Fréttablaðið - 10.07.2005, Síða 2
2 10. júlí 2005 SUNNUDAGUR
VIÐSKIPTI „Ég treysti mér einfald-
lega ekki lengur til að starfa við nú-
verandi stjórnarhætti hjá félag-
inu,“ segir Inga Jóna Þórðardóttir
sem gaf skýringu á úrsögn sinni úr
stjórn FL Group á hluthafafundi fé-
lagsins sem haldinn var á Nordica
hótel í gær.
Nefndi hún þrjá þætti sem
stjórnin þyrfti að lagfæra til að
tryggja eðlilega stjórnarhætti. Í
fyrsta lagi þykir henni verkaskipt-
ing stjórnarformanns og forstjóra
félagsins óskýr, í öðru lagi segir
hún að tryggja þurfi að meiri hátt-
ar fjárfestingar félagsins séu
ræddar í stjórn áður en félagið
gerist skuldbundið og í þriðja lagi
segir hún félagið vanta skýra fjár-
festingastefnu þar sem einungis
hagsmunir félagsins eru hafðir að
leiðarljósi.
„Það er nauðsynlegt að viðhalda
trausti almennings í félagi sem er á
almennum hlutabréfamarkaði og
því trausti er viðhaldið með því að
virða ákveðnar vinnureglur,“ segir
hún.
Hannes Smárason stjórnarfor-
maður sem kjörinn var til áfram-
haldandi starfa sagði á fundinum
að verðmæti hlutabréfa félagsins
hefðu tvöfaldast á síðustu 18 mán-
uðum og að hann myndi nálgast
verkefni félagsins með sama hætti
og áður. - jse
HERJÓLFUR Tvítugur farþegi var handtek-
inn við komu Herjólfs til Eyja með míkið
magn fíkniefna sem hann hafði falið í bif-
reið sinni.
Tekinn með fíkniefni:
Handtekinn í
Herjólfi
FÍKNIEFNAMÁL Tvítugur farþegi var
handtekinn með mikið magn
fíkniefna við komu Herjólfs til
Vestmannaeyja klukkan hálf tíu í
fyrrakvöld.
Við leit í bifreið hans fundust
400 grömm af hassi, tíu grömm af
amfetamíni og sex grömm af
kókaíni. Efnin voru falin undir
mælaborði, milli sæta og í farang-
ursrými bifreiðarinnar.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum er málið enn í rann-
sókn en grunur leikur á að farþeg-
inn hafi ætlað að selja fíkniefnin í
Vestmannaeyjum.
Maðurinn hefur áður komið við
sögu lögreglunnar. - jse
Fjölmenni á írskum dögum:
Tjalda› í
húsagör›um
SKEMMTANIR Mikill fjöldi fólks hef-
ur lagt leið sína á Akranes en þar
fara nú fram írskir dagar. Slegið
hefur verið uppi stóru tjaldi við
höfnina og var þar haldinn dans-
leikur í gær þar sem Paparnir og
Sálin hans Jóns míns héldu uppi
stemningunni.
Lögreglan á Akranesi telur að
um 2.000 gestir séu í og við bæinn.
Reyndar var veður mörgum erfitt
á föstudag; bæði blautt og hvasst
og brugðu margir á það ráð að
tjalda milli húsa á staðnum til að
búa sér næturstað í skjóli.
Fulltrúar Írlands í söngva-
keppninni í ár eru meðal gesta á
hátíðinni. - jse
Umferðarslys við Þórshöfn:
Farflegi slasast
í bílveltu
LÖGREGLUFRÉTTIR Ökumaður, sem
grunaður er um ölvun við akstur,
velti bifreið sem hann ók og
slasaðist farþegi. Slysið átti sér
stað rétt fyrir utan Þórshöfn um
klukkan hálf sjö í gærmorgun.
