Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 44
Leiðtogi bandaríska Nasistaflokks-
ins George Lincoln Rockwell var
þennan dag árið 1967 skotinn til
bana af leyniskyttu fyrir utan versl-
unarmiðstöð í Arlington í Virginíu-
ríki. Tveimur skotum var hleypt af
og skullu þau á framrúðu bifreiðar
Rockwell og hæfðu hann í brjóst
og höfuð. Aðeins nokkrum mínút-
um eftir árásina var þrítugur félagi
í samtökum Rockwells handtek-
inn. Sá hafði verið rekinn úr
flokknum í apríl fyrir að aðhyllast
kommúnisma um of.
Rockwell, sem þekktur var sem
hinn bandaríski Hitler, stofnaði
Nasistaflokkinn árið 1959 en hann
var flugmaður í bandaríska hern-
um í seinni heimsstyrjöldinni.
Hann var sektaður og sendur í
fangelsi í ófá skipti fyrir aðgerðir
sínar en hann og félagar hans
mættu oft á samkomur mannrétt-
indasinna.
Við útför Rockwells 30. ágúst
neituðu stjórnendur í Pentagon
að veita leyfi fyrir jarðsetningu
hans í kirkjugarðinum Culpeper.
Ástæðan var sú að fylgjendur
Rockwells neituðu að taka af sér
armbönd með merki hakakross-
ins. Lík hans var flutt í höfuð-
stöðvar flokksins í Arlington. Dag-
inn eftir var hann jarðsettur á
leyndum stað.
Morðingi foringjans var dæmdur í
tuttugu ára fangelsi í desember
sama ár.
„Ég ætla að skreppa með strákun-
um mínum þremur á veitingastað,“
segir Magnús Eiríksson, eitt ást-
sælasta söngvaskáld þjóðarinnar,
sem ætlar að gæða sér á humri á
Stokkseyri í tilefni af sextíu ára af-
mæli sínu. Þessi tímamót eru ekki
stór í huga Magnúsar enda segir
hann aldur afstæðan. „Mér fannst
ég vera orðinn rosalega gamall
þegar ég varð fertugur en þetta
verður minna sjokk eftir því sem
árin líða. Þetta er vont fyrst en
venst,“ segir Magnús og hlær en
hann er að eigin sögn við ágætis
heilsu.
Þrítugs- og fertugsafmælin eru
Magnúsi minnisstæð. „Þá var þetta
tekið með stæl en síðan hef ég ekki
nennt að standa í þessu því maður
er alltaf að eiga afmæli,“ segir
Magnús sem man sérstaklega eftir
einni afmælisgjöf. „Sú sem mér
hefur þótt vænst um var þegar ég
varð fertugur og konan mín gaf
mér forlátan kassagítar af gerðinni
Martin. Hann var valinn af mikill
nákvæmni í Bandaríkjunum og er
frábært hljóðfæri sem ég hef notað
mikið í upptökum,“ segir Magnús
sem á og rekur hljóðfæraverslun-
ina RÍN í samstarfi við syni sína.
Magnús spilaði nú síðast ásamt
KK félaga sínum á stóra sviðinu á
Menningarnótt. „Það er erfitt að
spila fyrir svona marga því það er
erfitt að ná sambandi við áheyrend-
ur,“ segir Magnús sem hefur yfir-
leitt gaman af því að spila á tónleik-
um þar sem fólk er að hlusta. „Það
er svolítið erfitt að hafa augu á sér
allan tímann en að öðru leyti er
mjög skemmtilegt að hafa beint
samband við áheyrendur,“ segir
Magnús sem hefur samið reiðinnar
ósköp af vinsælum lögum í gegnum
tíðina. Hann segir erfitt að gera
upp á milli en þykir einna vænst
um lögin Ó þú og Reyndu aftur, sem
hann samdi til konunnar sinnar
heitinnar. ■
28 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
DAVID HUME (1711-1776)
lést þennan dag.
Aldurinn er vondur en venst
MAGNÚS EIRÍKSSON TÓNLISTARMAÐUR ER SEXTUGUR
„Og hver er stórkostlegasta talan? Númer
eitt.“
David Hume var skoskur heimspekingur. Verk hans höfðu mikil áhrif
á heimspekinginn Immanuel Kant.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Björgvin Sigmundsson frá Miðvík í
Grýtubakkahreppi, lést á heimili sínu
sunnudaginn 7. ágúst. Útför hefur farið
fram í kyrrþey.
Guðmundur Heiðmar Gunnlaugsson
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
sunnudaginn 14. ágúst. Útför hefur farið
fram í kyrrþey.
Hulda Birna Lárusdóttir Jónsson,
Redondo Bch., Kaliforníu, andaðist
þriðjudaginn 16. ágúst. Útför hefur farið
fram í kyrrþey.
Margrét Bárðardóttir, Skálholtsbraut 9,
Þorlákshöfn, lést miðvikudaginn 17.
ágúst. Útför hefur farið fram.
