Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 42
FÓTBOLTI Valsmenn byrjuðu betur í
leiknum og náðu að komast aftur
fyrir bakverði Þróttara nokkrum
sinnum á fyrsta kortérinu, en mið-
verðir Þróttara náðu að koma
boltanum frá markinu í tæka tíð.
Eftir nokkuð góða pressu Valsara,
sem alltaf byrja leiki sína af mikl-
um krafti, náðu Þróttarar að koma
sér inn í leikinn með ágætum sam-
leik, en náðu ekki að klára sínar
sóknir með góðum skotum en það
hefur verið þeirra helsti galli í
sumar.
Á tuttugustu og sjöundu mín-
útu dró til tíðinda en þá fékk Bald-
ur Aðalsteinsson boltann á hægri
kantinum og sendi hann rakleiðis
inn á teiginn, þar sem Garðar
Gunnlaugsson skallaði boltann
fallega í markið. Vel að verki stað-
ið hjá Valsmönnum. Eftir þetta
sóttu Þróttarar nokkuð en náðu,
sem fyrr, ekki að nýta færin.
Þannig fékk Josef Maruniak al-
gjört dauðafæri inn á markteig en
tókst á ótrúlegan hátt að klúðra
því. Valsmenn hófu seinni hálf-
leikinn líkt og þann fyrri, af mikl-
um krafti, og voru í tvígang hárs-
breidd frá þvi að koma boltanum í
netið.
Þróttarar gerðu breytingu á
liði sínu eftir fimmtán mínútna
leik og við það hresstust þeir.
Valsmenn lágu aftarlega á vellin-
um og vörðust ágætlega, fyrirsjá-
anlegum sóknum Þróttara. Hálf-
dán Gíslason skoraði síðan annað
mark Valsmanna með fallegu
skoti fyrir utan teig en hann hafði
skömmu áður komið inn á sem
varamaður. Þróttarar spiluðu
ágætlega úti á vellinum en náðu
ekki að skapa sér nægilega mörg
marktækifæri. Valsmenn skoruðu
tvö falleg mörk en sóttu ekki mik-
ið í leiknum að öðru leyti. Þeir
vörðust fimlega og börðust vel
fyrir hver annan og náðu að inn-
byrða góðan sigur með vinnusemi
og baráttu, eitthvað sem Þróttara
skorti.
Halldór Arnar Hilmisson var
bestur í liði Þróttara, en þeir
verða að ná meiri hraða og snerpu
í framlínu sína ef þeir ætla ekki
hreinlega að falla. Það hlýtur að
vera svekkjandi að
spila vel út á vellin-
um leik eftir leik,
en ná ekki að nýta
sér það nægilega
vel.
Valsliðið sótti og
varðist sem ein
heild, með Akur-
eyringinn Atla
Svein Þórarinsson
og Húsvíkinginn
Baldur Aðalsteins-
son sem bestu leik-
menn.
Páll Einarsson,
fyrirliði Þróttara
var svekktur í leikslok. „Það er
alltaf leiðinlegt að tapa, en við
getum sjálfum okkur um kennt.
Við verðum að skora ef við ætlum
okkur að ná í stig og náðum við
ekki að gera í dag.“
Willum Þór Þórsson, þjálfari
Vals, var eins og gefur að skilja
ánægður með sína menn. „Þrótt-
arar spiluðu vel í dag, en við vörð-
umst þeim ágætlega. Það er erfitt
að leika gegn liði sem heldur bolt-
anum jafn vel og Þróttur en okkur
tókst að knýja fram sigur með
vinnusemi og baráttu.“ -mh, -bb
1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
> Við hrósum ...
... liði Breiðabliks í Landsbankadeild
kvenna í knattspyrnu. Auk þess að vera
taplaust á toppi deildarinnar gnæfði
liðið yfir önnur þegar þeir
sem þóttu skara fram úr í
fyrri umferð deildarinnar
voru verðlaunaðir í gær.
Blikar áttu besta
leikmanninn, besta
þjálfarann og fimm leikmenn
í úrvalsliði fyrri
umferðarinnar.
Heyrst hefur ...
