Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 52
> Plata vikunnar ... TEAM SLEEP: Team Sleep „Söngvari Defto- nes kemur skemmtilega á óvart með hliðar- verkefni sínu Team Sleep. Þessi nýja sveit er að gera mun betri hluti en Deftones í dag, vonandi heldur hann sig hérna megin skógarins.“ - BÖS 40 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR Hljómsveitin The Fugees steig óvænt upp á svið á BET-verðlaun- unum á dögunum og tók lagið eft- ir áralanga pásu. Sveitin spil- aði þrjá slagara; Ready or Not, Fu-Gee-La og Killing Me Softly With His Song við frábærar undirtektir áheyr- enda. „Bara það að sjá kollega sína standa upp fyrir sér var frábært,“ sagði Pras eftir tónleikana. „Við höfum ver- ið í pásu í dálítinn tíma þannig að þetta var alveg stórkostlegt.“ Með Pras uppi á sviðinu voru Wyclef Jean og Lauryn Hill. Öll hafa þau gefið út sólóplötur á undanförnum árum með ágætum árangri. Að sögn Pras er von á nýrri plötu frá The Fu- gees á næsta ári. Um er að ræða langþráð framhald The Score sem kom út 1996, sem er mest selda hipp hopp- plata allra tíma. ■ The Fugees tók lagi› tonlist@frettabladid.is Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI KK og Maggi Eiríks: Fleiri ferðalög, Davíð Smári: You Do Something To Me, Efterklang: Tripper, Jamiroquai: Dynamite, Röyksopp: The Understand- ing, Rob Thomas: Something to be og Sumarpartý. > KK o g M ag gi > Jam iroquai Hljómsveitin Kimono kemur fram á tón- leikunum Áttalíf sem haldnir verða í Hljómskálagarðinum í kvöld. Alex Mac- neil, söngvari og gítarleikari sveitarinnar, sagðist vera mjög spenntur fyrir tónleik- unum enda umhverfið mjög ólíkt því sem Kimono hefur verið að spila fyrir. „Við erum ekki vön að spila á svona stórum tónleikum,“ segir hann. Alex er greinilega búinn að kynna sér hlutverk Live 8 en markmið tónleikana er meðal annars að láta átta ríkustu þjóð- ir heims fella niður skuldir fá- tækustu ríkja heims. „Ég styð þetta heilshugar,“ segir hann. Aðspurður af hverju hann haldi að poppstjörnur á borð við Bob Geldoff og Bono séu að einbeita sér að málefnum sem þessum segir hann að þeir vilji eflaust nota frægð sína til þess að koma einhverju jákvæðu til leiðar. „Frekar heldur en að enda á forsíðum slúður- blaðanna,“ bætir hann við. Það hefur verið í nógu að snúast hjá hljómsveitinni því hún er nýkomin úr hljóðveri. „Diskurinn er farinn út og við vonumst til að hún sé væntanleg á næstu vikum. Maður veit samt aldrei,“ segir Alex. Þá áætlar sveitin að flytja föggur sínar til Berlínar þar sem hún skipuleggur viðreisn um Evrópu. „Við stefnum á að vera komnir til lands- ins áður en Airwaves byrjar.“ Því er allt brjálað að gera hjá Alex og félög- um hans í Kimono. > Popptextinn ... „We’d go down to the river and into the river we’d dive. Oh, down to the river we’d ride.“ Stjórinn sjálfur, Bruce Springsteen, tók meðal annars lagið sígilda The River á óvæntum tónleikum í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar fyrir skömmu. Vill n‡ja heim- ildarmynd Popparinn Michael Jackson er um þessar mundir staddur í París þar sem hann ræðir við kvik- myndagerðarmenn um gerð nýrrar heimild- armyndar um sig. Síðasta heimildar- myndin sem gerð var um Jackson var upp- hafið að málshöfðun gegn honum eftir að hann viðurkenndi í myndinni að hafa deilt rúmi sín- um með börnum. Jackson vann dómsmálið á dögunum og reynir nú allt hvað hann getur til að bjarga æru sinni og tónlistarferl- inum. Mun heimildarmyndin vera fyrsta skrefið í þá áttina. ■ WYCLEF Wyclef Jean og félagar í The Fugees ætla að gefa út nýja plötu á næsta ári. Foo Fighters: In Your Honor „Tvöföld plata Foo Fighters hefur tvöfalt eðli. Rokkplatan er frekar litlaus og slöpp, en sú óraf- magnaða lifandi og mjög aðlaðandi. Grohl hefði átt að skipta þessari útgáfu í tvennt, því saman er ekki hægt annað en að gefa henni miðlungs- einkunn.“ BÖS Hot Damn!: The Big’n Nasty Groove’O Mutha „Smári og Jenni ná virkilega vel saman og sanna það enn frekar, rétt eins og The White Stripes hafa gert, að dúettar geta hiklaust spjarað sig í rokkinu þrátt fyrir mikinn einfaldleika.“ FB Bubbi: Ást „Ást er nokkurs konar uppgjör Bubba við ástarmál sín. Þrjú lög skara fram úr en meiri Barða-stemn- ingu vantar í afganginn.“ FB British Sea Power: Open Sea- son „Það er ekki mikil von í nýjustu von Breta. Ef þetta er afli breska sjóveldisins, þá legg ég til að við hendum af stað öðru þorskastríði, því við myndum valta yfir þá.