Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 16
16 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Heilsuverndarstöðin við Barón-
stíg telst til merkari og glæsi-
legri húsa borgarinnar. Bygging
þess hófst 1949 og var vígt 1957.
Einhver starfsemi hófst í húsinu
árið 1953. Einar Sveinsson og
Gunnar H. Ólafsson eru arki-
tektar þess og flokkast það til
síðfúnkís-húsa. Margar kynslóð-
ir borgarbúa hafa sótt þangað
heilsugæslu og aðra þjónustu á
sviði heilsuverndar og ber fjöldi
fólks sterkar taugar til hússins.
Heilsuverndarstöðin er í
sameiginlegri eigu ríkis og
borgar sem nú hafa afráðið að
rýma húsið og selja. Áformin
leggjast misvel í fólk og hefur
til að mynda Ólafur F. Magnús-
son borgarfulltrúi gagnrýnt að
heilsuverndin skuli flutt af Bar-
ónstígnum.
Fleiri eru þeirrar skoðunnar
eða telja í öllu falli að áfram
skulið hlúð að heilsu í húsinu
glæsta.
Aðrar hugmyndir eru nefnd-
ar hér, til dæmis hótel, leikhús
og bókasafn. Kannski er ráð að
hræra þessu saman í einn graut
og koma á fót menningartengdu
heilsuhóteli! bjorn@frettabladid.is
„Það er ekki spurning, ég mun lesa
hana,“ segir Guðrún Ögmundsdóttir
þingmaður þegar hún er spurð að því
hvort hún hafi áhuga á að lesa ævi-
sögu Jóns Ólafssonar. Einar Kárason
rithöfundur vinnur að bókinni þessa
dagana og hefur rætt við á hundrað
manns vegna hennar.
„Jón er á svipuðum aldri og ég þannig
að hann mun tala mikið um minn
samtíma, tíma sem ég er alin upp í. Ég
veit líka að Einar er örugglega mjög
laginn að ná upp úr honum hlutum
sem aðrir myndu ekki ná,“ segir Guð-
rún, sem er ekki viss um að leyndar-
mál komi upp úr kafinu en hins vegar
hafi Jón örugglega frá mörgu að segja.
Þá líst Guðrúnu mjög vel á ævisögurit-
arann. „Mér líst bara mjög vel á þá
báða,“ segir hún og telur Jón ekki of
ungan til að láta rita ævisögu sína.
„Eflaust er þetta ekki ævisaga í þeim
skilningi heldur ákveðin þroska- og
reynslusaga,” segir Guðrún, sem efast
ekki um að bókin verði vinsæl.
Guðrún hefur gaman af því að lesa
samtímasögur og les ævisögur til jafns
við aðrar bókmenntir enda segist hún
alæta á bækur. Hún reynir að lesa tals-
vert og alltaf áður en hún fer að sofa.
GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR
Jón hefur frá
mörgu a› segja
ÆVISAGA JÓNS ÓLAFSSONAR:
SJÓNARHÓLL
Útlitið var dökkt þegar við vöknuð-
um í gærmorgun. Það rættist þó úr
um leið og við hnýttum á okkur
gönguskóna og veðrið var ágætt til
göngu.
Við vöknuðum klukkan sjö í gær
eins og alla morgna og eftir hefð-
bundin morgunverk var gítarinn tek-
inn upp. Við byrjum nefnilega alla
daga á að spila og syngja til að
blása okkur liðsandann í brjóst.
Á leið okkar í gær hjólaði Eggert
Skúlason fram úr okkur en hann er
að safna áheitum til styrktar Hjarta-
heillum. Með honum í för var Hildur
Vala söngkona sem er gömul bekkj-
arsystir Bjarka. Urðu með þeim fagn-
aðarfundir og ekki spillti fyrir þegar
hún tók fyrir okkur lagið. Stundin
náði þó hámarki þegar Hildur Vala
smellti kossi á Bjarka, sem vitaskuld
varð upp með sér og sveif það sem
eftir var göngunnar.
