Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 22
Eftir lok heimsstyrjaldarinnar síð- ari 1945 tóku Bandaríkin forustu fyrir hinum frjálsa heimi. Þessari sjálfsögðu hlutverkaskipan olli einkum tvennt: annars vegar lykil- hlutverk Bandaríkjanna í sigri bandamanna á þýzkum nasistum og ítölskum og japönskum meðreiðar- mönnum þeirra og hins vegar efna- hagsyfirburðir Bandaríkjanna um- fram önnur iðnríki eftir stríð. Evr- ópa var í sárum. Árin eftir stríð nam landsframleiðsla Bandaríkj- anna nærri helmingi heimsfram- leiðslunnar. Bandaríkin voru þannig séð hálfur heimurinn. Bandaríkin nutu virðingar víða um heim og vöktu aðdáun, en aðdáunin var þó ekki óskipt. Það stafaði meðal ann- ars af því, að Bandaríkin höfðu for- ustu um andstöðuna gegn ógnar- stjórn Stalíns í Sovétríkjunum og gegn öðrum einræðisstjórnum kommúnista og studdu ýmsar aðrar gerræðisstjórnir, sem höfðu sumar það eitt sér til málsbóta, að þær voru andsnúnar kommúnistum. Inn- flytjendur héldu áfram að flykkjast til Bandaríkjanna alls staðar að úr heiminum, og Bandaríkjamenn tóku þeim opnum örmum. Bandaríkin voru bræðslupottur, þar sem fólk af ýmsu þjóðerni bjó saman í bróðerni. Bandaríkin voru land tækifæranna, eins og landsfeðurnir höfðu lagt upp með 1776: landið, þar sem til að mynda utanríkisráðherrann talaði ensku með þykkum erlendum hreim. Bandarískir háskólar löðuðu til sín kennara og nemendur víðs vegar að. Bandarísk menning blómstraði: þetta var þjóðin, sem hafði gefið heiminum djassinn auk allra bíómyndanna, myndlistar, skáldskapar, tónlistar, vísinda og fræða í fremstu röð. Evrópuríkin stóðu í skugga Bandaríkjanna þessi ár, enda var hvert og eitt þeirra smávaxið miðað við risaveldið vest- an hafs. Evrópa var öðrum þræði innhverf og lokuð. Bandaríkin voru úthverf og opin upp á gátt. Þessi heimsmynd eftirstríðs- áranna hefur breytzt. Það stafar öðrum þræði af því, að Evrópulönd- in hafa tekið höndum saman á vett- vangi Evrópusambandsins (ESB) og tekið Bandaríkin að sumu leyti sér til fyrirmyndar. Evrópa á okkar dögum er bræðslupottur líkt og Bandaríkin. Evrópa er á fleygiferð í ýmsar áttir: lífskjörin þar hafa batnað til muna, evrópsk fyrirtæki af öllu tagi breiða úr sér, borgir álf- unnar blómstra sem aldrei fyrr og einnig sveitirnar og menningin með. Þýzka bílafyrirtækið Daimler- Benz keypti Chrysler fyrir nokkrum árum, og evrópska flug- vélaverksmiðjan Airbus selur flug- félögum heimsins fleiri þotur en Boeing, og þannig mætti lengi telja. Þetta er samt ekki höfuðmarkmið ESB, öðru nær, því að Evrópusam- bandið er í fyrsta lagi friðarsam- band. Æ nánari samvinna Evrópu- þjóðanna að efnahagsmálum og öðr- um sameiginlegum málum stefnir í fyrsta lagi að því að tryggja frið í álfunni til frambúðar. Það virðist til þessa hafa tekizt svo vel, að fæstum þykir ástæða til að efast eða óttast um framhaldið. Við þetta hefur Evr- ópa eflzt svo og dafnað, að ESB er nú orðið fjölmennara og fjár- sterkara en Bandaríkin. Skoðum tölurnar. Mannfjöldi ESB-ríkjanna 25 er nú rösklega 450 milljónir á móti tæplega 300 millj- ónum í Bandaríkjunum. Landsfram- leiðsla á hefðbundinn mælikvarða er nú meiri í ESB-ríkjunum í heild en í Bandaríkjunum. Munurinn er meiri í reynd en opinberar tölur vitna um, af því að ýmisleg sóun (t.d. olíubrennsla og ýmis vafasöm útgjöld til varnarmála), sem hífir upp landsframleiðsluna og ætti þó að réttu lagi ekki að gera það, er meiri