Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2005
Í eina tíð voru íslensk börn talin heppin þar sem að þau voru þrjá
mánuði í fríi á sumrin. Nú er öldin önnur og til að svara kröfum hins
breytta þjóðfélags (ekki þörfum barnanna) eru íslensk börn nú leng-
ur í skóla en frönsk svo dæmi sé tekið. Hér byrjar skólinn ekki fyrr
en 1. september. En það er nú þegar nóg að gera í þeim verslunum
sem selja skólaföt og verslunargluggar sýna vel að haustið er í að-
sigi. Nú á tímum getur ekkert barn farið í skólann án þess að fá bux-
ur, vesti, brók og skó. Ég minnist þess ekki að hafa fengið ný skóla-
föt á hverju hausti heldur fékk ég föt þegar þurfti. Fyrir jól, afmæli
eða fyrir sveitaferðina á sumrin, ekki endilega fyrir skólabyrjun. En
tímarnir breytast og mennirnir með í þessu neysluþjóðfélagi. Í París
láta foreldrar sér duga að koma við hjá Du pareil au meme, H&M,
Zöru og fleiri búðum þeim líkum. Enda ágætisföt á fínu verði í þess-
um verslunum, í fallegum litum og með ágætu sniði. Alltaf er hægt
að finna efripart og neðripart sem passa saman og svo auðvitað fylgi-
hluti, spennur, lyklakippur og bleik veski. Reyndar er svo einkenni-
legt að tískubúðirnar bjóða frekar veski en pennaveski sem fylgi-
hluti með fatnaði í upphafi skólaársins. Það á jafnt við um barnaföt
sem föt fyrir fullorðna. Á þremur vikum getur fatnaður sem fæst í
fínum búðum verið kominn í hilllurnar hjá Zöru og H&M, eftirlíking-
ar á lágu verði. Í París eru íbúar hverfanna misjafnlega ríkir og
hverfin eru misjafnlega blönduð. Í sumum þeirra tala nemendurnir
15 til 20 móðurmál og horfa sumir með eftirsjá til þess tíma sem
skólabúningar tíðkuðust því þá voru allir eins til fara og ekki hægt að
sjá mismundandi efnahag fjölskyldnanna á klæðnaði skólabarnanna.
Þeim var þar með hlíft við að þola skömm eða stríðni.
Það eru ekki allir sem búa í fjölþjóðlegum „menningarsuðupott-
um“ og fyrir þá eru barnafatabúðir af allt öðrum toga. Til dæmis má
finna á dýrustu götu Parísar Avenue Montaigne verslunina Baby
Dior ekki langt frá aðalstöðvum tískuhúss Dior. Þar geta foreldrar
klætt börn sín upp í föt frá sama tískuhúsi og þeir kjósa að versla við,
jafnvel nákvæmar eftirlíkingar af því sem í boði er fyrir fullorðna.
Til dæmis má nefna hið fræga strigaefni með Dior yfirskriftinni sem
finna má í töskum, fötum, húfum og skóm. Þeir sem heldur vilja
Prada-strigaskó geta fundið vinsælastu gerðina í barnastærðum á
Avenue Montaigne. En fyrir alklæðnað á börnin á þessari götu er
vissara að gera ráð fyrir nokkur hundruð þúsund krónum í kostnað.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Það er leikur að læra...
Glæsilegur
kvenfatnaður
Kjólarnir fást hjá okkur
Ný sending komin
Glæsilegt úrval af
náttfötum
ROPE YOGA í BAÐHÚSINU
BRAUTARHOLTI 2.
Hefjast mánudaginn 5. september 2005
Bókaðu fyrir 2. september fáðu 15% afslátt
LEIÐBEINANDI er
Katrín Sigurðardóttir ROPE YOGA kennari
Skráning og nánari upplýsingar í síma
821-1399 og á kata@kata.is og
www.kata.is
TILBOÐSVIKA
11.-18. MARS
10-40% afsláttur af öllum vörum
að auki 5% staðgreiðsluafsláttur
ÓKEYPIS NAFNGYLLING
FYLGIR ATSON-LEÐURVÖRUM
Leðuriðjan ehf.
Brautarholti 4, 105 Rvk.
S: 561 0060 • atson@atson.is
Opið: mán.-fös. 10-18
TILBOÐSDAGAR
22. ÁGÚST - 2. SEPTEMBER
Stutt í anda sjö-
unda áratugarins
Hótelerfinginn Paris Hilton sýndi sig
með nýja klippingu um helgina.
Paris Hilton vakti svo sannarlega athygli
á verðlaunahátíðinni Teen Choice Aw-
ards um síðustu helgi. Þar afhjúpaði
tískudrottningin nýja hárgreiðslu sem
féll svo sannarlega í kramið hjá ljós-
myndurum og áhorfendum.
Paris er búin að stytta hár sitt ansi mik-
ið og komin með klippingu í anda sjö-
unda áratugarins sem er svo sannar-
lega í takti við tískuna. Paris hefur verið
með sítt hár lengi og því tími til kom-
inn fyrir stúlkuna að breyta til.
Christie andlit
Cover girl
Ofurfyrirsætan sat síðast fyrir hjá
Cover girl á miðjum tíunda áratugn-
um en er mætt aftur í slaginn.
Christie Brinkley er enn á ný orðin and-
lit snyrtivörufyrirtækisins Cover girl.
Þessi 51 árs ofurfyrirsæta auglýsti
merkið fyrst á áttunda áratugnum og
hætti ekki fyrr
en um miðj-
an tíunda
áratuginn. Nú
auglýsir hún
línu sem heit-
ir Advanced
Radiance og
á að höfða til
kvenna þrjá-
tíu ára og
eldri. Cover
girl reynir að
sýna breitt bil
fegurðar, mismunandi þjóðarbrota og
aldurshópa. Aðrar stjörnur sem hafa
auglýst fyrir merkið eru til dæmis Qu-
een Latifah og Molly Simms.
Paris er glæsileg með nýja, stutta hárið.
Christie Brinkley