Fréttablaðið - 01.07.2005, Síða 24
Nýlega vakti ég athygli á því í út-
varpsviðtali að landbrot á austur-
og suðurströnd Viðeyjar er gífur-
legt og fer stöðugt vaxandi. Ástæð-
una tel ég vera hafnargerð og dýpk-
un, allt frá Elliðavogi að Laugar-
nestanga. Í framhaldi af þessum
ábendingum mínum ritaði Gestur
Gunnarsson tæknifræðingur grein
í Fréttablaðið þar sem hann segir
meðal annars: „Nú háttar svo til
þarna við Elliðavog að rekin hafa
verið niður stálþil, fyllt upp og
dýpkað, þannig að fjaran sem aldan
sveigði upp í er horfin og sunnan-
aldan því hærri úti á Viðeyjarsundi
en hún var áður. Ströndin mótaðist
af ríkjandi veðurfari og Kríusandur
var í jafnvægi við umhverfið áður
en hafnargerðin hófst. Hvað það er
nákvæmlega sem orsakar landrofið
er nokkuð sem Verkfræðistofa Sig-
urðar Thoroddsen þarf að upplýsa
og gera tillögur til úrbóta.“
Undir þessa athugasemd Gests
get ég heilshugar tekið. Hafnar-
mannvirkin hafa sýnilega raskað
jafnvægi á Sundunum. Hið sama
má segja um þá skammsýni að fylla
og eyðileggja Gufunesvoginn. Ald-
an, sem áður dó út á grunnum og
löngum voginum, fær nú mótstöðu
sem hrindir henni til baka á Viðey.
Gestur nefnir einnig dýpkun Sund-
anna sem ástæðu. Áður en farið var
í þessar miklu framkvæmdir, birt-
ist frétt um hvað til stæði og hefðu
skipulagsyfirvöld gefið leyfi sitt til
framkvæmdanna, því ljóst væri að
dýpkunin myndi engin áhrif hafa á
strönd Viðeyjar. Síðan hefur þó
komið í ljós að hin mikla dýpkun er
án efa hluti af ástæðunni. Þetta ætti
ekki að koma á óvart. Sandurinn
hefur þá náttúru að renna undan
hallanum. Hafnarbakkarnir eiga án
efa einnig sinn þátt í þessu máli
eins og Gestur bendir á.
Í áðurnefndu útvarpsviðtali
nefndi ég einnig að skipin, sem
verður að snúa í þrengslum Sund-
anna, bæði við komu og brottför, og
beita við það gífurlegu vélarafli, á
skut- og hliðarskrúfur, eiga trúlega
einnig sinn þátt í landbrotinu. Því
skrúfurnar hræra í botnlaginu eins
og þeytari í hrærivél.
Fréttablaðið leitaði álits Jóns
Þorvaldssonar á ummælum mínum.
Í blaðinu segir meðal annars: „Rök
Örlygs halda þó ekki vatni að mati
Jóns Þorvaldssonar, forstöðumanns
tæknideildar Faxaflóahafna. Hann
segir þetta hafa verið rannsakað
fyrir nokkrum árum og ekkert hafi
bent til þess að gröftur eða dýpkun
innsiglingarinnar og hafnarinnar
við Sundahöfn hafi valdið landrofi í
Viðey.“ Það sem á sér stað í Viðey
er venjubundinn ágangur sjávar og
ekkert annað. Besti samanburður-
inn er við Engey en þar hefur
einnig orðið töluverð breyting und-
anfarin ár þrátt fyrir að hún sé
fjarri skipahöfnum. Þau rök að um-
ferð stærri skipa raski ströndum
Viðeyjar eiga sér enga stoð.
Jón tekur Engey til samanburð-
ar við Viðey og ég sé ekki betur en
að með því styðji hann einmitt
kenningu mína hvað dýpkun varð-
ar. Ég hvet hann til þess að horfa
einstaka sinnum út um gluggana á
Hafnarskrifstofunum og fylgjast
með sanddæluskipunum þar sem
þau dögum saman eru nánast upp í
harða landi í Engey, dælandi upp
þúsundum tonna af sjávarefni.
Skyldi ekki mega tengja landrofið
þar „undanfarin ár“ við dæluskip-
in? Fróðlegt væri að fá nákvæmar
upplýsingar hjá Jóni um það hve
mörgum þúsundum tonna skipin
hafa dælt upp af botni Engeyjar-
sunds. Hvað „venjubundinn ágang
sjávar“ varðar þá vill svo til að ég
hefi fylgst með ströndum Viðeyjar í
marga áratugi og get fullyrt að sá
ágangur sem nú er að brjóta niður
bakkana á Kríusandi og austan
Þórsness er til þess að gera nýtil-
kominn.
Ábendingar mínar varðandi
þetta mál eru ekki settar fram til
þess að klekkja á einhverjum, held-
ur til þess að þeir sem þessum mál-
um ráða geri nauðsynlegar ráðstaf-
anir til varnar ströndum eyjarinn-
ar.