... að Tony Pulis, nýrekinn knattspyrnustjóri
Stoke City, hafi samið við framherjann
Mamady Sidibe án vitundar íslensku
stjórnarmannanna. Þess má geta að ensku
stjórnarmennirnir komu af fjöllum þegar
þeir heyrðu að Pulis hefði verið rekinn af
íslensku stjórnarmönnunum. Já,
starfsaðferðirnar í Stoke eru um margt
frábrugðnar því sem eðlilegt þykir.
sport@frettabladid.is
30
> Við dáumst að ...
.... metnaðinum í
forráðamönnum félagsins
Neftchi Baku, andstæð-
inga FH-inga í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu.
Alla leið frá Azerbaídsjan
voru mættir tveir
njósnarar frá félaginu til
að horfa á leik FH og Fram
í gær.
Valsmenn eru enn í skottinu á toppli›i FH eftir gó›an sigur á frískum firótturum í Laugardalnum í gær.
Valsmenn voru fló nokku› frá sínu besta en fla› var fyrst og fremst gó› barátta li›sins sem gaf stigin flrjú.
Baráttan skilaði Valsmönnum sigri
ÍBV hefur fengið á sig 18 mörk í fyrstu átta umferðum
Landsbankadeildarinnar. Markvörður liðsins, Birkir
Kristinsson, hefur aldrei fengið jafnmörg mörk á sig í
byrjun Íslandsmóts, hann fékk þó á sig 16 mörk í
fyrstu átta umferðunum hjá Fram 1995 en það ár féll
liðið úr deildinni. „Það er bara nokkuð ljóst að við
erum ekki nægilega öflugir. Leikmannahópur okkar er
mjög þunnt skipaður um þessar mundir og þetta
verður erfitt. Það er liðið í heild sinni sem á að
vinna í því að halda markinu hreinu og okkur
hefur aðeins tekist það í einum leik það sem af
er.“ sagði Birkir Kristinsson, sem fékk 20 mörk á
sig allt tímabilið í fyrra.
„Ég tel þetta vera hæfa einstaklinga sem eru þarna.
Við höfum lítið spilað allir saman og vonandi fer
þetta að smella. Það er alveg ljóst í hvað stefnir hjá
okkur. Við verðum bara að reyna að berjast fyrir
hverju einasta stigi sem býðst og svo kemur í ljós
hverju það skilar okkur í lokin.“
Þegar Birkir var beðinn um að nefna bestu vörn sem hann
hafi spilað með valdi hann á endanum vörn Fram 1988.
Eftir 13 fyrstu umferðirnar það ár var hann búinn að fá á
sig tvö mörk og liðið stóð að sjálfsögðu uppi sem Íslands-
meistari. Einnig kom upp í huga hans sú vörn sem hann var
með fyrir framan sig á Skaganum.
Birkir er orðinn fertugur og ætlar að leggja
hanskana á hilluna eftir tímabilið, hann telur
þó aldurinn ekki vera ástæðuna fyrir fjölda
marka sem hann hefur á sig fengið. „Liðið
sýnir miklu meiri baráttu í heimaleikjum og
verður að ná þeirri grimmd yfir í útileikina.
Við erum með þannig lið að við verðum að
eiga toppleik til að vinna. Hugarfarið og leik-
ur okkar þarf að breytast til þess að við
náum að bjarga okkur frá falli. Það væri
erfitt fyrir þetta lið að falla þar sem það hef-
ur verið ákveðin stöðnun hérna og færri efni-
legri leikmenn koma upp en áður.“
MARKVÖRÐURINN BIRKIR KRISTINSSON: HEFUR ALDREI BYRJAÐ JAFN ILLA
Ljóst a› li›i› er ekki nægilega öflugt
LA
N
DS
BA
N
K
AD
EI
LD
IN
Líf og fjör þegar Keflavík og Grindavík gerðu jafntefli í gærkvöldi:
Bítlabænum, 1-1. Þrátt fyrir
þyngslin var fjör í leiknum og
bæði lið gerðu sitt besta til að
spila sóknarbolta.
Grindavík braut ísinn með
marki Kekic en heimamenn létu
það ekki á sig fá og Hörður jafn-
aði metin með laglegu marki
skömmu síðar. Fyrstu 20 mínútur
leiksins voru mjög fjörugar en
leikmenn slökuðu aðeins á klónni
eftir mörkin. Helst komu færi
þegar leikmenn misstu boltann
klaufalega í bleytunni og fékk
Grindavík ótrúlegt færi á 43. mín-
útu sem þeim tókst ekki að nýta.
