Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 62
50 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Eins og Fréttablaðiðgreindi frá í gær
voru þrjár mismun-
andi forsíður á síðasta
tölublaði Grapevine.
Á forsíðunum brugðu
Spaugstofumenn á
leik sem Davíð Odds-
son, Halldór
Ásgrímsson og Jó-
hanna Sigurðardótt-
ir. Eitthvað virðist sem
dreifingin hafi verið ójöfn því blöðin
með Halldóri og Jóhönnu ruku út en
það sem skartaði Erni Árnasyni í gervi
Davíðs gerði það ekki. Ósagt skal látið
hvort eftirspurn eftir
blöðunum endurspegli
vinsældir þeirra sem
túlkaðir eru á forsíð-
unni en þess má geta
að Davíð Oddsson hefur
um árabil verið einn
vinsælasti stjórn-
málamaður landsins.
Lárétt: 2 æra, 6 smáorð, 8 tíndi, 9 gugg-
in, 11 í röð, 12 giskum, 14 flanar, 16
utan, 17 örn, 18 verkur, 20 tónn, 21 tréí-
lát.
Lóðrétt: 1 garð, 2 belti, 4 steintegund, 5
svei, 7 fréttir, 10 lifir í sjó, 13 dvelja, 15
umrót, 16 stefna, 19 gerist í hnefaleikum
Lausn.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
GLÆNÝR
VILTUR LAX
Stór humar - medium humar
Starfsmaður bókaforlagsins Bjarts
í hálfan annan áratug, Ásta S. Guð-
bjartsdóttir, er ekki til. Danskir
rannsóknarblaðamenn frá Politiken
komust að þessu þegar þeir voru
hér á landi nýlega. Ásta sinnti ýms-
um mikilvægum störfum fyrir
Bjart, þar á meðal sá hún um að
þýða metsölubókina Da Vinci lykill-
inn yfir á íslensku. Hinum glöggu
blaðamönnum tóks að fá for-
leggjara Bjarts, Snæbjörn Arn-
grímsson, til að viðurkenna að Ásta
sé aðeins sambland af skáldskap og
ljósmynd af ónefndri austur-evr-
ópskri konu. Ásta er þó enn starfs-
maður bókaforlagsins og sinnir ein-
hverjum verkefnum í framtíðinni.
En hver var tilgangur sköpunar
Ástu? „Þetta er ákveðin aðferð til að
fjölga starfsmönnum þegar þörf er
á því,“ segir Jón Karl Helgason hjá
Bjarti. Svo var Ásta látin sinna þeim
störfum sem aðrir starfsmenn
bókaforlagsins vildu síður sinna
eins og umsjón með innheimtu.
Smám saman fóru verkefni hennar
að verða bitastæðari og fékkst hún
við þýðingar og hönnun á bókakáp-
um. „Henni var nú bara farið að
leiðast innheimtan,“ segir Jón Karl.
Þar sem nafn Ástu hefur sterka
vísun í söguna af Bjarti í Sumarhús-
um er ljóst að starfsmenn Bjarts
hafi ekki ætlað að láta tilvistarleysi
hennar vera hernaðarleyndarmál.
„Þetta var nú frekar svona óopin-
bert leyndarmál. Það kemur manni
stundum á óvart hverju fólki trúir,“
segir Jón Karl. ■
Skáldsagnapersóna afhjúpu›
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Hans Markús Hafsteinsson
Í New York
Brasilía
Tónlistarmaðurinn Mugison spil-
ar á Hróarskelduhátíðinni í Dan-
mörku í dag. Með honum uppi á
sviði verður Pétur Ben sem spil-
aði undir í laginu Murr Murr á
síðustu plötu Mugison,
Mugimama is this Mon-
keymusic? Einnig er líklegt að
Rúna, kærasta Mugison, veiti
honum hjálparhönd. „Ég er
drulluspenntur,“ segir Mugison
um tónleikana. „Ég hef aldrei
komið þangað nema á lestarstöð-
ina einu sinni. Ég er kominn með
nýjar græjur og þarf ekkert að
koma við tölvuna uppi á sviði.
Það verður fróðlegt að sjá hvern-
ig þetta kemur út.“
Mugison hitaði nýverið upp
fyrir Mike Patton úr hljómsveit-
inni Fantomas á tónleikum sveit-
arinnar í London. Eins og kunnugt
er hitaði Patton upp fyrir Korn í
Laugardalshöllinni síðasta sumar
auk þess sem hann aðstoðaði
Björk á síðustu plötu hennar.
„Fantomas er flottasta live-band
sem ég hef séð síðan ég sá Quire-
boys hér um árið. Ég trúði bara
ekki mínum eigin eyrum,“ segir
Mugison. „Á tíu mínútum með
Fantomas kemur jafnmikið af
hugmyndum og ég fæ allan feril-
inn ef ég miða við eina plötu á ári
í 40 ár. Þvílíkt hugmyndaflug.“
Mugison hefur einnig gert út-
gáfusamnig við plötufyrirtæki
Patton, Ipecac, um að dreifa
Mugimama is this Monkeymusic í
Bandaríkjunum. „Það eru mjög
góð tíðindi. Ég hef verið einn og
óstuddur í Bandaríkjunum,“ segir
hann. Plötunni verður að öllum
líkindum dreift í Bandaríkjunum í
október. Á meðal fleiri listamanna
sem eru á samning hjá Ipecac eru
The Melvins, Tomahawk og að
sjálfsögðu Fantomas.
