Fréttablaðið - 03.10.2005, Page 2
2 3. október 2005 MÁNUDAGUR
Ekkert lát á vanda rækjuvinnslunnar hér á landi:
Átta fyrirtæki hafa hætt rekstri
SJÁVARÚTVEGUR „Fyrir einu og hálfu
ári voru átján rækjuframleiðendur
hér á landi en nú eru þeir eitthvað
um tíu,“ segir Pétur Bjarnason,
framkvæmdastjóri Fiskifélags Ís-
lands.
„Þetta hefur verið erfitt lengi og
ég sé ekki fram á að ástandið eigi
eftir að batna neitt á næstunni svo
það er við því að búast að fleiri
hætti,“ bætir hann við.
Pétur nefnir þrjár ástæður helst-
ar fyrir erfiðleikunum í rækjufram-
leiðslunni hér á landi: Kanadabúar
hafa aukið mjög framleiðsluna og
geta þess vegna boðið hana á mun
lægra verði en Íslendingar, Færey-
ingar og Norðmenn en Pétur segir
að kvótinn í Kanada sé byggður á
markaðslegum grunni en ekki fiski-
fræðilegum.
Einnig er framleiðsla á heitsjáv-
arrækju í Tailandi, Suður-Ameríku
og víðar farin að hafa verulega nei-
kvæð áhrif á markaðinn fyrir ís-
lenska rækju. Þriðja ástæðan er svo
hið margumrædda háa gengi krón-
unnar sem svo margir í útflutnings-
geiranum hafa kvartað yfir að und-
anförnu. - jse
Fundur
fyrirhuga›ur
JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, forsæt-
isráðherra Ísra-
els og Mahmoud
Abbas, leiðtogi
Palestínumanna,
hafa samþykkt
að funda í fyrsta
sinn síðan Ísrael-
ar drógu herlið
sitt frá Gaza-
svæðinu.
Abbas hringdi
í Sharon í gær til að óska honum
gleðilegs nýs árs, en nýtt ár hjá gyð-
ingum, Rosh Hashana, er í þann
mund að hefjast. Í samtalinu
ákváðu þeir að hittast brátt og ræða
saman í von um að efla friðarferlið
fyrir botni Miðjarðarhafs. ■
SPURNING DAGSINS
Einar, ver›ur fletta íslenskt
Manhattan?
„Nei, þetta verður íslensk Árborg.“
Einar Njálsson bæjarstjóri hefur tilkynnt miklar
breytingar sem fyrirhugaðar eru á miðbæ Selfoss
á næstu árum. Meðal annars munu þar rísa tveir
turnar með alls 120 íbúðum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MAHMOUD ABBAS
ÞRJÚ FÍKNIEFNAMÁL Lítilræði af
amfetamíni fannst í bifreið öku-
manns sem lögreglan í Borgarnesi
stöðvaði við eftirlit í fyrrakvöld.
Maðurinn er grunaður um að hafa
ekið undir áhrifum amfetamíns.
Lítilræði af kannabisefnum fannst
einnig í tveimur bifreiðum í fyrr-
inótt í Hafnarfirði. Ökumennirnir
höfðu í báðum tilfellum verið
stöðvaðir í venjubundnu eftirliti
lögreglunnar.
SLASAÐIST VIÐ LÖNDUN Maður
slasaðist lítillega á höfði og baki í
fyrradag í erlendu mjölskipi sem
lá í Eskifjarðarhöfn. Hankar
slitnuðu af mjölpoka sem verið
var að landa svo eins og hálfs
tonns pokinn slóst í höfuð manns-
ins. Var hann strax sendur á
heilsugæslustöðina til skoðunar að
sögn lögreglunnar á Eskifirði.
Tíu læknar ávísa
lyfjum til sama fíkils
LYFJAMÁL Landlæknisembættið
hefur komist að því að allt að tíu
læknar hafi ávísað vanabindandi
lyfjum til eins og sama fíkilsins,
að sögn Matthíasar Halldórssonar
aðstoðarlandlæknis. Nýi lyfja-
gagnagrunnurinn, sem notaður
hefur verið hjá embættinu síðan
um áramót, reynist vel til að rekja
dæmi af þessum toga. Matthías
leggur áherslu á að gagnagrunn-
urinn sé einungis notaður til að
fylgjast með því að lyfjaávísun sé
með eðlilegum hætti.
„Við sjáum ef fólk er að ganga
á milli margra lækna til að fá lyf-
seðil,“ segir Matthías. „Við send-
um upplýsingar til læknanna um
það og mælumst þá til þess að það
sé einungis einn sem sjái um ávís-
un á vanabindandi efni til viðkom-
andi einstaklings. Ekki er alltaf
hægt að skrúfa fyrir það.“
Matthías segir að oft bregði
læknunum við þegar þeir fái að
vita um einstaklinga sem hafa far-
ið á milli lækna og orðið sér úti
um lyfseðla. Embættið óski eftir
skýringum frá þeim á
því hvers vegna
þeir séu svo háir
í útskriftum á
ákveðin lyf. Í
mörgum tilvik-
um fáist ein-
hverjar skýr-
ingar.
„Sumir lækn-
ar verða oft
mjög undrandi
því þeim
hafði
ekki dottið í hug að viðkomandi
leitaði til annarra lækna í sömu
erindum,“ segir Matthías.
Spurður um fjölda fíkla sem fari
milli lækna til að fá ávísun á lyf
kveður hann embættið ekki hafa
tekið það saman. Starfsmenn þess
fari mjög varlega í sakirnar. Ein-
ungis sé um að ræða mjög af-
brigðileg tilvik sem athugasemdir
séu gerðar við.
