Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2005
Tímabil körfuboltamanna að fara af stað:
Fimmtánda hra›mót
Vals hefst í kvöld
KÖRFUBOLTI Tímabil körfubolta-
manna fer af stað í kvöld þegar
hið árlega hraðmót Valsmanna
hefst en þetta undirbúningsmót er
orðið fastur liður hjá flestum
körfuboltaliðum landsins.
Ellefu félög eru skráð til leiks
að þessu sinni, níu úrvalsdeildar-
félög og tvö 1. deildarfélög. Liðin
eru Njarðvík, Keflavík, Grinda-
vík, KR, Fjölnir, ÍR, Haukar,
Skallagrímur og Þór Akureyri og
svo gestgjafar Vals og lið Breiða-
bliks úr 1. deild. Aðeins þrjú úr-
valsdeildarfélög senda ekki lið til
leiks; Snæfell, Hamar og Höttur.
Leikið er í tveimur 12 mínútna
hálfleikjum án leikhléa í riðla-
keppninni en úrslitaleikurinn er
síðan tvisvar sinnum 18 mínútur.
Að öðru leyti gilda reglur KKÍ um
körfuknattleik.
Skipuð verður aganefnd sem
tekur á þeim agabrotum sem upp
kunna að koma á mótinu. Þetta er
fimmtánda árið í röð sem þetta
mót fer fram en í fyrra unnu KR-
ingar Valsmótið þegar þeir lögðu
ÍR-inga, 67-53, í úrslitaleik. Kefl-
víkingar hafa oftast unnið mótið,
sjö sinnum alls, síðast árin 2002
og 2003.
Valsmenn standa á tímamótum
og halda ekki mótið á Hlíðarenda
að þessu sinni þar sem búið er að
rífa Kofann og bygging nýs og
glæsilegs íþróttamannvirkis
stendur yfir. Þess í stað halda
Valsmenn mótið í Íþróttahúsi
Kennaraháskólans, þar sem þeir
munu spila heimaleiki sína í 1.
deildinni í vetur.
Fyrsti leikurinn í kvöld er
viðureign Hauka og Fjölnis en
síðan er leikið á föstudag, laugar-
dag og sunnudag allt fram á
sunnudagskvöld þegar úrslitaleik-
urinn fer fram. - ooj
KR-INGAR UNNU Í FYRRA Steinar Kaldal sést hér með bikarinn sem KR-ingar fengu fyrir
að vinna Valsmótið í fyrra.