í Bandaríkjunum en í Evrópu. Nokkur ESB-lönd skila meiri fram- leiðslu á hverja vinnustund en Bandaríkin og búa við betri lífs- kjör á þann kvarða, eins og ég lýsti á þessum stað fyrir viku. Ýmislegt annað bendir í sömu átt. Meðalung- lingur í ESB situr ári lengur á skólabekk en jafnaldrar hans í Bandaríkjunum. ESB-löndin hafa á að skipa um 320 læknum á hverja 100.000 íbúa á móti 280 læknum í Bandaríkjunum. Íbúar ESB-ríkj- anna lifa að jafnaði fimmtán mán- uðum lengur en Bandaríkjamenn. Fimmta hvert barn í Bandaríkjun- um býr við fátækt skv. skilgrein- ingu ESB; Mexíkó er eina landið innan OECD, þar sem hlutfalls- lega fleiri börn líða skort. Tvær milljónir Bandaríkjamanna sitja í fangelsi, og það er átta sinnum hærra hlutfall mannfjöldans en í ESB. Yfirburðir Bandaríkjanna eru liðin tíð. Sameinuð Evrópa er jafnoki Bandaríkjanna, þegar á allt er litið, og þarf að deila forust- unni fyrir hinum frjálsa heimi með Bandaríkjunum og búa sig undir að bjóða Indlandi og Kína til sætis við sama borð. Til þess þarf lýðræði í Kína. ■ 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR SJÓNARMIÐ JÓN KALDAL Brotthvarf RÚV af auglýsingamarkaði gæti verið forsmekk- urinn af rækilegri endurskoðun á hlutverki stofnunarinnar. Rás 1 í sjónvarpi› FRÁ DEGI TIL DAGS BYGGIR MEÐ ÞÉR veisla 2.768 3.690 Vnr.65744610 Brauðrist BOSCH brauðrist, 950W. AF ÖLLUM BOSCH VÖ RUM! 25 AFSLÁTTU R Vi› sama bor› Heimsókn og fyrirlestur Václav Klaus, forseti Tékklands, var í opinberri heimsókn hér á landi í vikunni í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Eins og gengur í heimsóknum af þessu tagi hitti forsetinn einnig ýmsa aðra fyrir- menn, heimsótti Þingvelli, Nesjavalla- virkjun og fleira. Var Ólafur Ragnar í för með gesti sínum á þessum ferðalögum. Einn var þó sá viðburður á dagskrá Tékklandsfor- seta sem starfsbróðir hans á Íslandi hefur áreiðanlega leitt hjá sér. Klaus, sem er eindreginn hægri- sinni í stjórnmálum, gaf sér nefnilega tíma til þess að mæta á ráð- stefnu Mont Pelerin- samtakanna sem hald- in var á Nordica-hótel- inu í Reykjavík og flytja þar erindi, en ráðstefnu þessa sækja margir kunnustu hugmyndafræðingar frjálshyggju og markaðshyggju víða að úr heiminum. Maðurinn sem skipulagði samkomuna heitir Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Ekki beint félagsskapur fyrir Ólaf Ragnar. Eða hvað? Þægileg tilviljun Það var svo þægileg hending, þótt ekki sé nema með tilliti til ferðakostnaðar, að þetta gat farið saman hjá Klaus forseta, að koma í opinbera heimsókn til Íslands og flytja fyrirlestur á ráðstefnu Mont Pelerin. Hvort tveggja er vafalaust skipu- lagt með góðum fyrir- vara. Gaman væri að vita hvort atriðið, fyrir- lesturinn hjá Hannesi Hólmsteini eða heimsóknin til Ólafs Ragnars, kom fyrr á dagskrá forsetans. Uppörvandi Sumum finnst blöðin allt of upptekin af því að flytja neikvæðar fréttir og niður- drepandi. Það var því uppörvandi að sjá stóra fyrirsögn í Morgunblaðinu á þriðju- daginn með uppörvandi tíðindum: „Kirkjugarðarnir eru fyrir alla“. Blaðið á hrós skilið fyrir þessa jákvæðu frétt sem höfð er eftir forstjóra Kirkjugarða Reykja- víkur. Ýmsir hafa áreiðanlega haft áhyggj- ur af þessu atriði en nú ættu þær að vera að baki. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprent- smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Í DAG EVRÓPA OG AMERÍKA ÞORVALDUR GYLFASON Yfirbur›ir Bandaríkjanna eru li›in tí›. Sameinu› Evrópa er jafnoki Bandaríkjanna, flegar á allt er liti›, og flarf a› deila forustunni fyrir hinum frjálsa heimi me› Bandaríkjunum og búa sig undir a› bjó›a Ind- landi og Kína til sætis vi› sama bor›. Til fless flarf l‡›- ræ›i í Kína. Þegar Páll Magnússon var ráðinn útvarpsstjóri á dögunum sagðist hann sjá fyrir sér að ríkisfjölmiðlarnir hyrfu af auglýs- ingamarkaði. Þetta er eðlilegt viðhorf hjá manni sem hefur mestallan sinn starfsaldur unnið við einkarekna fjölmiðla og þekkir þá skökku samkeppnisstöðu sem er ríkjandi á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Að sama skapi þarf ekki að koma á óvart að fráfarandi útvarpsstjóra, Markúsi Erni Antonssyni, finnist hug- myndir eftirmanns síns ómögulegar og hann haldi því fram að ekki komi til greina að taka RÚV af auglýsingamarkaði, en því sjónarmiði gerði Markús góð skil í sérstöku viðhafnarviðtali í Kastljósi Ríkissjónvarpsins síðastliðinn sunnudag. Markús Örn hefur verið opinber starfsmaður nánast allan sinn starfsaldur og er að fara í annað starf hjá ríkinu. Hann hefur sem sagt verið hluti af kerfinu um árabil, er samvaxinn því og sér ekki mögu- leikana sem geta falist í því að stokka hlutina upp á nýtt. Enda eru gamlir valdhafar ekki líklegir til að standa fyrir aðgerðum sem leggja valdakerfi þeirra niður. Byltingarmenn koma yfirleitt að utan með nýstárlegar hug- myndir í farangrinum og skora ríkjandi ástand á hólm. Koma Páls í stól útvarpsstjóra er því tilefni til nokkurrar eftirvænt- ingar. Markúsi Erni er sem sagt hægt að sýna ákveðinn skilning og þolinmæði. Það sama verður hins vegar ekki sagt um félagsskap sem kallar sig Samtök auglýsenda og sendi á dög- unum frá sér yfirlýsingu þar sem varað er við því að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir nafnið eru samtökin ekki málsvarar allra auglýsenda á Íslandi. Í yfirlýsingu samtakanna eru tekin upp athugasemda- laust nánast öll rök sem starfsmenn RÚV hafa áður fært fyrir því að ríkisfjölmiðlarnir haldi áfram að senda út auglýsingar, þar á meðal að annars þurfi að hækka afnotagjöld, aðgengi fólks að auglýsingum muni versna og auglýsingaverð muni hækka, sem aftur leiði til hærra verðs á vöru og þjónustu. Þetta er málflutningur þeirra sem vilja kyrrstöðu og þola ekki breytingar. Íslendingar búa nú til dæmis við tvær sjón- varpsstöðvar kostaðar af auglýsendum, Skjá einn og Sirkus, sem senda út efni í opinni dagskrá og má færa gild rök fyrir því að vera Ríkissjónvarpsins á auglýsingamarkaði komi í veg fyrir að þær vaxi og dafni. Ríkissjónvarpið er sem sagt samkeppnishamlandi og stuðlar að fábreytni í íslensku sjón- varpi. Sama má segja um Rás 2, sem í grunninn er ekkert öðruvísi en aðrar tónlistarútvarpsstöðvar. Hægt er að sjá fyrir sér að brotthvarf RÚV af auglýsinga- markaði væri forsmekkurinn af rækilegri endurskoðun á hlutverki stofnunarinnar. Einn möguleikinn er að leggja niður Rás 2 og bylta dagskrárstefnu Sjónvarpsins þannig að efnið sem væri þar í boði myndi skera sig frá öðrum sjónvarps- stöðvum í sama dúr og Rás 1 er gjörólík öðrum útvarpsstöðv- um. Þar væru sannkölluð sóknarfæri fyrir innlenda dagskrár- gerð, leikið efni, fréttaskýringaþætti og allt það ógrynni af vönduðu sjónvarpsefni sem er framleitt í heiminum. Ríkis- sjónvarpið þyrfti þá ekki að standa í verðstríði við einka- reknu afþreyingarstöðvarnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.