Gestirnir urðu síðan fyrir
áfalli rétt fyrir hlé þegar Eyþór
Atli fékk sitt annað gula og þar
með það rauða. Eyþór hefði hæg-
lega getað forðast bæði spjöldin
en klaufalegar athafnir hans
verðskulduðu lítið annað en rautt
spjald. Síðari hálfleikur var
kaflaskiptur. Keflavík réð ferð-
inni framan af en eftir að Sinisa
Kekic færði sig aftur á miðjuna
tók Grindavík öll völd á vellinum,
sótti grimmt og komst nálægt því
að skora.
Síðustu mínútur leiksins voru
aftur á móti eign heimamanna
enda voru Grindvíkingar þá
manni færri og gáfu allt til þess
að halda í stigið. Stigið fengu þeir
þótt Keflavík hafi verið klaufar
undir lokin enda fengu þeir víti
og nokkur ákjósanleg færi. Það
var sama hvað þeir reyndu, allt
varði Savic og sérstaklega var
vítaspyrnan vel varin hjá honum.
Þegar upp var staðið var sann-
gjarnt að liðin skildu skipta með
sér stigunum í þessum fjöruga
leik í vætunni í Keflavík.
Gestirnir fá sérstakt hrós fyr-
ir mikinn karakter sem getur
hæglega bjargað þeim frá falli í
sumar. -hbg
*MAÐUR LEIKSINS
KEFLAV. 4–4–2
Ómar 7
Guðjón 5
Johansson 6
Baldur 6
Milicevic 7
Gestur 4
(88. Bjarni –)
Hólmar 6
Jónas 6
Hörður 4
Guðmundur 3
Stefán Örn 6
(76. Gunnar –)
GRINDAV. 4–3–3
*Savic 8
Eyþór Atli 4
Jack 6
Óli Stefán 6
Óðinn 6
Eysteinn 4
Niestroj 6
McShane 5
Óskar Örn 7
Magnús Sverrir 3
(57. Ahandour 7)
Kekic 7
0-2
Laugard., áhorf: 741 Eyjólfur Kristinsson (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 10–4 (3–3)
Varin skot Fjalar 1 – Kjartan 3
Horn 6–1
Aukaspyrnur fengnar 17–15
Rangstöður 2–3
0–1 Garðar Gunnlaugsson (27.)
0–2 Hálfdán Gíslason (85.)
Þróttur Valur
Savic fór á kostum í li›i Grindavíkur
FYRSTA MARKINU FAGNAÐ. Valsmennirnir Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Sigurbjörn Hreið-
arsson og Bjarni Ólafur Eiríksson sjást hér fagna Garðari Gunnlaugssyni sem kom Val yfir í
leiknum gegn Þrótti í gær FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
*MAÐUR LEIKSINS
ÞRÓTTUR 3–5–2
Fjalar 5
Ólafur 5
Jens 5
(62. Erlingur 5)
Eysteinn 4
Daníel 5
Páll 6
Haukur 5
Halldór 7
Freyr 5
Þórarinn 4
(62. Ingvi 5)
Maruniak 5
(72. Sævar 5)
VALUR 4–4–2
Kjartan 6
Bjarni 6
*Grétar 7
Atli Sveinn 8
Steinþór 6
Matthías 6
Stefán Helgi 6
Sigurbjörn 5
(70. Sigurður 5)
Baldur 7
Guðmundur 6
(70. Kristinn 5)
Garðar 7
(82. Hálfdán –)
1-1
Keflavík, áhorf: 740 Kristinn Jakobsson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 16–8 (8–2)
Varin skot Ómar 1 – Savic 6
Horn 4–2
Aukaspyrnur fengnar 10–13
Rangstöður 1–3
0–1 Sinisa Kekic (16.)
1–1 Hörður Sveinsson (20.)
Keflavík Grindavík
FÓTBOLTI Völlurinn í Keflavík var
blautur og þungur þegar Keflavík
og Grindavík gerðu jafntefli í