Fréttablaðið - 25.08.2005, Page 54

Fréttablaðið - 25.08.2005, Page 54
hansjónsm íns Hljómsveitin Hending frá Búðardal er að koma saman á nýjan leik. Þetta eru stórtíðindi, því þegar sveitin hætti fyrir 20 árum, sóru liðsmenn þess dýran eið, að þeir myndu leika saman aftur í fyrsta lagi þegar frysi í helvíti. Forsprakki Hendingar, Friðrik Finnur Sturlu- son, sem síðar gekk í Sálina, segir að gróið sé um heilt og að áhangendur geti farið að hlakka til. Strákarnir í Hendingu hyggja á stórt og hafa með fulltingi HB- banka keypt allt hlutafé hljóm- sveitarinnar Galdrakarla, laga- lager Deildarbungubræðra og þrotabú dönsku sveitarinnar Shu Bi Dua Group, sem Baugur eignaðist við yfirtökuna á Illum. Hending aftur saman! FRIÐRIK F. STURLUSON: Hlakkar til að spila gömlu lögin Sigur Rós fær verðuga samkeppni á tónleikamarkaðnum 38 25. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR „Every man... every man has to go through hell to reach paradise.“ Robert De Niro í hlutverki brjálæðingsins Max Cady útskýrir lífsmóttóið sitt á mjög einfaldan hátt í kvikmyndinni Cape Fear, magnaðri endurgerð Martin Scorsese á samnefndri mynd frá 1962. bio@frettabladid.is > Ekki missa af ... Wedding Crashers með brúðkaupsboð- flennunum Vince Vaughn og Owen Wil- son. Frábær gamanmynd um tvo pipar- sveina sem ráðast inn í brúðkaupsveislur til að komast í tæri við stelpur. Hlutirnir fara þó úr böndunum þegar annar þeirra verður ástfanginn af dóttur fjármálaráð- herra Bandaríkjanna. Þeir sem ekki hríf- ast af þessari mynd geta brugðið sér á piparsveinamynd af allt öðru tagi, Broken Flowers með Bill Murray sem fékk Grand Prix-verðlaunin í Cannes. Kvikmyndin Broken Flowers segir frá piparsveininum Don Johnson. Kærastan hefur nýlega hætt með honum og hann er um það bil að falla í sama gamla farið og einangra sig frá heiminum. Hann fær hins vegar óvænt bleikt bréf frá óþekktri ástkonu. Þar stendur að hann eigi nítján ára gamlan son. Sá vill víst ólmur hitta pabba sinn. Fyrir tilstilli ná- granna síns og besta vinar, Win- ston, ákveður Don að leggja upp í ferðalag og leita að syninum meðal allra þeirra ástkvenna sem hann hefur átt í lífinu. Það eru þau Bill Murray, Jessica Lange og Sharon Stone sem leika aðalhlutverkin í þessari mynd. Ólíkt stjörnunum í mynd- inni er leikstjórinn Jim Jarmusch ekki öllum kunnur. Hann starfar ekki innan Hollywood og hefur tekist að halda sig fjarri þeim sirkus sem þar ríkir. Hann kýs frekar að vera einn fárra sem starfa við sjálfstæða kvikmynda- gerð í Bandaríkjunum og að ná frama á þeim grundvelli. Syndir gegn straumnum Það er oft sagt að leikarar taki að sér hlutverk í stórum myndum og blóðmjólki kvikmyndaverin um laun til þess að geta einbeitt sér að leik í alvöru kvikmyndum. Kvikmyndir Jarmusch eru gott dæmi um slíkan hugsunarhátt. Í Night on Earth fór Winona Ryder hamförum í hlutverki leigubíl- stjóra sem neitar að gefa upp frama sinn sem slíkur fyrir aðal- hlutverk í stórri Hollywood- mynd. Í Dead Man fór Johnny Depp á ferðalag um andaheim indíána og þá má ekki gleyma Ghost Dog: The Way of the Samurai, mynd sem sló í gegn öll- um að óvörum. Persónur Jarm- usch eru ólíkar því sem við sjáum í venjulegum kvikmyndum frá Hollywood og kærkomin tilbreyt- ing frá útlitsæðinu sem tröllríður kvikmyndum frá Englaborginni. Skrifað fyrir Murray Broken Flowers er talin vera sú Jarmusch-mynd sem höfðar hvað mest til almennings en hún fékk Grand Prix-verðlaunin í Cannes í vor. Sagan er vissulega forvitni- leg en það sem er hins vegar talið skipta mestu máli er leikur Bill Murray, sem er enn ein rósin í hnappagatið hjá þessum magnaða leikara. „Ég skrifaði handritið alltaf með hann í huga. Ekki það hvern- ig hann myndi segja einhverjar setningar heldur ákveðnar hliðar á leik hans, hvernig honum tekst að gera suma hluti sprenghlægi- lega,“ segir Jarmusch. Jarmusch skrifar handritin að myndunum sínum sjálfur og hefur því mikla tengingu við við- fangsefnið þótt hann gefi leikur- um sínum svo lausan tauminn í túlkun sinni. Aðalleikkonurnar fjórar sáu allt handritið en Jarmusch bað þær um að skrifa bréf. „Þær áttu að útskýra hvað þær