Fréttablaðið - 25.09.2005, Síða 67
Hljómsveitin Sigur Rós heldur
langþráða tónleika hér á landi í lok
nóvember en það eru nær þrjú á
síðansveitin lék síðast á Íslandi.
Tónleikarnir hér heima munu
marka endapunkt langs tónleika-
ferðalags Sigur Rósar um heiminn
á þessu ári sem borið hefur sveitina
um Asíu, Bandaríkin og svo
Evrópu.
Þessa stundina er hljómsveitin
stödd í Bandaríkjunum og fram
undan eru til dæmis tónleikar á
hinum sögufræga 18.000 manna
tónleikastað Hollywood Bowl í Los
Angeles.
Sigur Rós sendi fyrir stuttu frá
sér diskinn Takk og hefur kynnt
hann og fylgt honum eftir með tón-
leikaferðalaginu. Takk hefur verið
vel tekið víða um heim og komist
hátt á plötusölulistum en hér á landi
hefur diskurinn selst í tæplega
5.000 eintökum frá því hann kom út
hinn 12. september. Tónleikaferð
hljómsveitarinnar hefur líka verið
vel tekið og lofsamlegir dómar
birst í fjölda erlendra fjölmiðla.
Tónleikar Sigur Rósar hér á
landi verða í Laugardalshöll sunnu-
daginn 27. nóvember og leikur
hljómsveitin Amina á undan Sigur
Rós og leggur henni einnig lið í
nokkrum lögum. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Sunnudagur
SEPTEMBERSigur Rós spilar á Íslandi Heiða velurmyndirnar
Af gefnu tilefni skal tekið fram að
myndir í mannréttindaflokki Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
Reykjavík voru valdar af Heiðu
Jóhannsdóttur, dagskrárumsjónar-
manni hátíðarinnar, í samráði við
UNIFEM og Grétu Ólafsdóttur.
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Píanóleikararnir Jón Sigurðsson
og Þórarinn Stefánsson leika fjórhent á
nýjan flygil Ketilhússins á Akureyri á tón-
leikum sem Tónlistarfélag Akureyrar
heldur í samvinnu við Félag íslenskra
tónlistarmanna.
20.00 Finnur Bjarnason tenór og Örn
Magnússon píanóleikari halda tónleika í
TÍBRÁ, tónleikaröð Kópavogs, í Salnum í
Kópavogi.
20.00 Kristín Þuríður Halliday
sópransöngkona heldur tónleika í Hafn-
arborg, Hafnarfirði ásamt Antoniu
Hevesi píanóleikara og Einari Jóhann-
essyni klarinettuleikara og Peter Tom-
kins óbóleikara. Kristín verk eftir Händel,
Vivaldi, Schubert, Puccini, Gounod og
fleiri ásamt sígildri bandarískri tónlist.
20.00 Garðar Garðarsson leikur
klassískan djass með söng á Póstbarn-
um. Þar verður í allan vetur leikinn léttur
djass á sunnudagskvöldum.
21.00 Bubbi Morthens heldur tón-
leika á Trúbadorahátíð Íslands, sem
haldin er í fjórða sinn í Egilsbúð, Nes-
kaupstað.
■ ■ KVIKMYNDASÝNINGAR
20.50 Hvíldardagskvöld á Grand
Rokk með Alison Krauss, Chet Atkins,
Waylon Jennings, Johnny Cash, Marty
Robbins og fleirum.
hvar@frettabladid.is
SIGUR RÓS Snýr aftur eftir langa bið og mun leika tónlist sína fyrir landa sína í Laugar-
dalshöll í nóvember.