Farþeginn var sendur með
sjúkraflugi á Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri en hann er ekki
talinn alvarlega slasaður. Öku-
maðurinn slapp alveg við meiðsl
en mál hans eru nú til rannsóknar.
Mennirnir eru frá Bandaríkj-
unum og voru á leigubifreið sem
er verulega skemmd. - jse
ÞRIGGJA BÍLA ÁREKSTUR Öku-
maður ók í veg fyrir bíl sem kom
eftir Aðalgötu í Keflavík seinni
part dags í gær með þeim afleið-
ingum að bílarnir skullu saman
og hentist annar þeirra á aðra bif-
reið hinum megin við gatnamótin.
Engin slys urðu á fólki en bifreið-
arnar eru talsvert skemmdar að
sögn lögreglunnar í Keflavík.
SPURNING DAGSINS
Skúli, seldir›u jólahjóli›?
Já, það var allt til sölu nema konan og
börnin. Meira að segja kötturinn.
Skúli Gautason hélt flóamarkað á heimili sínu
Litla-Garði, Akureyri, í gær. Hann söng lagið Jóla-
hjól.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
INGA JÓNA ÞÓRÐARDÓTTIR Inga Jóna segir að hún treysti sér ekki til að starfa við núver-
andi stjórnarhætti hjá FL-Group.
Hörð gagnrýni Ingu Jónu Þórðardóttur:
Fjárfestingar ekki
ræddar í stjórn
Stórhættulegt birg›a-
hald í heimahúsum
Bíleigendur létu a›varanir um hættuna af flví a› geyma birg›ir af olíu í og vi›
heimahús sem vind um eyru fljóta um sí›ustu mána›amót. Dæmi eru um
menn sem hömstru›u birg›ir til næstu ára og fylltu rotflrær vi› hús sín.
ELDSNEYTISVERÐ „Þetta er ekki ein-
ungis stórhættulegt heldur brýtur
þetta í bága við lög og er snarbann-
að,“ segir Björn Karlsson, bruna-
málastjóri hjá Brunamálastofnun.
Hundruð ef ekki þúsundir bíleig-
enda hömstruðu dísilolíu sem mest
þeir máttu fyrir síðustu mánaðamót
og notuðu til þess ýmis konar ílát
sem nú eru geymd við heimahús, í
bílskúrum og iðnaðarhúsnæðum
víða um landið.
Söluaðilar víða um landið höfðu
sömu sögu að segja. Fyrirséð hafi
verið að olían hækkaði um helming
og menn notað öll tiltæk ráð til að
hamstra.
Gunnlaugur Axelsson, hjá Esso á
Egilsstöðum, sagði hamstur hafa
verið mjög áberandi. „Mjög margir
fylltu bíla sína og einhver ílát að
auki og talsvert
var um að menn
kæmu margar
ferðir með tunnur
og öll önnur ílát
sem dugðu til.“
Bjarni Kristins-
son, eigandi
Bjarnabúðar á Sel-
fossi, tók í sama
streng og sagðist
hafa heyrt ýmsar
útgáfur af því
hvernig menn
geymdu olíuna á
vafasömum stöð-
um. „Það hömstr-
uðu flestir dísil-
bílaeigendur enda ósköp skiljanlegt
þegar hægt að spara sér miklar
upphæðir.“
Dæmi voru um að tunnur og
plastílát seldust upp í bygginga-
vöruverslunum á landsbyggðinni
daginn fyrir olíubreytinguna enda
hækkaði lítraverð á dísilolíu um
helming á einni nóttu og því eftir
miklu að slægjast. Einn viðmælandi
sagði nágranna sinn hafa fyllt tóma
rotþró af olíu og geymdi hana fast
upp við íbúðarhús sitt. Bensín-
afgreiðslumaður fyrir norðan af-
greiddi mann sem keypti nóg magn
í tunnur til að endast honum næstu
árin.
