Fréttablaðið - 25.08.2005, Side 30

Fréttablaðið - 25.08.2005, Side 30
6 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR Blóm sem skarta rauðu Það er eitthvað framandlegt við rauða fjöður upp úr grænu blómi. Grænu pottaplönturnar standa alltaf fyrir sínu en óneitanlega er gaman þegar öðruvísi blóm- um bregður fyrir, jafnvel skreyttum gulum blöðum og rauðum, eins og skúf upp úr grænkunni. Þau minna á fjar- lægar heimsálfur, jafnvel hita- beltið en eru þó ekki komin lengra að en frá Belgíu að því er Ásdís Ragnarsdóttir í Blómavali upplýsir okkur um. En hvað heita þau? „Flugnaskellur heita þessi með fjöðrunum og eru af Brómelíuætt,“ segir Ásdís. „Þetta eru plöntur sem þurfa góða birtu og geta verið í suður- glugga yfir vetrartímann. Mold- in er látin þorna á milli vökvun- ar en blómið kemur upp úr trekt og ofan í trektinni er æskilegt að sé pínulítið vatn. Blómið sjálft stendur í þrjá upp í 6 mán- uði.“ Ásdís segir flugnaskellurn- ar fluttar inn í ágúst og aftur í janúar en ekki sjást þess á milli því þær seljist yfirleitt fljótt upp. „Flugnaskellan fjölgar sér þannig að það koma græðlingar upp frá móðurplöntunni en það er erfitt við okkar aðstæður að fá þær aftur til að blómstra,“ segir hún. Fleiri skrautleg blóm föng- uðu athyglina til dæmis Flamingóblóm. Það segir Ásdís vera hálfskuggaplöntu sem geti blómstrað aftur og aftur. Flamingóblómið vill stofuhita allt árið en er viðkvæmt fyrir of miklu vatni og á að þorna vel á milli. ■ LAUGAVEGI 87 • SÍMI 511 2004 Mikið úrval af dúnsængum, koddum, og handklæðum Hamraborg 1-3 200 Kópavogi Gsm: 894 8404 Kertaljós í húminu NÚ ER KERTATÍMINN KOMINN. ÞÁ ER GOTT AÐ VITA: ...að kerti brenna hægar og leka jafnvel minna vaxi ef þau eru sett í frysti klukku- stund fyrir notkun. ... að ef kertastjakinn er þak- inn kertavaxi er gott að stinga honum í frysti í eina klukku- stund. Einnig má láta stjak- ann undir sjóðandi heitt vatn og þerra síðan með bréfþurrku. ...að kveikurinn á kertinu á alltaf að vera stuttur, annars er hætta á sóti. ... að öll kerti geta sótað en ástæðan er einföld. Þegar slökkt er á kerti, sér- staklega ilmkerti, myndast hnúi efst á kveiknum. Þegar kveikt er aftur á kertinu er það þessi hnúi sem fer að sóta. Því er mjög mikilvægt að klípa eða klippa hann af. ... að ráðlegt er að láta ekki loga á kertunum lengur en þrjár klukku- stundir í einu, sérstaklega ekki ilm- kertum. 1 2 3 1. Flugnaskella er til í nokkrum stærð- um og kostar frá 431. 2. Piparblóm með rauðum, gulum og grænum kúlum og kosta nú 639 með 20% afslætti. 3. Guzmania sem kallað er Demants- blóm. Er af ananasætt og kostar nú 1.439.- 4. Flamingóblóm eða Anthurium andre- anum kostar 2.999 á útsölunni. 5. Læknaprýði heitir þetta litfagra blóm á íslensku en latneska heitið er Tillandsia I. Það er af ananasætt og kostar 929. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. 4 5

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.