslandsmótsins lokið hjá konunum: ætluðu að gera út um leikinn er þeir fengu dæmda vítaspyrnu á 53. mínútu er Kristján Hauksson braut á Allan Borgvardt. Tommy Nielsen tók vítið en Gunnar Sig- urðsson varði slaka spyrnu hans. Ekki fyrsta vítið sem Gunnar ver í sumar enda klárlega vítabani mótsins til þessa. Þess í stað jöfnuðu Framarar með góðri sókn en Þórhallur Dan Jóhannesson átti góða rispu upp vinstri kantinn og gaf beint á koll- inn á Ríkharði Daðasyni sem skor- aði gott mark. Eftir það færðist talsverð barátta í leikinn en svo fór að FH-ingar náðu að sigla fram úr á lokamínútum leiksins með tveimur mörkum. Þetta var langt í frá besti leik- ur FH í sumar en þeir gerðu það sem þurfti. Liðið virtist fremur kraftlaust framan af en hætti aldrei að spila sinn bolta og upp- skar eftir því í leikslok. Framarar reyndu hvað þeir gátu en sprungu einfaldlega á limminu á lokakafla leiksins. „FH er með hrikalega sterkt lið en mér fannst þeir ekkert betri en við í dag. Við vorum að gera betur en í undanförnum leikjum, vorum að berjast og þeir áttu í vandræð- um með okkur. Hinsvegar refsa þeir fyrir hver einustu mistök og við gerðum þrjú í dag. Það þarf ekki mörg stig til að rífa sig frá botninum og það er bara skemmti- leg barátta framundan,” sagði Þórhallur Dan eftir leik. Auðun Helgason skoraði annan leikinn í röð og var ánægður með stigin þrjú. „Fullkomin horn- spyrna frá Óla og ég náði að klára. Ég er ánægður með þessa þraut- seigju í okkur. Við erum ekkert að spila neitt alltof vel og einbeiting- in var ekki í fullu lagi. Við héldum þó áfram að skapa og náðum þremur stigum. Þetta var því góð- ur sigur á frekar slökum degi. Framararnir voru erfiðir en við höldum áfram á beinu brautinni og vonandi klárum við þetta mót sem fyrst,“ sagði Auðun. -esá, egm *MAÐUR LEIKSINS FH 4–3–3 Daði 7 Freyr 6 Auðun 7 T. Nielsen 6 Guðmundur 7 Heimir 6 Ásgeir 6 (79. Baldur –) Davíð Þór 5 Ólafur Páll 6 Borgvardt 7 (89. Ármann Smári –) Atli Viðar 5 (68. Hermann –) FRAM 4–5–1 *Gunnar S. 7 Gunnar Þór 5 Þórhallur 7 Kristján 5 Eggert 6 (59. Nörholt 5) Viðar 6 Ingvar 5 H. Matthiesen 5 (75. Kristófer –) Ívar 6 Víðir 5 (68. Andri Steinn 5) Ríkharður 7 3-1 Kaplakriki, áhorf: 2210 Egill M. Markússon (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–9 (10–5) Varin skot Daði 4 – Gunnar 7 Horn 1–4 Aukaspyrnur fengnar 12–14 Rangstöður 5–2 1–0 Auðun Helgason (31.) 1–1 Ríkharður Daðason (66.) 2–1 Allan Borgvardt (76.) 3–1 Ólafur Páll Snorrason (84.) FH Fram FÓTBOLTI Leikur FH og Fram fór mjög rólega af stað og var fyrsta mark FH einnig fyrsta skot þeirra að marki. Atli Viðar Björnsson fór reyndar illa að ráði sínu á 17. mín- útu eftir að hafa komist einn inn fyrir vörn Fram. Hann hefði átt að skjóta sjálfur en gaf þess í stað boltann á Ólaf Pál Snorrason sem var vissulega í góðu færi en rang- stæður. Framarar áttu einnig sín færi og voru síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik. Markaskorari FH, Auðun Helgason, var reyndar nærri því að skora sjálfsmark stuttu eftir eigið mark en slapp með skrekk- inn. Það leit út fyrir að FH-ingar TVÖ MÖRK Í TVEIMUR LEIKJUM Auðun Helgason skoraði fyrsta mark FH í gær og eins og sjá má var honum vel fagnað af liðsfélögum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.