Mugison hefur í nógu að snú-
ast um þessar mundir því sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er hann að semja tónlist við
kvikmynd Baltasars Kormáks, A
Little Trip To Heaven. Myndin
verður væntanlega frumsýnd í
haust og skartar þeim Forest
Whittaker og Juliu Stiles í aðal-
hlutverkum. Mugison er ekki
ókunnur kvikmyndatónlist því
hann samdi tónlistina við
Niceland eftir Friðrik Þór Frið-
riksson og þótti takast ákaflega
vel upp. freyr@frettabladid.is
MUGISON Tónlistarmaðurinn Mugison hefur í nógu að snúast um þessar mundir.
NÓG AÐ GERA HJÁ MUGISON: GERÐI ÚTGÁFUSAMNING Í BANDARÍKJUNUM
Drulluspenntur með nýjar
græjur á Hróarskeldu
...fær tónleikahaldarinn Kári
Sturluson fyrir að uppfylla lang-
þráðan draum Íslendinga og
flytja Duran Duran til landsins.
HRÓSIÐ
Ég sat á kaffihúsi um daginn þegar ég
heyrði „óvart“ fólkið á næsta borði
segja: Jesús Pétur, borgin hefur verið
hertekin af erlendum ferðamönnum og
maður getur ekki stígið fæti neins stað-
ar án þess að það séu alla vega svona
tíu útlendingar á svæðinu. Eins og öll
sumur í Reykjavík hefur hingað borist
okkur heill hellingur af nýjum andlitum
til að krydda tilveruna. Margir bölva því
að þekkja engan á djamminu og að
staðirnir „okkar“ hafi breyst í heila
heimsálfu af einskismannslöndum.
Margir sjá þennan nýja hóp tíma-
bundinna Íslendinga sem tækifæri til
að brydda upp á einhverju nýju.
Þannig var það í það minnsta með
eina vinkonu mína.
Þannig var mál með vexti að hún var
að skemmta sér á einum af stöðum
borgarinnar sem er þekktur fyrir að
skemmta frekar „fansí“ fólki. Þar hitti
hún Ameríkana sem var nýkominn til
landsins. Hún hugsaði sér gott til glóð-
arinnar þegar hann bauð henni í drykk
og eyddi bróðurparti kvöldsins á spjalli
við hann. Eitt leiddi af öðru og þau
kunnu svona líka vel við hvort annað
og nóttin endaði uppi á hótelherbergi
hjá honum. Hún, sem hafði lítinn sem
engan áhuga á að komast í fast sam-
band, hafði ekki miklar áhyggjur af
þessu og hélt hún hefði fundið hina
fullkomnu leið til að deita menn án
þess að þurfa að eiga við þá frekari
sambandsplön. Svo daginn eftir þegar
þau voru að borða morgunmatinn
spurði hún hann hversu lengi hann ætl-
aði að vera á landinu. Þá fékk hún
heldur betur gusuna í andlitið. Hann
var ekkert á leiðinni burt því hann var
nýbúinn að ráða sig í vinnu og skrifa
undir árs starfssamning við fyrirtæki hér
í borg. Hann væri hins vegar að leita sér
að íbúð og einhverjum til að kynna sig
fyrir borginni og fólkinu. Hún var ekki
lengi að láta sig hverfa.
Með þessa dæmisögu ofarlega í huga
eigum við að njóta þess að hafa önnur
andlit að sjá og kynnast, en passa okk-
ur þó að ganga hægt um gleðinnar dyr!
REYKJAVÍKURNÆTUR
HARPA PÉTURSDÓTTIR HARPA PÉTURSDÓTTIR LAGÐI VIÐ HLUSTIR
Íslenskt já takk?
Lárétt:2sómi,6ef, 8las,9grá, 11 rs, 12
getum,14ganar, 16án,17ara,18tak,
20as,21trog.
Lóðrétt:1vegg,3ól,4marmara,5iss,7
fregnar, 10áta,13una,15rask,16átt,
19ko.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Snörp skoðanaskipti um fréttamatvikuritsins Hér & nú hafa verið
plássfrek í þjóðmálaumræðunni alla
vikuna en hasarinn jókst
til mikilla muna á
mánudagskvöld þegar
málið var rætt bæði í Ís-
landi í dag á Stöð 2 og
Kastljósinu í Sjónvarp-
inu. Eiríkur Jónsson,
blaðamaður Hér &
nú, mætti í báða
þættina og skýrði
sína hlið mála fyrst fyrir Hallgrími
Thorsteinssyni, útvarpsmanni á Tal-
stöðinni, og þáttastjórnandanum
Þórhalli Gunnarssyni. Hann brun-
aði svo beint niður í Sjónvarp þar
sem hann mætti Helgu Völu Helga-
dóttur, stallsystur Hallgríms á Tal-
stöðinni, í Kastljósinu undir veikri
stjórn Eyrúnar Magnúsdóttur og
Sigurðar Valgeirssonar. Það var
hart tekist á í þættinum sem vakti
mikla athygli. Upptökur af Kastljós-
inu má nálgast á vef Ríkisútvarpsins,
www.ruv.is, en seinni part þriðju-
dagsins var ekki nokkur
leið að horfa á umrædd-
an þátt á netinu og skýr-
ingin hlýtur að liggja í því
að aðsókn fólks í þáttinn
hafi borið netþjón
RÚV ofurliði.
ÁSTA S. GUÐBJARTSDÓTTIR Í bók Hall-
dórs Laxness, Sjálfsætt Fólk, er fjallað um
Bjart í Sumarhúsum en hann hét fullu
nafni Guðbjartur Jónsson. Dóttir hans hét
Ásta Sóllilja og því sést gegnsæ vísun
nafnsins greinilega.