Fréttablaðið - 25.08.2005, Side 58
Fjórar myndir, sem fjalla um
piparsvein, blondínu, sebrahest
og írskan námsmann, verða frum-
sýndar á næstunni í kvikmynda-
húsum landsins.
Seann William Scott, Johnny
Knoxville og Jessica Simpson
fara með aðalhlutverkin í kvik-
myndinni The Dukes of Hazzard.
Myndin er byggð á samnefndum
sjónvarpsþáttum sem nutu mik-
illa vinsælda í bandarísku sjón-
varpi og segir frá frændunum Bo
og Luke, sem reyna að bjarga ætt-
aróðali Duke-fjölskyldunnar frá
eyðileggingu. Þeir njóta aðstoðar
íðilfagurrar frænku sinnar, Daisy,
og roskins frænda í baráttunni
gegn illmenninu Boss Hogg.
Seann William Scott er þekkt-
astur fyrir leik sinn í American
Pie-myndunum en Johnny Knox-
ville er einn af vitleysingunum í
Jackass. Þetta er hins vegar
fyrsta kvikmyndahlutverk söng-
konunnar Jessicu Simpson.
Barnamyndin Racing Stripes
segir frá sebrahesti sem finnst
skammt fyrir utan bóndabæ í
Kentucky. Þar er hann hafður
meðal annarra húsdýra á býli í
eigu vinalegs bónda og dóttur
hans. Þegar sebrahesturinn sér
veðhlaupabraut telur hann sig
engu síðri en þeir hestar sem
þeysast um eftir brautinni. Það
sem hann veit hins vegar ekki er
að hann er ekki hestur. Með kraft-
miklum æfingum og aðstoð vina-
legrar dóttur bóndans, Channing,
tekst sebrahestinum þó að láta
draum sinn rætast.
Stórstjörnur ljá húsdýrunum
raddir sínar. Frankie Muniz,
þekktastur fyrir leik sinn í
Malcolm in the Middle, talar fyrir
sebrahestinn en meðal annarra
leikara má nefna Dustin Hoffman
og Snoop Dogg.
Heads in the Clouds skartar
þeim Charlize Theron, Penelope
Cruz og Stuart Townsend í aðal-
hlutverkum. Myndin er ástarþrí-
hyrningur frá fjórða áratug síð-
ustu aldar þegar Evrópa gekk í
gegnum miklar breytingar. Guy
er írskur námsmaður sem verður
ástfanginn af hálffranskri og hálf-
bandarískri stelpu, Gildu. Þau
flytja saman til Parísar og þar
kynnist Guy hinni spænsku Miu,
sem flúði borgarastyrjöldina á
Spáni. Atburðarásin tekur óvænta
stefnu þegar nasistar hertaka
París og Mia lætur lífið.
Síðasta myndin sem er frum-
sýnd í vikunni er Broken Flowers
með Bill Murray í aðalhlutverki
en leikstjóri er Jim Jarmusch.
Hún segir frá piparsveininum
Don Johnson, sem fær óvænta
frétt um að hann eigi son. Vanda-
málið er að hann veit ekki hver
móðirin er. Don ákveður að hefja
leit að þessum heldur óvænta
erfingja sínum með hjálp ná-
granna síns. ■
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 áraSýnd kl. 3.40 og 5.50 í þrívídd
Sýnd kl. 3.20, 4.20, 5.40, 6.40, 8 og 10.20 Sýnd í lúxus kl. 3.20 og 5.40 B.i. 10 ára
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 5,20, 8 og 10.30 Sýnd í lúxus kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 8
★★★
-HJ. MBL
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
★★★
-ÓHT. Rás 2
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í
EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
Sýnd kl. 5.30 B.i. 10 ára - Síðustu sýningar
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6 í þrívídd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 10 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.30
★★★
-HJ. MBL
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
★★★
-ÓHT. Rás 2
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í
EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
SÍMI 551 9000
!"#"$!%&'#
'#("$)*
+
Veðhlaupasebrahestur og rómantík
SEBRAHESTURINN OG CHANNING Þrátt fyrir að vera ekki
hestur dreymir sebrahestinn um að komast á Kentucky-veðreið-
arnar, sem tekst fyrir tilstuðlan góðra manna.
GILDA OG MIA Þrátt fyrir umbreytingaskeið, þar sem fasistar voru
að reyna að sölsa undir sig Evrópu og heimurinn á barmi styrjaldar,
gafst tími fyrir ást, rómantík og svik.
PIPARSVEINNINN DON Þó að Don Johnson sé ekkert líkur nafna sínum úr Miami Vice
var hann með eindæmum kvensamur á yngri árum. Afraksturinn er nítján ára gamall
sonur sem þekkir ekki pabba sinn og faðirinn veit ekkert með hverri hann á soninn.