Hildur Vala ætlar að hitta okkur aftur
seinna og labba með okkur einhvern
spöl.
Í dag munum við hitta Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra í Skaftafelli.
Þar verða líka krakkar í Ný-Ung sem er
ungliðahreyfing Sjálfsbjargar. Ætlunin
er að taka út aðgengi í þjóðgarðinum
í Skaftafelli fyrir fólk með fötlun. Það
verður spennandi að sjá hvernig garð-
urinn er í stakk búinn að taka á móti
fólki með fötlun en það er einmitt
helsti tilgangur göngu okkar að vekja
athygli á málefnum fólks með fötlun.
Góðar kveðjur, gönguhrólfarnir.
Hildur Vala smellir kossi
HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI
nær og fjær
„Vi› höfum fla› sem
reglu a› tjá okkur ekki
um mál af flessu tagi.“
PÁLL GUNNAR PÁLSSON, FORSTJÓRI
FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS, Í FRÉTTABLAÐ-
INU.
„Ég ætla a› fara í sól-
ba› á morgun í svört-
um sandi flegar fla›
rignir.“
NICK RHODES, HLJÓMBORÐSLEIKARI
DURAN DURAN, Í MORGUNBLAÐINU.
OR‹RÉTT„ “
EITT SÍMANÚMER
UM LAND ALLT
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
HÓTEL
„Ég sé fyrir mér að þarna geti orðið
lúxushótel í framtíðinni,“ segir Guð-
mundur Sighvatsson, skólastjóri Aust-
urbæjarskóla sem stendur
handan Barónstígsins og svo
að segja gnæfir yfir Heilsu-
verndarstöðinni. Hann tekur
raunar fram að það sé ekki
hans heitasta ósk að þar
verði hótel. „Þetta er
óskaplega fallegt hús og
þarf að skipa virðulegan
sess í borgarlífinu. Það
snertir þá sem það muna og
þekkja.“
Guðmundur telur að húsið sé
illa farið og á því þurfi að
gera margvíslegar lagfæringar.
Telur hann brýnt að í þær
verði ráðist hið fyrsta. Dekra
þurfi við húsið.
„Þar sem ríki og borg eru nú
ekki kunn af að fara vel með
húsin sín væri kannski
heppilegast að það færi í
einkaeign. Þá er tryggt að
því verði haldið vel við.“
Guðmundur segir að
hótel í húsinu gæti orðið glæsilegt og
nefnir að anddyri þess sé virðulegt og
ekki síður stiginn sem liggur upp á efri
hæðir. „En ef ekki hótel þá dettur mér
helst í hug starfsemi sem tengist
heilsu, menningum eða listum. Húsið
er allt eitt listaverk.“
Menningartengt heilsuhótel
á Heilsuverndarstö›inni
Það stendur til að loka
Heilsuverndarstöðinni við
Barónstíg og selja húsið
hæstbjóðanda. Viðmælend-
um Fréttablaðsins datt helst
í hug að hótel, leikhús,
bókasafn eða heilsuhæli
gætu verið þar til húsa í
framtíðinni.
GUÐMUNDUR
SIGHVATSSON
ÁFRAM HEILSUVERND
„Án þess að ég vilji kallast afturhalds-
seggur þá vildi ég helst hafa heilsu-
verndarstöðina áfram á sínum stað,“
segir Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor
í vöruhönnun við
Listaháskóla Íslands.
„Mér finnst gott að
koma þangað, allt
öðruvísi og betra en
að koma á aðrar
læknastofur.“
Sigríði þykir húsið
fallegt og segir það
hluta af borgarlífinu
að koma þangað,
eins og í önnur fal-
leg hús í borginni.“
Mér finnst gott að
versla á Laugavegi
og mér finnst gott
að fara í mæðraskoðun á Barónstíg-
inn,“ segir hún og hlær.
