Fréttablaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
91
83
08
/2
00
5
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is
fyrir nánari upplýsingar og skráningu í Og1.
SJÓNVARP
Og1 lækkar verulega kostnað heimila sem eru með GSM áskrift, Heimasíma og Internet hjá Og Vodafone.
Kynntu þér einnig ávinninginn fyrir GSM, Internet og Heimasíma.
Ég fæ Sýn í 3 mánuði
og sé öll mörkin sem liðið
mitt skorar í gemsanum!
0 kr. 0 kr. 0 kr.
Allir sem skráðir eru í Og1 fá áskrift að
Sýn fyrir 0 kr. í 3 mánuði.
Tilboðsverð 1.990 kr. á mánuði
eftir það.
Allir sem skráðir eru í Og1 geta valið sitt lið í
Enska boltanum og séð öll mörkin sem liðið
skorar í GSM-símanum fyrir 0 kr.
Allir sem skráðir eru í Og1 geta valið
sitt lið í Meistaradeildinni og séð öll
mörkin úr þeim riðli og úrslita-
keppninni í GSM-símanum fyrir 0 kr.
Sýn í 3 mánuði Enski boltinn í símann Meistaradeildin í símann
Skráning þarf að berast fyrir 1. október
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Fyrirmyndir
Ég er stundum spurður hverjarséu fyrirmyndir mínar. Mér
vefst oft tunga um tönn því þetta er
miklu flóknari spurning en fólk
gerir sér oft grein fyrir. Margir
ganga út frá því sem vísu að fyrir-
myndir manns séu einhverjir sem
séu svipaðir og maður sjálfur. Það
þarf alls ekki að vera.
FRÆGT fólk hefur verið mér fyrir-
myndir. Ég get nefnt Þórberg Þórð-
arson, Bob Dylan, Thomas Merton og
Charles Chaplin. Þeir hafa allir haft
mikil áhrif á mig en ekki nærri eins
mikil og vinir mínir og fjölskylda og
allt gott fólk sem ég hef hitt fyrir á
lífsleiðinni. Til dæmis er tengda-
pabbi minn mér mikil fyrirmynd. Ég
held að hann hafi haft meiri áhrif á
mig en nokkur fræg manneskja.
FORELDRAR eru helstu fyrir-
myndir barnanna sinna. Marilyn
Manson er langt á eftir þeim. En
það er auðvelt, ef foreldrarnir eru
slæmir, að kenna Marilyn Manson
um og segja að unglingarnir séu
slæmir vegna þess að Marilyn Man-
son sé svo slæm fyrirmynd. Þá eru
foreldrarnir hreinlega ekki að
standa sig sem fyrirmyndir.
ALLIR eru fyrirmyndir, ekki bara
frægt fólk. Við erum öll fyrirmyndir
fyrir einhvern. Við vitum jafnvel
ekki af því. Þess vegna skiptir það
máli hvernig við högum okkur, hvað
við segjum og gerum, því það mótar
aðra í kringum okkur. Það er vís-
indalega sannað að við hermum
ósjálfrátt eftir fólki sem við treyst-
um og virðum. Við öpum eftir
handahreyfingar og látbragð. Ef við
erum að tala við einhvern sem við
lítum upp til og hann fiktar í eyranu
á sér þegar hann talar er líklegt að
við förum fljótlega að gera eins.
FYRIRMYND okkar getur verið
einhver sem er mjög ólíkur okkur.
Það getur verið einhver sem við
vitum ekki hvað heitir og hittum
bara einu sinni, í eitt augnablik. Ég
hef haft mismunandi fyrirmyndir á
mismunandi tímabilum lífs míns. Í
æsku voru mamma mín og pabbi
fyrirmyndir mínar en líka amma
mín og systur hennar mömmu. Í dag
er konan mín mér mikil fyrirmynd.
Hún er vandaðasta og besta mann-
eskja sem ég þekki.
ÉG er fyrirmynd fyrir marga. Þess
vegna vil ég reyna að vanda mig í
lífinu. Aðgát skal höfð í nærveru
sálar. Jesús er mín mesta fyrir-
mynd, eins og hann birtist mér í
öðru fólki. ■
Föst. 26.ágúst
Föst. 9.sept.
Lau. 10 sept.
Föst. 30. sept