Fréttablaðið - 25.08.2005, Qupperneq 50
34 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR
Einu sinni var ég
stödd á Geirsnefi með
eðlisfræðibekknum
mínum þar sem við
hugðumst gera eina
stutta tilraun. Í henni
var tveimur litlum há-
tölurum stillt upp á
ákveðinn hátt, þannig að stæði mað-
ur í vissri fjarlægð heyrðist nánast
ekkert í þeim vegna svokallaðrar
eyðandi samliðunar. Úr hátölurun-
um varpaðist hljóð svipað sóni í
síma og þarna stóð lítill hópur
áhugasamra nema sem reyndu að
finna hljóðlausa punktinn.
Eitthvað fór þessi tilraun svaka-
lega fyrir brjóstið á tveimur hunda-
eigendum sem voru þarna og héldu
því fram að sónninn gerði dýrin
snælduvitlaus. Ég held nú frekar að
fólkið hafi verið snælduvitlaust því
eftir að það hringdi á lögregluna
reyndi það að framkvæma borgara-
lega handtöku á þessum eðlisfræði-
glæpamönnum.
Nú eru eðlisfræðinemar upp til
hópa ekki mjög árásargjarnt fólk og
þeir leysa frekar sín vandamál með
rökfræðilögmálum en handalögmál-
um. Þrátt fyrir það var hundafólkið í
svo miklum ham að það beitti meira
að segja bílum sínum gegn hinum
tilvonandi eðlisfræðingum. Lögregl-
an var svo ekki lengi að vinda sér á
staðinn og tók kennarann alvarlegu
tiltali sem endaði með því að hann
og einn nemandi fóru upp á lög-
reglustöð.
Lögreglan á hrós skilið fyrir
skjót viðbrögð en í kjölfar þessa
hasarleiks fór ég að velta því fyrir
mér hvort áherslur löggunnar væru
kannski örlítið skakkar. Ég hefði til
dæmis gjarnan vilja sjá einhverja
lögreglumenn þegar ég gekk í gegn-
um miðbæ Reykjavíkur á Menning-
arnótt þar sem ég óttaðist um líf og
limi innan um allar ryskingarnar,
brothljóðin og sauðdrukkna ungling-
ana. Fjarveru þeirra má þó senni-
lega rekja til þess að þeir hafi allir
verið önnum kafnir við að reyna að
hafa hemil á múgnum því stundum
láta Íslendingar bara eins og verstu
villimenn. Það verður þó að segjast
að einu villimennirnir á Geirsnefinu
þennan dag fyrir nokkru voru
hundaeigendurnir og þeir voru al-
veg látnir í friði.
STUÐ MILLI STRÍÐA
DÝRAVINURINN SÓLEY KALDAL UNDRAR SIG Á VIÐBRÖGÐUM TAUGAVEIKLAÐRA HUNDAEIGENDA.
Löggan tæklar misvillta villimenn
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?
Að vinna að sjálfboðastörfum er gott tækifæri til þess að læra tungumál og
kynnast framandi menningu. Dvölin hefst á málanámi og undirbúningi fyrir störf
hjá hjálparstofnunum, þjóðgörðum og við samfélagsþjónustu.
Guatemala, Costa Rica, Su›ur Afríka, Perú og Indland
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
4 1 3
9 6 4 5 2 1
5 8 2 6
9 8 5
3 2 4 9 7
5 6 3
1 7 9 3
8 4 2 3 1 9
9 6 2
■ SUDOKU DAGSINS
Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver
dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á
bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða
sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er
nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin
er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi.
Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á
www.sudoku.com.
Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað-
inu á morgun.
3 2 1 6 9 4 8 7 5
4 6 9 7 8 5 3 1 2
5 8 7 2 3 1 6 9 4
1 9 3 8 2 7 4 5 6
2 7 5 4 6 3 9 8 1
8 4 6 1 5 9 7 2 3
7 5 4 3 1 8 2 6 9
9 3 2 5 7 6 1 4 8
6 1 8 9 4 2 5 3 7
Lausn á gátu gærdagsins
... og Liverpool spilaði ákveð-
inn og einbeittan bolta í
gegnum allan leikinn!
Hinir gátu engan vegin
varist svona skotum! Þetta
var bara meiriháttar árás!
Hann hljóp eftir kant-
inum og svo beint
inn í teig...
„Af hverju
lamdirðu
hann eigin-
lega?“
„Hann kallaði mig
ódýra hóru sem
gerði hvað sem er
fyrir einn pakka af
tannþræði!“SMELL!
Hristi!
Hristi!
BÚMM!
BÚMM!
OPNASTU
FJÁRANS
SKRAN...
BÚMM!
BÚMM!
...skápur.
Þessi eldgamli
skóli er við það
að hrynja í
sundur!
Tjahh...
Hvað voru þeir
eiginlega að pæla
þegar þeim fannst
nóg að nota bara stál
og múrsteina til að
byggja hann?
Þú skaþt ekki reyna að
vera eitthvað þlár við mig,
Lalli! Viðurþenndu það -
Kettir eru þætari
en hundar.
VIÐURÞENNDU
ÞAÐ Muml
Ertu kominn
með
kattarfár?
Solla, farðu og athugaðu hvort
pabbi þurfi einhverja hjálp við
kvöldmatinn
Allt í lagi
Ó, NEI!
Ó, NEI!
Ó, NEI!
Jæja...?
Hann sagði
„ó, nei“
Svússsshhh!
Blúbb!
Blúbb!