Fréttablaðið - 10.07.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.07.2005, Blaðsíða 16
1815 Hið íslenska biblíufélag er stofnað í Reykjavík, elsta félagið hér á landi. 1937 Danskur maður fellur um sjötíu metra niður í grjót- urð austan við Dettifoss. Hann lifði fallið af. 1943 Bandarískar, kanadískar og breskar hersveitir hertaka Sikiley. 1970 Ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum brennur. Bjarni Benediktsson forsætisráð- herra, Sigríður Björnsdóttir kona hans og dóttursonur þeirra fórust í brunanum. 1980 Viðskipti með greiðslukort frá Eurocard hefjast hér á landi. Fyrstu Visa-kortin eru gefin út ári síðar. 1992 Dómi yfir skipstjóra Exxon Valdes er hnekkt en hann hafði verið fundinn sekur um að valda stórfelldu olíuslysi árið1989. Í upphafi nítjándu aldar var erfitt fyrir presta og flesta aðra að verða sér úti um Biblíu í Evr- ópu því þær voru fáar og dýrar. Það varð til þess að nokkrir menn tóku sig saman árið 1804 og stofnuðu Breska og erlenda Biblíufélagið. Markmið þess var að prenta Biblíur til að allir gætu eignast þær. Þá var einnig ákveðið að stuðla að útbreiðslu Biblíunnar um allan heim. Send- ir voru fulltrúar til margra landa og Skotinn Ebenezer Henderson var hvatamaður að því að prentaðar voru íslenskar Biblíur árið 1813 sem hann kom með til landsins árið 1815 og dreifði. Jafnframt hvatti hann til stofnunar Biblíufélags. Þannig lýsir Jón Pálsson, framkvæmdastjóri Hins ís- lenska Biblíufélags sem er elsta starfandi félag á Íslandi, stofn- un þess fyrir 190 árum. Hann segir að á þeim tíma hafi staða kirkjunnar ekki verið glæsileg. Biskupsstólar hafi verið í lama- sessi og biskup Íslands hokraði í litlu húsi í Aðalstræti meðan kirkjan í Skálholti var notuð sem geymsluskúr. Með tilkomu Biblíufélagsins gat almenningur loks eignast Biblíu en eitt meginmarkmið fé- lagsins er að til séu Biblíur á viðráðanlegu verði. „Markmið félagsins í lögum er að stuðla að útgáfu, dreifingu og notkun Biblíu en segja má að þátturinn sem snýr að notkun sé að verða veigameiri í starfsemi biblíufélagsins,“ segir Jón og bætir við að einnig hafi starf- semi félagsins vegna fjáröflun- ar aukist verulega. Safnað sé fé fyrir fátækari biblíufélög til að mynda í Afríku. Til dæmis standi til að þýða Biblíuna yfir á tvær mállýskur í Eþíópíu en einnig er safnað fyrir ýmsum öðrum málefnum. „Með þessu erum við að endurgjalda þá að- stoð sem Íslendingar fengu við útgáfu Biblíunnar þegar Breska og erlenda félagið studdi okkur á þeim tíma sem þjóðin var fá- tækari en núna,“ segir Jón en stuðningur Breska og erlenda félagsins stóð allt fram á tuttug- ustu öld. Undanfarin tíu ár hefur hæst borið í starfsemi félagsins ný þýðing á Biblíunni sem gefa á út síðla á næsta ári. „Biblían er að meginhluta til hundrað ára göm- ul þýðing,“ segir Jón en guð- spjöllin og postulasagan kom út í nýrri þýðingu árið 1981. Jón telur nýja þýðingu tímabæra vegna breytinga á íslensku máli og setningaskipan. Hann bendir einnig á að þessi þýðing verði sú sjötta í röðinni. „Sumum finnst eins og sú Biblía sem þeir eru með sé bara Biblí- an, en fyrsta þýðingin kom 1584 þannig að hún er þýdd mjög snemma yfir á íslensku miðað við heimsmælikvarða,“ segir Jón og tekur dæmi um hvernig málvenja hafi breyst frá árinu 1912. „Í Esíkel spámanni stendur, „Guð segir við manninn að rísa á fætur og taka ferðatæki sín,“ en ferðatæki á þeim tíma var allt sem þú þurftir til ferðalaga en í dag er það ferðadiskó,“ segir Jón hlæjandi og er nokkuð sann- færður um að Biblían verði meira lesin í nýrri þýðingu. „Biblían er alls staðar, í bók- menntum, myndlist, tónlist og kvikmyndum,“ segir Jón og tel- ur að fólk beri yfirleitt mikla virðingu fyrir Biblíunni enda sé hún ein af grunnstólpum sam- félagsins. ■ 16 10. júlí 2005 SUNNUDAGUR CARL ORFF (1895-1982) fæddist þennan dag. HIÐ ÍSLENSKA BIBLÍUFÉLAG, ELSTA STARFANDI FÉLAG LANDSINS, ER 190 ÁRA Í DAG: Biblían er alls staðar „Segðu mér og ég gleymi. Sýndu mér og ég man. Gerðu mig að þátttakanda og þá skil ég.