Að lokum vil ég beina því til
Sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur hvort þeir hafi hugað
að því hvað landfylling út frá Gufu-
nesi geti haft í för með sér fyrir
strendur Viðeyjar? Ekki aðeins
ströndina gegnt Gufunesi heldur
einnig alla norðurströnd Eyjarinn-
ar. Fram til þessa hefur hafaldan
dáið út á Grandanum innst í
Eiðsvognum og á fjörunum við
Fjósakletta. Er ekki hætt við því,
verði hin fyrirhugaða landfylling
milli Gufuness og Viðeyjar að veru-
leika, að landfyllingin og ramm-
byggileg Sundabrautin sendi haf-
ölduna til baka á austur- og norður-
strönd eyjarinnar, og þær fari að
láta undan ágangi sjávar? Væri
ekki rétt að huga betur að því hvort
landfyllingin eigi rétt á sér og hvort
Sundabrautin ætti ekki að vera á
brú milli Eiðis og Geldinganess svo
að aldan geti áfram dáið drottni sín-
um á Eiðsgrandanum undir brúnni
og á fjörunum við Fjósakletta? ■
1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR24
Landey›ingin í Vi›ey og Engey fer vaxandi
!
" !
#
!
"#$ % &'(") * +$,- (.
LEIÐRÉTTING
Rangt var farið með stöðu Þor-
bjargar Vigfúsdóttur í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur í frétt
blaðsins á fimmtudaginn. Hún
hefur undanfarin tvö ár átt þar
sæti sem aðalmaður.
UMRÆÐAN
LANDROF Í VIÐEY
ÖRLYGUR HÁLFDANARSON
FYRRUM BÓKAÚTGEFANDI
ROFABARÐ Á KRÍUSANDI Göngustígurinn sem lagður var eftir bökkunum fyrir nokkrum
árum er að falla fram af. Það glyttir í jarðvegsdúkinn undir torfunni ef vel er gáð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/Ö
R
LY
G
U
R
H
ÁL
FD
AN
AR
SO
N
AF NETINU
Svona svona
Í þessum [drauma]heimi borga útgerð-
armenn leyfisgjald til þeirra sem aldrei
hafa stundað útgerð, Blóðbankinn er í
dreifðri eignaraðild, Íslendingar borga
allra þjóða mest í þróunaraðstoð til er-
lendra harðstjóra, áttræðir menn eru
sóttir til saka grunaðir um sextíu ára
gömul ófyrnanleg kynferðisbrot, Banda-
ríkjastjórn fer offari í flestum málum, The
New York Times er marktæk heimild og
Al Gore er forseti. Sá sem vill skemmta
sér ærlega nær sér í Lesbókina, þar sem
póstmódernisti vikunnar sannar á ellefu
síðum að ekkert sé til og einskis virði,
væri það til.
andriki.is
Lausir endar
Fréttablaðið upplýsir að Jóhannes Páll II
muni á næstunni verða dýrðlingur. Búið
er að fá í gegn reglubreytingu og setja á
stofn nauðsynlegar undirbúningsnefndir.
Það eina sem karlinn á eftir að gera er
að framkvæma 1-2 kraftaverk, t.d. með
því að lækna krabbamein eða gefa
blindum sjón.
Sem sagt: allt það erfiða er búið, núna er
bara að ganga frá nokkrum lausum end-
um.
Stefán Pálsson – kaninka.net/stefan
Loksins einhver sem þorir
Í þjóðhátíðarræðu Halldórs Ásgrímsson-
ar, forsætisráðherra, boðaði hann endur-
skoðun stjórnsýslunnar og skyldi þeirri
endurskoðun hraðað. Eru það afar góð
tíðindi, bæði það að loksins sé kominn í
embætti forsætisráðherra sem þorir að
takast á við þetta löngu tímabæra verk-
efni og eins því að málsmeðferðin skuli
eiga að verða hröð, enda ekki gott fyrir
stjórnsýsluna og starfsfólk hennar að
búa of lengi við þá óvissu sem eðlilega
skapast við slíka endurskoðun.
Gestur Guðjónsson – timinn.is
Sögulegir staðir
Margir sögulegir staðir leynast í hverju
hverfi og gaman væri að vita hvar þessir
eru og hver saga þeirra er: Búkollulaut
„Enska húsið“, Farsóttarhúsið, Félagstún,
Ráðskonubás, Smjörshúsið, Snússa,
Taglið, Tilraunahúsið, Tíkarklettur, Sól-
vellir, Paradís, Snikkarabær, Tóbakshús-
ið, Trippadalur, Ungmennafélagshúsið,
Veðramót, Vínland, Þvottalaugamýri,
Framfarafélag Reykjavíkur, Grænmetis-
verslun ríkisins, og verslun Silla og Valda.
Sesselja Dagbjört Gunnarsdóttir –
frelsi.is