Þurfi núverandi starfsemi að víkja vill
Sigríður helst að einhver önnur opin-
ber starfsemi verði í húsinu og stingur
upp á bókasafni eða skóla. Ef nauð-
synlegt er að selja það gæti hún hugs-
að sér einkarekna heilbrigðisþjónustu.
„Annars er mögulegt að þarna verði
hótel í framtíðinni eða höfuðstöðvar
einhvers stórfyrirtækisins. En um leið
lokast byggingin almenningi og það
þætti mér miður,“ segir Sigríður, sem
vonar innilega að engum detti í hug að
rífa húsið og byggja nýtt.
HEILSUHÆLI
„Ég held að húsið sé tilvalið fyrir
heilsuhæli upp á rússneskan máta,“
segir Margrét Rósa Einarsdóttir, hús-
ráðandi í Iðnó. Hún sér
fyrir sér að fólk komi
til lengri eða skemmri
dvalar og hefur nokk-
uð mótaðar hugmynd-
ir um hvernig starf-
semin eigi að vera.
„Þetta á að vera alls
herjar heilsubæli þar
sem fólk getur
hreinsað sig and-
lega og líkamlega
og fengið bót
flestra meina. Þarna á hvorki að vera
sími né sjónvarp, fólk á að fá algjöran
frið frá umheiminum.“
Margrét Rósa leggur áherslu á að eng-
inn lúxus eigi að viðgangast á heilsu-
hælinu, þar eigi starfsfólkið að vinna í
hvítum einkennisklæðnaði og gestir og
sjúklingar klæðast gráum, þægilegum
jogginggöllum. „Ég vil engin
smartheit,“ segir hún.
Vísir að slíku heilsuhæli er nú þegar
rekinn í Hveragerði og segir Margrét
Rósa Heilsuhælið við Barónstíg eiga að
vera í svipuðum dúr en ganga lengra í
flestum efnum.
Hún þekkir húsið nokkuð vel, og segir
það margslungið en nauðsynlegt sé að
koma því í upprunalegt horf.
LEIKHÚS
„Mér finnst upplagt að koma á fót leik-
húsi í húsi Heilsuverndarstöðvarinnar,“
segir Bragi Þór Jósefsson, ljósmyndari
hjá Fróða. „Umhverfið er ævintýralegt
og gæti orðið enn ævintýralegra ef
vatni væri hleypt undir brýrnar og turn-
inn lýstur upp.“
Bragi segist ekki vita hvort hugmyndin
sé raunhæf, það er hvort
mögulegt sé að breyta
húsinu í leikhús, enda
hefur hann ekki kynnt
sér innviði þess að
marki.
„Og ég hef heldur ekki
hugmynd um hvort
þetta sé raunhæft út frá
rekstrarlegum forsendum
og ætla mér ekki bera
neina ábyrgð á þessu.“
Bragi segist ekki sjá
fyrir sér einhverja
tiltekna tegund
leikhúss við Bar-
ónstíginn, það sé
fyrst og fremst
möguleikinn á ævintýralegri umgjörð-
inni sem hann sjái í húsinu.
Og ef hugmyndin þykir algjörlega út úr
kú dettur honum í hug að breyta hús-
næðinu í skóla. „Þarna gæti verið
ósköp sætur og skemmtilegur barna-
skóli sem hægt væri að tengja við
Austurbæjarskóla með einhverjum
hætti.“
SIGRÍÐUR SIG-
URJÓNSDÓTTIR
HEILSUVERNDARSTÖÐIN VIÐ BARÓNSTÍG Hér hefur verið hlúð að heilsu borgarbúa í rúma hálfa öld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
MARGRÉT RÓSA
EINARSDÓTTIR
BRAGI ÞÓR JÓS-
EFSSON
LESIÐ Í REGNINU Áhorfandi á Wim-
bledon-mótinu í tennis skýlir sér undir
regnhlíf og gluggar í dagblað.