Fréttablaðið - 01.07.2005, Qupperneq 26
Módelið keypt burt
Magnús Þorsteinsson, eigandi Avion Group, lýsti
því þegar hann keypti Eimskipafélagið að flugrekst-
ur og skipaflutningar færu vel saman. Hann benti á
danska fyrirtækið AP Möller Mærsk því til staðfest-
ingar, en þetta stóra skipafélag hefði rekið
lággjaldaflugfélag samhliða. Tíðindi gær-
dagsins að Pálmi Haraldsson og Jó-
hannes Kristinsson hefðu keypt flug-
félagið af AP Möller Mærsk kipptu
fyrirmyndinni úr sambandi og mód-
elið ekki lengur fyrir hendi hjá
Mærskmönnum. Hitt er svo ann-
að að módelið getur auðvitað
verið jafn gott eftir sem áður, enda
Magnús og FL Group haft áhuga á að
eignast Eimskipafélagið. Hugsanlegt
er að Eimskipafélagið hafi einungis
millilent hjá Magnúsi, sem er kunnur að
flugáhuga en hefur ekki leikið sér jafn mikið
að bátum að því að kunnugt er.
Stressaðir miðlarar á Ströndum
Það er alltaf forvitnilegt að greina til hvaða mark-
hópa menn eru að reyna að ná í auglýsingum. Eitt
fyrsta merki vaxandi góðæris á Íslandi var þegar
lúxusbílar urðu áberandi á auglýsingaborðum á
heimasíðu Kauphallar Íslands. Allt hold er hey
og þegar efnisgæðin eru í húsi, þá fara
menn gjarnan að huga að gildum and-
ans. Á þessu hafa ferðamálafrömuðir á
Ströndum áttað sig og auglýsa nú
þessa paradís á síðu Kauphallarinnar.
Fyrir utan fagra náttúru er næsta ör-
uggt að menn detta út úr GSM-sam-
bandi víðast hvar og fá frið frá erli
hversdagsins. Þar fyrir utan eru vegirn-
ir þannig að reynir á fjaðrabúnað og
mýkt lúxusbílanna sem menn eru
löngu búnir að fá sér. Strandirnar
eru því málið fyrir stressaða fjár-
festa og miðlara þessa dag-
ana.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.128,01
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 270
Velta: 5.141,2 milljónir
-0,49%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Kögun hefur stofnað eignar-
haldsfélagið Opin Kerfi Group
Holding um rekstur Opinna
Kerfa Group og ætlar að selja
hluta þess til utanaðkomandi fjár-
festa. Eigendur nýja félagsins eru
auk Kögunar, Iða fjárfestingar-
félag, sem er í eigu KEA og
Straums Fjárfestingarbanka.
Steinunn Jónsdóttir sagði sig
úr stjórn Íslandsbanka. Hún seldi
nýlega 4,11 prósenta hlut sinn í
bankanum. Varamaður tekur sæti
hennar í stjórn.
Íslandsbanki gefur út víkjandi
skuldabréf með eiginfjárþætti A
fyrir 3,7 milljarðar króna. Bréfin
hafa engan lokagjalddaga en eru
innkallanleg að hálfu Íslands-
banka að 5 árum liðnum.
26 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 40,00 -0,99% ... Atorka 5,80 -
0,85% ... Bakkavör 39,20 – 0,76%... Burðarás 15,00 – 1,96%... FL Group
15,00 -1,32% ... Flaga 4,51 +4,51% ... Íslandsbanki 13,50 +0,00% ...
KB banki 534 -0,93% ... Kögun 59,90 +0,84% ... Landsbankinn 17,10
+0,00% ... Marel 58,50 +2,09% ... Og fjarskipti 4,04 – 0,49%... Samherji
12,10 +0,00% ... Straumur 12,15 -0,41% ... Össur 79,00 -0,63%
Hampiðjan +5,97%
Flaga +4,51%
Marel +2,09%
Þormóður rammi Sæberg -20,78%
Mosaic Fashions -1,77%
Jarðboranir -1,40%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Íslendingar eignuðust
lággjaldaflugfélagið Maersk
í gær. Félagið rennur inn í
Sterling, sem mun við það
velta um 60 milljörðum
króna og flytja fimm millj-
ónir farþega.
Eigendur Iceland Express og
Sterling, þeir Jóhannes Kristins-
son og Pálmi Haraldsson, hafa
keypt danska lággjaldaflug-
félagið Maersk og hyggjast sam-
eina það Sterling.
Sameinað félag verður
stærsta lággjaldaflugfélag
Norðurlanda og það fjórða
stærsta í Evrópu. Heildarfjöldi
farþega sameinaðs félags er um
fimm milljónir og tekjurnar
nema um sextíu milljörðum ís-
lenskra króna.