Gestur Guðjónsson, yfirmaður
öryggismála hjá Olíudreifingu,
sagði að sala dísilolíu vikuna fyrir
mánaðamót hefði verið margföld á
við venjulega og ljóst að fjölmargir
landsmenn hömstruðu þá vikuna.
„Við vorum búnir að vara við þessu
fyrir löngu síðan. Eftirlit með þessu
var lítið sem ekkert og ekki hlut-
verk olíufélaganna að banna við-
skiptavinum sínum kaup á olíu. Í
rauninni gæti viðskiptavinur heimt-
að að við dældum sundlaug hans
fulla af olíu og við yrðum að hlýða.
Þetta er enn eitt klúður ríkisins við
upptöku þessa olíugjalds þegar
aðrar þjóðir Evrópu eru að leggja
þetta af.“
Brunamálastjóri sagði hættuna
mikla af því að geyma olíu inni í
byggingum. „Hún er ekki eins eld-
fim og bensínið en guð hjálpi þeim
sem koma að slíkum birgðum í
brennandi húsi.“ albert@frettabladid.is
Hún er ekki
eins eldfim
og bensíni›
en gu›
hjálpi fleim
sem koma
a› slíkum
birg›um í
brennandi
húsi.
BÍLL Á BENSÍNSTÖÐ Þrátt fyrir að lagaákvæði hefðu átt að koma í veg fyrir hamstur áður
en ný olíulög tóku gildi um síðustu mánaðamót var lítið um eftirlit og fjölmargir einstak-
lingar eiga nú sínar eigin birgðir. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
BAUGUR Jón Ásgeir Jóhannesson
segir efnislega í Sunday Times í
dag að síðasta vika hafi verið ein
sú versta í hans viðskiptalífi og
hann hyggist ekki standa í stór-
viðskiptum fyrr en sakleysi hans
sé sannað. Aðeins tvær af upp-
haflegum sakargiftum séu meðal
ákæruatriðanna fjörutíu. Af-
gangur ákæruatriðanna tengist
Gaumi, bókhaldsmálum, tolla-
lagabrotum og kerditkortanotk-
un. Frá þessu var greint í fréttum
Stöðvar 2 í gærkvöld.
Vegna ákæra á hendur Jóni
Ásgeiri og fimm öðrum einstak-
lingum ákvað Baugur fyrir helg-
ina að hætta þátttöku í fyrir-
tækjahópnum sem átt hefur í við-
ræðum um tilboð í verslunar-
keðjuna Somerfield.
Hreinn Loftsson, stjórnarfor-
maður Baugs, segir að vaxandi
undrunar gæti í breskum fjöl-
miðlum í umfjöllun um málefni
Baugs og ákærurnar. Hann segir
að viðtal Sunday Times við sig og
Jón Ásgeir sé að miklu leyti
byggt á því sem þegar hafi komið
fram í greinargerðum sem
Baugur hefur þegar birt.
Ákæruatriðin fjörutíu verða
að líkindum birt strax eftir helgi.
- jh
Jón Ásgeir í viðtali í The Sunday Times:
Versta vikan í vi›skiptum
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON OG HREINN LOFTSSON Jón Ásgeir hyggst ekki standa í stór-
viðskiptum fyrr en sakleysi hans hefur verið sannað.
Neyðarboð frá ferðamanni:
Leita› á
Langjökli
BJÖRGUNARSTARF Björgunarsveitir
leituðu í gær þýsks ferðamanns
sem gekk á Langjökul. Neyðar-
skeyti barst frá manninum
skömmu eftir hádegi og fór þyrla
Landhelgisgæslunnar af stað en
mjög þungbúið var á jöklinum og
ógjörningur að lenda.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun
hafði ekki sést til mannsins en að
sögn Jóns Inga Sigvaldasonar hjá
Landsbjörg var talið að hann væri
við hábunguna á jöklinum og jafn-
vel var talið að hann hefði slysast
til að senda neyðarboð. – jse