Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 32
Cafe Oliver er veitingastaður,
kaffihús og skemmtistaður á
Laugaveginum. Staðurinn hef-
ur heldur betur slegið í gegn.
„Við opnuðum í lok maí og þetta
hefur gengið ótrúlega vel, eiginlega
betur en við þorðum að vona,“ segir
Gunnar Már Þráinsson, rekstrar-
stjóri Cafe Oliver á Laugaveginum.
Hann segir að alltaf sé nóg að gera
og um helgar sé gjörsamlega troðið
út úr dyrum.
Cafe Oliver er í senn kaffihús,
veitingastaður og skemmtistaður.
„Við erum eiginlega með allan
pakkann. Hér er róleg kaffi-
húsastemning á daginn en á kvöldin
er mikið fjör. Við erum með léttan
mat sem kostar ósköp lítið og svo
geturðu líka komið hingað og fengið
bestu nautasteik sem þú hefur
smakkað,“ segir Gunnar. „Við bjóð-
um meira að segja upp á morgun-
mat á morgnana. Staðurinn er á
tveimur hæðum og neðri hæðin er
reyklaus. Það er því hægt að
skreppa hingað í morgunmat fyrir
vinnu án þess að anga af reykinga-
lykt allan daginn,“ segir Gunnar og
bendir á að fólk sé ánægt með að
geta setið í reyklausu umhverfi.
„Það er líka frábært að koma
hingað þegar veðrið er gott. Hér á
bak við er frábært útisvæði og þar
getur fólk setið allan daginn og
notið blíðunnar. Við bjóðum meira
að segja upp á sólarvörn fyrir þá
sem það vilja,“ segir Gunnar.
Um helgina verður mikið um að
vera á Cafe Oliver. Tommy White
spilar í kvöld ásamt leynigesti og
annað kvöld mæta plötusnúðarnir
JBK og Daði á svæðið. „Við reynum
að hafa alltaf eitthvað um að vera.
Sammi í Jagúar spilar fönk hér öll
fimmtudagskvöld og á sunnudögum
spilar hljómsveitin Club Member
fyrir gesti.“ ■
Bílastæði
Vissara er að taka með sér nógu mikið klink í stöðumæli
og bílastæðahús þegar farið er í miðbæinn svo enginn
þurfi að hafa áhyggjur á meðan rölt er um miðborgina.[ ]
Laugavegi 66 • 101 Reykjavík • Sími: 552 2040 • mona@internet.is
Útsalan
er hafin
Holtasmári 1 • Sími 517 8500
Silkitré og silkiblóm
Útsalan
hafin
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin)
Sími 551 2040
Ólafur hefur starfað í Dúni og fiðri frá því hann var fjórtán ára. Hann er ánægður með lífið í miðbænum og segir að umferðin niður
Laugaveginn komi sér vel fyrir þá sem standa í verslunarrekstri.
Fyrsta laugardag hvers mánaðar
hafa kaupmenn í miðbænum
verslanir sínar opnar lengur en
annars tíðkast. Á morgun verður
opið til klukkan 17 í verslunum
miðborgarinnar og víða verða
spennandi tilboð. Sumarútsölurn-
ar eru að fara af stað í mörgum
verslunum og því ætti að vera
hægt að gera góð kaup.
Oft er mikið um að vera í mið-
bænum um helgar og gaman að
spóka sig um. Veðurspáin er líka
ágæt og þar af leiðandi tilvalið að
rölta um bæinn í blíðunni. ■
Á löngum laugardegi er ávallt margt um
manninn í miðbænum.
Sumarútsölurnar að hefjast
Á morgun er langur laugardagur í miðbænum og verslanir
verða opnar til klukkan 17.
Um helgar er margt um manninn á Cafe Oliver og fjör langt fram eftir nóttu en á daginn
er kaffihúsastemningin við völd.
Arnar Gíslason og Gunnar Már Þráinsson
eru rekstrarstjórar Cafe Oliver. Þeir eru
ánægðir með viðtökurnar sem staðurinn
hefur fengið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Fjölskyldufyrirtækið sameinað á ný
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Róleg stemning á daginn og fjör á kvöldin
Dún- og fiðurhreinsunin á
Vatnsstíg og sérverslunin Dún
og fiður á Laugavegi hafa nú
gengið í eina sæng.
Ólafur Benediktsson á og rekur
Dún og fiður á Laugaveginum
ásamt konu sinni og dóttur. Gömlu
versluninni á Vatnsstígnum hefur
nú verið lokað og verið er að flytja
síðustu tækin upp á Laugaveg enda
hafa verslanirnar tvær nú verið
sameinaðar.
„Foreldrar mínir stofnuðu Dún-
og fiðurhreinsunina árið 1959 og
fyrstu árin var hún til húsa í bílskúr
við Kirkjuteig. Þau byrjuðu fljót-
lega að selja sængur en á þessum
tíma var ekki farið að flytja æðar-
dún úr landi og nóg að gera í sæng-
urgerð. Þar sem sængur voru oft
heimatilbúnar þurfti líka oftar að
hreinsa þær og laga,“ segir Ólafur,
sem byrjaði að vinna við fjölskyldu-
fyrirtækið þegar hann var fjórtán
ára gamall. Hann tók sér frí frá
sængunum í kringum tvítugt og
lærði til rakara en hártíska bítla-
fársins varð þess valdandi að hann
hafði lítið að gera og sneri sér því að
sængunum á ný. Þá var fyrirtækið
flutt niður á Vatnsstíg, þar sem
Dún- og fiðurhreinsunin hefur verið
rekin til dagsins í dag.
„Árið 2001 seldu mamma og
pabbi okkur systkinunum fyrirtæk-
ið og fljótlega klauf ég mig út úr
rekstrinum og stofnaði mína eigin
verslun hér á Laugaveginum,“ segir
Ólafur, sem er ákaflega ánægður
með sameininguna. Hann er líka
ánægður með sig á Laugaveginum
og segir af og frá að verslun í mið-
bænum sé barn síns tíma.
Úrvalið í Dúni og fiðri er mikið
og verslunin öll hin notalegasta. Þar
má finna rúmteppi, púða, náttföt,
handklæði og sápur, að ógleymdum
sængunum, sem eru í öllum stærð-
um og gerðum. „Við erum með há-
gæðasængur hér og vinnum allt úr
úrvalsefnum. Við tökum líka við
sérpöntunum og veitum alhliða
þjónustu. Fólk áttar sig oft ekki á
því að það þarf að hreinsa sængur
og þvo en við það að vera þveginn á
tveggja til þriggja ára fresti verður
dúnninn eins og nýr,“ segir Ólafur
og bætir því að verðið sé einnig
gott. „Þessi búð hefur stundum
verið kölluð dýra búðin. Það er hins
vegar mikill misskilningur því hér
eru vörurnar ekkert dýrari en víða
annars staðar.“ ■
Dúnsokkar sem koma sér vel fyrir kalda
fætur.