Jenný Oddsdóttir, Kárastíg 13B, lést á
Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 18. ágúst.
Margrét Hallgrímsdóttir frá Skálanesi,
til heimilis á Suðurgötu 14, Keflavík,
andaðist á Landspítalanum við Hring-
braut föstudaginn 19. ágúst.
Guðbrandur Jóhannsson frá Áshóli,
Grenilundi 6, Akureyri, andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardag-
inn 20. ágúst.
Kristjana Stefánsdóttir, Meðalholti 10,
Reykjavík, andaðist á heimili sínu mánu-
daginn 22. ágúst.
Rut Lárusdóttir, Heiðarenda 8, áður
Faxabraut 67, Keflavík, lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja mánudaginn 22.
ágúst.
JAR‹ARFARIR
13.00 Oddný Aðalbjörg Jónsdóttir,
Rauðalæk 20, Reykjavík, áður
Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
13.00 Kolbrún Sigurðardóttir, Álftamýri
2, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju.
13.00 Ægir Ólafsson verslunarmaður,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju.
13.00 Sálumessa Szymons Kuran, tón-
listarmanns, verður frá Landakots-
kirkju.
14.00 Jón Skafti Kristjánsson vélstjóri,
Heiðargerði 19, Akranesi, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju.
15.00 Páll G. Hannesson fyrrverandi
tollfulltrúi, Ægisíðu 86, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju.
SÖNGVASKÁLD Magnús hefur samið reiðinnar ósköp af vinsælum lögum í gegnum tíðina. Hann segir erfitt að gera upp á milli en þykir
einna vænst um lögin Ó þú og Reyndu aftur, sem hann samdi til konunnar sinnar heitinnar.
GEORGE LINCOLN
ROCKWELL
ÞETTA GERÐIST > 25. ÁGÚST 1967 MERKISATBURÐIR
1895 Hið skagfirska kvenfélag er
stofnað og það starfar enn
sem Kvenfélag Sauðár-
króks.
1900 Þýski heimspekingurinn
Friedrich Nietzsche andast
á heimili sínu.
1944 París er frelsuð af frönskum
og bandarískum herdeild-
um. Þjóðverjar veita lítið
viðnám.
1950 Gunnar Huseby ver Evrópu-
meistaratitil sinn í kúlu-
varpi.
1970 Stífla í Miðkvísl í Laxá í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu er
sprengd til að mótmæla
stækkun Laxárvirkjunar.
1980 Afríkuríkið Zimbabwe fær
inngöngu í Sameinuðu
þjóðirnar.
1989 Ómannaða geimskipið
Voyager 2 sendir myndir til
jarðar af hnettinum Nept-
únus.
Bandarískur Hitler skotinn til bana
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Snjólaug Magnea Bjarnadóttir
Þelamörk 54, Hveragerði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, sunnudaginn 21.
ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 26. ágúst
kl. 11.00.
Magnús Kr. Guðmundsson Guðrún Reynisdóttir
Gyða Ó. Guðmundsdóttir Kolbeinn Kristinsson
Bjarni R. Guðmundsson Brynja Sveinsdóttir
Ragnheiður Guðmundsdóttir Lars D. Nielsen
Sveinn H. Guðmundsson Erna Þórðardóttir
Hildur Rebekka Guðmundsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
Jóhann G. Sigvaldason
Aðalbraut 55, Raufarhöfn,
sem lést þriðjudaginn 16. ágúst, verður jarðsunginn frá
Raufarhafnarkirkju laugardaginn 27. ágúst kl. 14.00.
Pálína A. Valsdóttir
Sæmundur Jóhannsson Hugrún E. Þorgeirsdóttir
Árni Jóhannsson
Þorsteinn S. Jóhannsson
Dagur M. Jóhannsson
Jóhann G. Jóhannsson
Svava B. Mörk Jóhann Kristmundsson
Eydís Hentze Guðmundur B. Sigurðsson
Marin H. Hentze John S. Heinesen
Helgi J. Hilmarsson Guðný M. Kristjónsdóttir
og barnabörn.
www.steinsmidjan.is
Ástkær bróðir okkar,
Ólafur Eiríksson
Grjóti, Þverárhlíð,
sem andaðist sunnudaginn 21. ágúst, verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju laugardaginn 27. ágúst kl. 14.00.
Ingibjörg Eiríksdóttir
Gunnar Eiríksson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Oddný Aðalbjörg Jónsdóttir
Rauðalæk 20, Reykjavík,
áður Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði,
sem lést á Landakotsspítala 12. ágúst sl. verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. ágúst kl. 13.00.
Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir Víðir Sigurðsson
Guðný Björg Þorvaldsdóttir Sigurður Þorgeirsson
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
Kristján Þorvaldsson
Ómar Ásgeirsson
Helga Jóna Óðinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Hulda Birna Lárusdóttir Jónsson
Redondo Beach, Kaliforníu,
andaðist þriðjudaginn 16. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Börn, tengdabörn og barnabörn.