Fréttablaðið - 01.07.2005, Síða 59
Áhyggjufullir aðdáendur táningastjörnunnarLindsay Lohan hafa opnað heimasíðuna
www.feedlindsay.com. Þar er í gangi undirskriftarlisti
sem á að hvetja stjörnuna til að borða meira, en
nafn heimasíðunnar þýðir „gefum Lindsay að
borða“. Nú þegar hafa rúmlega þrjú þúsund
manns skrifað undir og hvatt Lindsay til þess að
fá sér eins og eina samloku af og til.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Klukkan hálf níu í kvöld hefjast
fyrstu Live 8 tónleikarnir svo að
kalla í Hljómskálagarðinum en þeir
standa yfir til klukkan ellefu. Það er
hópur tónlistarmanna undir nafninu
Áttalíf ásamt fyrrum fréttahaukn-
um Árna Snævarr sem standa að
þessum viðburði.
Með þessu vilja þeir lýsa yfir
stuðningi við Live 8-hópinn sem vill
meðal annars láta fella niður skuld-
ir fátækustu þjóða heims. Meira
liggur þó að baki. „Fyrir tuttugu
árum voru haldnir LiveAid-tónleik-
ar og í kjölfarið lofaði Alþingi Ís-
lands að auka þróunaraðstoð upp í
0,7 prósent. Í dag höfum við aðeins
náð þriðjungi af því,“ segir Jakob
Frímann Magnússon stuðmaður, en
hann er einn skipuleggjandi hljóm-
leikahaldsins. „Við viljum að ís-
lenska ríkið standi við stóru orðin,“
bætir hann við.
Jakob segir að það sé meðal ann-
ars hinum írska Bono að þakka svo
langt sé komið. „Hann gerði þetta
málefni að máli árþúsundsins og ís-
lenskir tónlistarmenn vilja með
þessu tónleikahaldi sýna ákveðna
stéttarlega samstöðu,” segir hann
og bætir við að það sé íslenskum
tónlistarmönnum ljúft en skylt að
sameinast um að vera þátttakendur
í þessum hópi.
Jakob bendir á að í ljósi þess að
Ísland sé ein ríkasta velmegunar-
þjóð heims ætti hún að geta bætt
lífskjör fátækustu ríkjanna. Hvort
0,7 prósent sé ekki of lág tala segir
Jakob að fyrst verði því takmarki
að ná. „Það er töluverður biti að þre-
falda þetta hlutfall.“ Hann telur að
fyrst Ísland geti eytt þúsund millj-
ónunum í að reyna ná sæti í Örygg-
isráði hljóti þetta að geta orðið að
raunveruleika.
Það verður að teljast nýlunda að
íslenskir tónlistarmenn láti sér jafn
pólitískt málefni fyrir brjósti
brenna. “Það er rétt að þeir eru ekki
margir tónlistarmennirnir sem láta
sér þjóðmálin varða. Í góðærinu
slaknar aðeins á baráttuandanum,“
viðurkennir hann. “Þjóð sem er
södd og sátt getur samvisku sinnar
vegna ekki horft framhjá því sem
er að gerast út í hinum stóra heimi,“
bætir hann hins vegar við, staðráð-
inn í að breiða út boðskapinn. ■
BUBBI MORTHENS Bubbi er meðal þeirra fjölmörgu tónlistarmanna sem leggja málstaðnum lið
Södd og sátt þjóð á að taka þátt
JAKOB FRÍMANN Segir ríkið eiga að
standa við stóru orðin sem voru látin falla
fyrir tuttugu árum.