„Þær höfum við gert í allmörg-
um tilvikum. Það eru nokkrir tug-
ir manna sem hafa einhvern veg-
inn ánetjast ávanabindandi lyfj-
um og leita síðan til margra lækna
til að verða sér úti um þau. Þeir
halda því þá leyndu að þeir séu að
fara til fleiri en eins læknis.“
jss@frettabladid.is
A›sto›arlandlæknir segir dæmi fless a› einn og sami fíkillinn fái ávísun á
vanabindandi lyf frá allt a› tíu læknum. N‡i lyfjagagnagrunnurinn hefur
reynst vel vi› eftirlit á afbrig›ilegum ávísunum á tiltekin lyf.
MORFÍNFÍKN Fíklar sækjast meðal annars eftir contalgin forðatöflum. Það eru verkjatöflur
sem innihalda morfín. Þeir leysa þær upp og sprauta lyfinu í sig.
MATTHÍAS HALLDÓRSSON Leggur áherslu á
að lyfjagagnagrunnurinn sé einungis
notaður til að fylgjast með af-
brigðilegum fjölda ávís-
ana á tiltekin
lyf.
RÆKJUVINNSLA Á einu og hálfu ári
hafa um átta fyrirtæki hætt rækju-
vinnslu og framkvæmdastjóri Fiski-
félags Íslands segist ekki sjá að lát
verði á þessari þróun eins og málin
standa.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
G
U
N
N
AR
SS
O
N
HAMAS Félagar í samtökum Hamas í full-
um herklæðum.
Átök á Gaza-svæðinu:
firjátíu sárir og
einn látinn
GAZA Til skotbardaga kom milli
palestínskra lögreglumanna og
meðlima Hamas-samtakanna á
Gaza-svæðinu í gær.
Þetta er í fyrsta skipti sem til
átaka kemur síðan Ísraelar létu
Gaza í hendur Palestínumanna í
síðasta mánuði.
Einn palestínskur lögreglu-
maður lést og þrjátíu særðust.
Aðeins er vika síðan meðlimir
herskárra samtaka Palestínu-
manna hétu því að hætta að bera
vopn á almannafæri. ■
ÖRYGGISRÁÐ Fundur í Öryggisráðinu.
Öryggisráð SÞ:
Helmingur and-
vígur frambo›i
SKOÐANAKÖNNUN Aðeins 28 prósent
þeirra sem tóku þátt í nýlegum
Þjóðarpúlsi, skoðanakönnun á veg-
um Gallup, eru hlynntir framboði
Íslands til setu í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. Rúmur helmingur
þjóðarinnar eða 53 prósent eru and-
víg framboðinu. Nítján prósent tóku
ekki afstöðu.
Munur reyndist á afstöðu ef litið
var til stjórnmálaskoðana, en hlut-
fallslega fleiri þeirra sem sögðust
kjósa Framsóknarflokk voru
hlynntir framboðinu en þeirra sem
sögðust kjósa Sjálfstæðisflokk.
Ríkisútvarpið greindi frá. - saj
SAGA „Okkur þykir það afar und-
arlegt að forsætisnefnd Alþingis
skuli ekki hafa fundið einn einasta
sagnfræðing til að vinna þetta
verk,“ segir Guðni Thorlacius Jó-
hannesson, formaður Sagnfræð-
ingafélags Íslands, um þá ákvörð-
un nefndarinnar að fela Þorsteini
Pálssyni umsjón með ritun sögu
þingræðis á Íslandi.
„Við höfum verið að ráða ráð-
um okkar og munum gera betur
grein fyrir afstöðu okkar en eins
og svo oft áður þá snýst þetta ekki
um einstaklinga og viljum við
engan veginn kasta rýrð á Þor-
stein,“ bætir hann við. Félagið
mun væntanlega senda frá sér
ályktun fundarins í dag.
Forsætisnefnd Alþingis skip-
aði einnig þau Helga Skúla Kjart-
ansson, prófessor í sagnfræði við
Kennaraháskóla Íslands, og Ragn-
hildi Helgadóttur, lektor í stjórn-
skipunarrétti við Háskólann í
Reykjavík, í ritnefnd vegna þessa
verkefnis.
Bókin verður gefin út í tilefni
þess að öld er liðin frá upphafi
þingræðis hér á landi. - jse
Sagnfræðingafélag Íslands ætlar að álykta um ritun sögu þingræðis á Íslandi:
Undrast ákvör›un forsætisnefndar
GUÐNI THORLACIUS JÓHANNESSON
Guðni undrast það að forsætisnefnd
Alþingis skuli ekki hafa fundið neinn sagn-
fræðing til að hafa umsjón með ritun um
sögu þingræðis á Íslandi, en nefndin fól
Þorsteini Pálssyni verkefnið.
Ritsko›un
Sökum lögbanns sem sýslu-
maðurinn í Reykjavík setti á
skrif Fréttablaðsins sem
byggja á tölvupósti, sem með
einum eða öðrum hætti hefur
haft viðkomu hjá Jónínu Bene-
diktsdóttur, eru lesendur beðn-
ir að athuga að blaðið getur þar
með ekki skrifað fréttir um að-
draganda rannsóknar Baugs-
málsins eins og það hefði kosið
að gera. Sýslumaður hefur
bannað Fréttablaðinu að endur-
birta, í heild eða hluta, fyrri
fréttir um sama mál. Þar sem
fátt fréttnæmt var eftir óbirt í
þeim gögnum sem hald var lagt
á munu aðgerðir sýslumanns
ekki skaða fréttaskrifin eins
mikið og í fyrstu mætti ætla.
-ritstj.