Almar Örn Hilmarsson, for-
stjóri Sterling og Pálmi Haralds-
son annar eigendanna segja
þróun á markaði lággjaldaflug-
félaga vera þá að félögum fækki
og þau verði stærri. Sterling sé
því komið í góða stöðu til að taka
þátt í þeirri þróun. „Sameinað
félag verður mjög sterkt fjár-
hagslega,“ segir Pálmi. Aðspurð-
ur um hvort Sterling hafi verið
óhagkvæm eining segir Pálmi
svo ekki vera. „Sterling stóð vel
fyrir sínu og hvatinn þeirra
megin til sameiningar var meiri
en hjá okkur.“
Almar segir mikinn vöxt á
þessum markaði. „Fólk ferðast
alltaf meira og meira og þegar
verðið er orðið svona lágt þá
aukast ferðalögin.“
Kaupin nú áttu sér ekki lang-
an aðdraganda að sögn Almars.
„Við erum búnir að vinna í þessu
í þrjár til fjórar vikur.“ KB
banki sér um fjármögnun verk-
efnisins, eins og við kaupin á
Sterling.
Kaupin verða endanlega frá-
gengin á næstu tveimur mánuð-
um og í kjölfarið sameinast
félögin undir merkjum Sterling.
Almar stýrir sameinuðu félagi.
Það kom nýjum eigendum Sterl-
ing nokkuð á óvart hversu vel
fyrirtækið var rekið. Almar
segist reikna með því að fleiri
hagræðingartækifæri leynist
hjá Maersk en voru hjá Sterling,
auk hagræðingar sem skapist
vegna sameiningarinnar sjálfr-
ar. „Það skiptir öllu máli í þeirri
hörðu samkeppni sem ríkir á
þessum markaði að nýta fjár-
festingu sem best og gæta ýtr-
ustu hagkvæmni í rekstrinum.
haflidi@frettabladid.is
MJÓR ER MIKILS VÍSIR Eigendur Iceland Express hafa keypt lággjaldaflugfélagið
Maersk. Fáa hefði grunað þegar þeir eignuðust Iceland Express að félag í þeirra eigu ætti
nokkrum mánuðum eftir að flytja fimm milljónir farþega á ári hverju.
!
"#$% &'&
($&)*+#$&)
,-../// #, 00
+1( 234(
2(52
20 6 00 170 8 005 22539220 ,( 56:390
0 ( 21160 (
;
=
>
>
>
?
?
;
%
@
A
Heimsferðir hafa fest
kaup á tveimur ferða-
skrifstofum af STS
International. Áætluð árs-
velta hins nýja fyrirtækis
er tólf milljarðar króna.
Heimsferðir hafa gengið frá
kaupum á ferðaskrifstofunum
STS Solresor og STS Solia.
Ferðaskrifstofurnar eru systur-
fyrirtæki og voru áður í eigu
STS International, stærsta
ferðaheildsala á Norðurlöndum.
Solresor er með höfuðstöðvar
í Svíþjóð en Solia í Noregi. Áætl-
að er að alls flytji fyrirtækin á
þessu ári um 170 þúsund far-
þega í eigin flugi til áfangastaða
sinna.
Heildarvelta Solresor og
Solia mun á þessu ári verða um
níu milljarðar króna. Þegar
velta Heimsferða er tekin með í
reikninginn er áætluð heildar-
velta hins nýja fyrirtækis um
tólf milljarðar króna og er spáð
methagnaði á þessu ári.
Andri Már Ingólfsson,
eigandi Heimsferða, mun gegna
starfi stjórnarformanns hjá
fyrirtækinu en framkvæmda-
stjórar Solresor og Solia munu
gegna störfum sínum áfram.
Andri segir kaupin hafa verið
lengi í burðarliðnum: „Við
vorum ekkert að flýta okkur og
skoðuðum marga kosti. STS
Solresor uppfyllti skilyrði okkar
um að vera vel rekið fyrirtæki í
vexti, með góða stjórnendur og
sterka markaðshlutdeild“.
Hann segir Heimsferðir taka
eitt skref í einu: „Þetta er gott
fyrsta skref. Fyrirtækið er
byggt upp með sama hætti og
Heimsferðir og hugsanaháttur-
inn sá sami. Við erum að fást við
það sem við kunnum best“. - jsk
Heimsfer›ir kaupa
fer›askrifstofur
ANDRI MÁR INGÓLFSSON, EIGANDI
HEIMSFERÐA Heimsferðir hafa fest kaup
á tveimur skandinavískum ferðaskrifstof-
um. Andri segir kaupin hafa verið lengi í
burðarliðnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
G
U
R/
H
AR
I
Fimm milljónir farþega
í sameinuðu félagi
SÍF selur í
keppinauti
SÍF hefur selt allan hlut sinn í
gamla keppinautinum Icelandic
Group, sem áður nefndist SH. Sölu-
hagnaður SÍF af viðskiptunum er
um 430 milljónir króna.
Um fjögurra prósenta hlut var
að ræða sem félagið fékk í sinn
hlut þegar Sjóvík sameinaðist SH í
apríl síðastliðnum. SÍF átti þrettán
prósent í Sjóvík á sínum tíma. - eþa