Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 10
Í ÁTT TIL AUSTURS Shaukat Aziz, forsætis-
ráðherra Pakistans, veifar blaðamönnum
úr rútu á leið til indverska hluta Kasmírs-
héraðs.
10 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Ákært fyrir húsbrot og stórfelld eignaspjöll:
Bretinn mætti einn fyrir dóm
DÓMSMÁL Paul Geoffrey Gill, 33
ára gamall Breti, mætti einn til
þingfestingar máls á hendur
honum og tveimur Íslendingum,
Ólafi Páli Sigurðssyni og Örnu
Ösp Magnúsardóttur, í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Íslend-
ingarnir eru sagðir vera í mót-
mælatjaldi við Kárahnjúka.
Þremenningarnir sprautuðu
grænlituðu skyri á ráðstefnu-
gesti í lokuðum sal á hótel Nor-
dica í Reykjavík þriðjudaginn
14. júní. Þau eru kærð fyrir hús-
brot og stórfelld eignaspjöll, en
bóta upp á tæpar 2,9 milljónir
króna er krafist vegna skemmda
af skyrinu. Fólkið var að mót-
mæla meintum náttúruspjöllum
sem álver og meðfylgjandi
virkjanaframkvæmdir hafa í för
með sér, en ráðstefnan snerist
um áliðnað. Þar voru meðal ann-
arra saman komnir fulltrúar
Alcoa, Bechtel og Landsvirkjun-
ar.
Skyrvökvinn fór á fólk, en
einnig á veggi, gólfteppi, stóla
og aðra innanstokksmuni. Í
ákæru er tjónið metið á tæpar
2,3 milljónir króna, en innandyra
eyðilagðist IBM Thinkpad T41
fartölva, AG Neovo 17 tommu
tölvuskjár, IBM Thinkvision
snertiskjár, þrír hljóðnemar og
stórt sýningartjald. -óká
Húsleit lögreglu skilaði árangri:
Gæsluvar›hald vegna fíkniefna
LÖGREGLUMÁL Rúmlega fertugur
maður í Reykjavík hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald,
eftir að talsvert magn af fíkni-
efnum fannst heima hjá honum
við húsleit.
Lögreglan í Reykjavík hand-
tók manninn á þriðjudagskvöld
og við húsleit fundust fíkniefnin.
Þótti ljóst að magnið væri það
mikið að það gæti ekki einungis
verið ætlað til eigin nota. Engin
tæki né tól af þeim toga fundust í
fórum mannsins. Hann var í
haldi lögreglu aðfaranótt mið-
vikudags og var síðan úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald í tvær vikur
meðan rannsókn fer fram.
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn
yfir manninum var kveðinn upp í
fyrradag.
Hörður Jóhannesson yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík staðfesti fíkniefna-
fundinn og gæsluvarðhaldsúr-
skurðinn, en kvaðst ekki vilja
upplýsa hvaða efni hefðu fundist
hjá manninum né hve mikið
magn meðan málið væri í rann-
sóknarmeðferð.
Umræddur maður hefur áður
komið við sögu lögreglunnar
vegna fíkniefnamála.
- jss
Útsölur byrja rólega
Sumarútsölur hafa ví›a hafist fyrr en venja er til og telja kaupmenn a› fla›
útsk‡ri a› einhverju leyti hversu hægt flær fara af sta›. Algengt er a› afslættir
flessa fyrstu daga séu frá 30 til 50 prósent.
NEYTENDUR Sumarútsölurnar eru
nú víða hafnar í höfuðborginni og
víðar og eru kaupmenn almennt
sammála um að hægt sé að gera
svipuð kaup á þeim og í fyrra. Af-
sláttur er algengur frá 30 – 40 pró-
sentum og fer hækkandi eftir því
sem á líður. Mörgum finnst þó nóg
um að útsölutíminn skuli vera orð-
inn heill mánuður og telja það út-
skýra að hluta hversu útsölur fara
rólega af stað.
Meðal þeirra verslana þar sem
útsölur eru hafnar og Fréttablaðið
heimsótti í gær voru Hagkaup,
BT, Húsgagnahöllin, Esprit,
Accessorize og Útilíf. Var greini-
legt að margir á viðkomandi stöð-
um höfðu eingöngu komið til að
gera góð kaup á útsölunum en
flestir kaupmenn voru þó á því að
útsölurnar færu rólega af stað.
Tóku nokkrir viðskiptavinir undir
það og sögðust ekki hafa gert sér
grein fyrir að útsölurnar væru
byrjaðar fyrr en komið var á stað-
inn.
Ekki var meira af fólki í
Kringlunni þennan fyrsta dag út-
sölunnar en venja er en flestar
verslanir þar auglýsa góðan af-
slátt á vörum sínum. „Þetta er
fyrsti dagurinn og þetta fer ró-
lega af stað,“ sagði Ingibergur Jó-
hannsson, verslunarstjóri hjá Úti-
lífi í Kringlunni. „Þetta er stór
ferðahelgi og enginn hefur fengið
útborgað enn sem komið er. Það
verður forvitnilegt að sjá hvernig
gengur um helgina en mig grunar
að mörgum finnist þessi langi út-
sölutími verið kominn út í öfgar.
Útsalan er allan júlímánuð og fólk
hinkrar við enda algengt að verð
lækki þegar líða fer á útsölurn-
ar.“
Rósa Guðjónsdóttir, verslunar-
stjóri í Esprit, tók í sama streng.