myndu setja niður á blað ef þær væru í þessari aðstöðu,“ segir Jarmusch, sem síðan endurskrifaði hugsanir þeirra og notaðist við þær í mynd- inni. Tileinkuð áhrifavaldi Annar leikari sem Jarmusch hafði í huga við skriftirnar var Jeffrey Winston. Nafnið hringir kannski ekki neinum bjöllum en hann hefur leikið stór hlutverk í mynd- um á borð við Shaft og Ali, auk þess sem hann lék eitt aðalhlut- verkanna í endurgerð Manchur- ian Candidate. „Mig langaði að fá Jeffrey til liðs við mig vegna hæfileika hans sem kamelljón, mig langaði í per- sónu sem var ekki staðalmynd. Ég vonaðist til þess að hann tæki hlut- verkið að sér og ynni persónuna út frá því sem ég hafði skrifað.“ Í upphafi myndarinnar kemur fram að hún sé tileinkuð Jean Eustache. Jarmusch sagði að þrátt fyrir að leikstjórinn hefði einungis gert fjórar kvikmyndir hefði hann haft mikil áhrif á hann. „Ef einhverjir fjórir Japanir eða Ungverjar sjá nafnið og kynna sér verk hans er tilganginum náð,“ segir Jarmusch. ■ Kærkomin tilbreyt- ing frá Hollywood Broken Flowers hefur farið sigurför um heiminn og hlotið einróma lof gagnrýnenda. Leikstjórinn Jim Jarmusch er einn fremsti leikstjórinn í sjálfstæða kvikmyndageiranum í Bandaríkjunum. JARMUSCH OG MURRAY Hlutverk Don Johnson var skrifað með Bill Murray í huga, ekki síst með tilliti til hæfileika hans til að gera hluti sprenghlægilega. Gilliam vir›ir Weinstein-bræ›urna Breski leikstjórinn Terry Gilliam segist virða Weinstein-bræðurna Harvey og Bob, sem framleiddu nýjustu mynd hans um Grimm- bræðurna. Þetta segir hann þrátt fyrir að honum hafi lent ítrekað saman við þá. Þeir áttu víst ekki skap saman, leikstjórinn og framleiðendurnir, og upp úr sauð allrækilega þegar myndin var á klippiborðinu. Bræð- urnir vildu að óhuggulegustu atriðin yrðu klippt burt en Gilliam var andsnúinn því. Að lokum sætti hann sig þó við orðinn hlut. Þá fauk víst töluvert í hann þegar leikkon- an Samantha Morton var rekin og Lena Headey fengin í hennar stað. Gilliam sagði þó að myndin sem Bob Weinstein hefði haft í huga væri ekki myndin sem var gerð. Þegar allt var komið á suðu- punkt lét Gilliam sig hverfa og gerði myndina Tideland. Þegar hann sneri aftur hafði andrúms- loftið verið hreinsað. „Ég gerði nokkrar breytingar og á endanum klipptum við burt nokkrar dýrustu senurnar,“ sagði Gilliam. „Ég vildi ekki gera það en skal viðurkenna að hún er betri svona,“ sagði leikstjórinn. TERRY GILLIAM Terry segist vera sáttur við myndina sína um Grimm-bræðurna þrátt fyrir tíð rifrildi við framleiðendur myndarinnar. Jessica Lange var tekin í karphúsið af gagnrýnendum fyrir frammistöðu sína í King Kong árið 1976. Svo slæm var út- reiðin að hún sást ekki á hvíta tjaldinu í þrjú ár. Lange lærði í leiklist í París en þegar hún kom heim aftur fékk hún hvergi vinnu. Útlitið bjargaði henni og hún hafði ágætar tekjur af því að sitja fyrir. Henni var síðan boðið áðurnefnt hlutverk í myndinni um risa- górilluna en það varð henni síður en svo til framdráttar. Um tíma leit út fyrir að ferillinn væri á enda en Lange lagði ekki árar í bát. Hún nýtti þriggja ára atvinnuleysið í að læra enn frekar leiklist og myndaði tengsl í kvikmyndaheiminum. Lange fékk loks hlutverk á móti sjálf- um Jack Nicholson í kvikmyndinni The Postman Alway Rings Twice. Margir slógu þó ákveðinn varnagla og sögðu Lange fara ansi langt á útlitinu einu saman. Hún þaggaði þó niður í öllum efasemdaröddum þegar hún fór á kostum sem hinn gullfallega Julie Nichols á móti Dustin Hoffman í Tootsie. Hún fékk Óskarinn fyrir frammistöðuna og var ennfremur til- nefnd fyrir leik sinn í Frances. Hún stóð því með pálmann í höndunum árið 1983, öllum að óvörum. Frá því hefur Lange hirt Óskar frænda einu sinn til viðbótar fyrir kvikmyndina Blue Sky. Þar að auki hefur hún verið tilnefnd fjórum sinnum. Hún hefur skapað eftirminnilegar persónur á borð við taugaveikluðu mömmuna í Cape Fear. Þrátt fyrir hörð viðbrögð í upphafi ferils síns gróf leikkonan aldrei höfuðið í sandinn og er í dag álitin ein af mikil- vægustu leikkonum í sögu Hollywood. Fall er fararheill

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.