“ Carl Orff var þýskt tónskáld. Hann er þekktastur fyrir verk sitt Carmina Burana. timamot@frettabladid.is BRÚ‹KAUP Gefin voru saman 24. apríl sl. í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði af séra Einari Eyjólfs- syni þau Magnea Lára Elínardóttir og Kristinn Bergmann Eggertsson. Þennan dag árið 1985 var flaggskip samtaka Græn- friðunga, Rainbow Warrior, sprengt og sökkt í Auckland-höfn á Nýja-Sjá- landi. Ellefu voru í áhöfn skipsins og lést einn þeirra, portúgalski ljós- myndarinn Fernando Per- eiro. Að kvöldi dags sprengdu tvær sprengjur skut skipsins með einnar mínútu millibili með þeim afleiðingum að skip- ið sökk á fjórum mínútum. Skipið kom til hafnar í Auckland nokkrum dög- um fyrr og átti að leiða fjölda skipa til Mururoa- eyju í Kyrrahafi til að mótmæla kjarnorkutilraun- um Frakka. Tveggja metra gat fannst á skrokk skipsins við rann- sókn á málinu og leifar af sprengiefni sem ekki var hægt að fá á Nýja-Sjálandi. Tveir voru ákærðir fyrir ódæðið, báðir franskir leyniþjónusmenn. Frönsk yfirvöld reyndu að neita aðild sinni að málinu en í lok september sagði varn- armálaráðherra Frakka af sér og Frakkar borg- uðu Nýja-Sjálandi skaðabætur. Rainbow Warrior var hífður upp og sökkt á ný lengra frá landi. Nýtt skip með sama nafni var sjósett árið 1987. 10. JÚLÍ 1985 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR Rainbow Warrior sprengdur Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og frændi, Sveinn Ómar Elíasson Miðtúni 48, Reykjavík, sem lést á heimili sínu laugardaginn 2. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. júlí kl. 13. Alda Ármanna Sveinsdóttir Jón Júlíus Elíasson Kristín Þóra Harðardóttir Margrét Elíasdóttir Ólafur Sigrtryggsson Sigurður Þór Elíasson Alda, Hörður, Arnaldur Ingi, Elías Kári, Andri Bergmann og Sigtryggur Sveinn. Hjartanlegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og jarðarför hjartkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, Ólínu Jörundsdóttur Eikjuvogi 17, Reykjavík. Svavar Kristjónsson Guðný Svavarsdóttir Sveinn Óttar Gunnarsson Jörundur Svavarsson Sif Matthíasdóttir Erla Kristín Svavarsdóttir Smári Ragnarsson Lilja Steinunn Svavarsdóttir Bjarni Jónsson Auður Ólína Svavarsdóttir og barnabörn. FRAMKVÆMDASTJÓRINN Jón Pálsson er framkvæmdastjóri elsta starfandi félags á Íslandi. Hann heldur hér á handriti af Nýja testa- mentinu frá byrjun 14. aldar sem páfinn gaf biskupi Íslands að gjöf í heimsókn sinni árið 1989. AFMÆLI Orri Vigfússon er 63 ára. Helgi Björnsson, tónlist- armaður og leikari, er 47 ára. Stefán Karl Stefánsson leikari er 30 ára. BRÚ‹KAUP Gefin voru saman þann 25. júní í Lága- fellskirkju, af séra Vigfúsi Þór Árnasyni, þau Ingibjörg Steina Frostadóttir og Gunnar Reynisson. Þau eru til heimilis í Reykjavík. LJ Ó SM YN D AS TO FA H AF N AR FI RÐ I ANDLÁT Kristmundur Jóhannesson, bóndi að Giljalandi, andaðist aðfaranótt fimmtudagsins 6. júlí. Kristján Gíslason, frá Neskaupstað, síð- ast til heimilis á Seyðisfirði, and- aðist sunnudaginn 26. júní. Skúli Garðarsson Þverbraut 1, Blöndu- ósi, andaðist miðvikudaginn 22. júní. Lilja Eiðsdóttir, áður til heimilis að Staðarbakka 28, Reykjavík, lést fimmtudaginn 30. júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.