„Þetta byrjar með ágætum hjá
mér en það eru færri á ferð en ég
hefði kannski búist við miðað við
útsölur hér sem almennt eru vel
sóttar. En þetta er fyrsti dagurinn
og kannski ekki mark á takandi
ennþá. Mér sýnist verð og af-
sláttur nú vera með svipuðu móti
og á síðasta ári og þær útsölur
voru almennt afar góðar þannig
að þetta lofar góðu fyrir við-
skiptavininn.“ albert@frettabladid.is
AF FJÖLLUM Mæðgurnar Halldóra og Sig-
ríður voru hissa á að útsölurnar væru
hafnar.
Halldóra og Sigríður:
VISSU EKKI AF ÚTSÖLUNNI
„Ég gerði mér nú ekki grein fyrir því að
útsölurnar væru hafnar og þetta kom
mér á óvart,“ sagði Halldóra Björnsdóttir
en hún var að versla í Útilífi í Kringlunni
ásamt dóttur sinni Sigríði Þóru Birgis-
dóttur.
Halldóra sagði koma sér á óvart að út-
sölur væru hafnar en það kæmi sér
engu síður vel. „Okkur vantaði góðan
léttan sumarjakka og komum hingað
með það í huga en ég hef ekkert kynnt
mér verðin hér á útsölunni. Mig grunar
að fólk almennt hafi nú ekki gert sér
grein fyrir að þær séu hafnar.“
GÓÐ ÚTSALA Fanney var sátt við þann af-
slátt á barnafötum sem í boði var á útsöl-
unni í Hagkaupum.
Fanney Hrafnkelsdóttir:
VANTAÐI BARNAFÖT
„Ég er fyrst og fremst að leita mér að
barnafötum hvers konar og mér líst
ágætlega á verðið hér á þessari útsölu,“
sagði Fanney Hrafnkelsdóttir, en hún var
á útsölu Hagkaupa í Skeifunni.
Hún sagðist almennt ekki sækja útsölur
sérstaklega nema hún þyrfti á einhverju
beinlínis að halda. „Útsalan hér er ágæt
og mér sýnist verðið svipað og í fyrra.“
Halldóra Brynjarsdóttir:
VERÐ ALMENNT GOTT
„Mig vantaði DVD spilara og ákvað að
koma og fá mér hann hér,“ sagði Hall-
dóra Brynjarsdóttir, en hún var að versla
á útsölu BT í Skeifunni síðdegis í gær.
Halldóra sagðist ekki hafa kynnt sér út-
söluverð þar almennt þar sem hún hafi
komið eftir ákveðnum hlut. „Mér líst vel
á það sem ég hef séð og verð er al-
mennt gott. Annars leita ég ekki sérstak-
lega uppi útsölur heldur fer á stúfana
þegar mig vantar eitthvað sérstakt og
hér er hægt að gera fín kaup.“
LÖGREGLUFRÉTTIR
SÖGULEGT LÁGMARK Í SJÚKRA-
FLUTNINGUM Mjög rólegt var hjá
flestum embættum lögreglunnar
aðfaranótt fimmtudags. Slökkvilið-
ið í Reykjavík sagði að fjöldi
sjúkraflutninga hlyti að hafa nálg-
ast sögulegt lágmark, og lögreglan
í Reykjavík tekur í sama streng. Að
sögn lögreglunnar á Höfn í Horna-
firði hringdi síminn ekki einu sinni
alla nóttina. Landsmenn búa sig nú
undir eina mestu ferðahelgi sum-
arsins og því miður ekki hægt að
búast við sömu rólegheitunum hjá
lögreglu komandi nætur.
SLETTUMÁLIÐ ÞINGFEST Rúmlega þrítugur Breti, að nafni Paul Geoffrey Gill, var einn
mættur í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær, þegar þingfest var mál Lögreglustjórans í Reykja-
vík á hendur honum og íslenskum karli og konu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÚTSÖLUR HAFNAR Í KRINGLUNNI Eins og sjá má var verslunarmiðstöðin frekar tómleg þrátt fyrir að kjarakaup byðust í flestum verslunum
á þessum fyrsta útsöludegi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
FÍKNIEFNAFUNDUR Fíkniefnamagn sem fannst hjá rúmlega fertugum Reykvíkingi þótti
meira en svo að það væri hugsað til eigin nota. Fíkniefnin á myndinni eru óviðkomandi
þessu tiltekna máli.
Heilbrigðisyfirvöld:
Bólusetningar
í mi›læga skrá
HEILBRIGÐISMÁL Miðlæg bólusetn-
ingarskrá er það sem koma skal, nái
tillögur stýrihóps á vegum sótt-
varnalæknis og heilbrigðisráðherra
fram að ganga.
Tilraunaverkefni sem verið hef-
ur í gangi hér á landi gerir ráð fyrir
að upplýsingar um bólusetningar
flytjist sjálfvirkt með rafrænum
hætti inn í miðlæga skrá. Einnig er
fyrirhugað að starfsmenn einstakra
heilbrigðisstofnana geti sótt upplýs-
ingar um bólusetningar einstak-
linga í grunninn með rafrænum
hætti. Miðlæg bólusetningarskrá er
þannig úr garði gerð að fyllsta ör-
yggis um persónuupplýsingar hinna
bólusettu skal gætt í samræmi við
lög um persónuvernd og meðferð
persónuupplýsinga, samkvæmt
upplýsingum frá helbrigðisráðu-
neytinu. ■
BÓULUSETNINGARSKRÁ Heilbrigðisyfirvöld
vilja koma upp miðlægum grunni sem
hefur að geyma allar bólusetningar fólks.