“ BÖS Coldplay: X&Y „Coldplay kaupa sér nýtt hljómborð og gera enn eina „örugga“ plötu. Full af grípandi lögum sem við eigum öll bókað eftir að fá hundleið á áður en útvarpsstöðvarnar hætta að spila þau.“ BÖS Birgir Örn Steinarsson Freyr Bjarnason [ SMS ] UM NÝJUSTU PLÖTURNAR Audioslave í hljó›ver Rokksveitin Audiosla- ve ætlar að fara í hljóðver um leið og tónleikaferð hennar um Evrópu lýkur. Eft- ir hljóðverstímana heldur sveitin aftur í tónleikaferð um Bandaríkin. Önnur plata Audioslave er nýkomin út en það aftrar henni ekki frá því að drífa sig í hljóðver á nýjan leik. „Okkur langar til að hafa óskýrari línur á milli æfinga, upp- takna og tónleikaferða,“ sagði Tom Morello, gítarleikari Audi- oslave. „Það er mjög gott mál að semja og taka upp tónlist jafnt og þétt. Við viljum halda okkur ferskum. Allir hafa spilað vel á þessari tónleikaferð og við viljum taka þessa stemmningu með okk- ur, semja nokkur lög, taka upp og fara síðan í tónleikaferð til Banda- ríkjanna. Þess má geta að Audi- oslave spilar á Live 8 tónleikum sem verða haldnir í Berlín á morgun. ■ Hita upp fyrir goðsögn Strákarnir í rappsveitinni For- gotten Lores vöktu mikla og verð- skuldaða athygli íslenskra sem er- lendra blaðamanna á Iceland Airwaves hátíðinni í fyrra. Þeir eru núna í sjöunda himni því þeir voru valdir ásamt Hjálmum og Hæstu Hendinni til þess að hita upp fyrir sjálfan Snoop Doggy Dogg. „Þetta er náttúrulega bara frábært. Hann er algjört „legend“ í okkar augum og þetta er örugg- lega einn sá mesti heiður sem okk- ur hefur hlotnast hingað til,“ seg- ir Baldvin Þór Magnússon eða Class B eins og hann kallar sig. Ný plata í bígerð Þeir félagar gáfu út breiðskífuna Týnda Hlekkinn árið 2003 og fengu góða dóma fyrir enda var þar prýðisgott hiphop á ferðinni. „Við erum búnir að vera mikið að vinna í hliðarverkefnum upp á síðkastið. Ég er búinn að vera úti í Finnlandi og Addi í Amsterdam og það er erfitt að semja nýja plötu þegar meðlimirnir eru ekki á ein- um og sama staðnum. Benni er að gera mix disk, Addi og Birkir eru að gera saman EP plötu sem heit- ir 7, 9, 13. Diddi Fel og Stjáni úr Afkvæmum Guðanna eru að gera plötu saman og svo hef ég verið að vinna að tveimur litlum plötum. Núna erum við hins vegar að byrja að semja nýja plötu,“ segir Baddi og ættu þær fréttir að gleðja hina fjölmörgu aðdáendur sveitarinnar. Ferli tónlistarinnar Aðspurður hvort tónlistin þeirra hafi breyst að einhverju leyti frá seinustu plötu segir hann: „Þetta er alveg beint framhald af síðustu plötu en svona með tímanum þá höfum við farið að fínpússa að- ferðirnar sem við notum til að semja betur og pælum meira í lagasmíðunum saman. Þegar við semjum lög þá er ferlið oftast þannig að Diddi, Addi og Benni gera takta í sitt hvoru lagi og við fáum svo hugmyndir út frá þeim og sjáum hvaða möguleika takt- arnir hafa. Svo semjum við Birkir og Diddi texta sem okkur finnst passa við og sjáum svo til hversu góð lögin eru,“ segir hann og bæt- ir við að ennþá séu engin lög tilbú- in fyrir plötuna. „Aðallega erum við komnir með grunna að lögum, takta sem við viljum nota og hug- myndir.“ Skrifum eins og við hugsum Hægt er að greina alls konar áhrif úr tónlist strákanna og greinilegt að þeir hlusta ekki einungis á hiphop. „Við erum allir voðalega misjafnir þegar kemur að tónlist. Auðvitað hlustum við eitthvað á sömu hlutina en Benni til dæmis er alltaf að spila á skemmtistöðum og þarf að vera með sína partýmúsík á hreinu og Diddi er líka pródúser svo hann er með allt öðruvísi við- mið og hlustar eftir öðru.“ Textar Forgotten Lores fjalla mikið um daglegt líf auk þess sem þeir innihalda oft pólitískar ádeil- ur. Það vekur athygli að þeir fara ekki sömu leið eins og margir rapparar hið ytra sem semja níð- yrði um aðra rappara eða tala nið- ur til kvenna í textum sínum. „Ég held að ástæðan sé sú að við skrif- um bara eins og við hugsum. Við hugsum ekki á þennan hátt og það kemur fram í textunum okkar, við erum náttúrulega bara svo góðir strákar,“ segir hann og hlær. hilda@frettabladid.is AUDIOSLAVE Hljómsveitin Audioslave ætlar ekkert að slappa af á milli tónleikaferða. [ TOPP 10 ] X-IÐ 977 - 29. JÚNÍ LEAVES The Spell COLDPLAY Speed of Sound BECK Girl PAPA ROACH Take Me QUEENS OF THE STONE AGE In My Head CYNIC GURU Drugs USED/MY CHEMICAL ROMANCE Under Pressure KILLERS Smile Like You Mean It GREEN DAY Holiday RASS Burt með kvótann 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Kimono flytur til Berlínar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.