Fréttablaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 75
23
Rick Parry segist ekki sjá eftir þvíað hafa ekki tekist að klófesta
Michael Owen áður
en hann gekk í rað-
ir Newcastle fyrir
17 milljónir punda.
„Það kom aldrei til
greina að borga
þessa upphæð fyrir
Owen. Við gátum
fengið Luis Garcia
og Xabi Alonso fyrir
þessa upphæð.
Hefðum við unnið Meistaradeildina
án þessara tveggja leikmanna? Ég
myndi ekki skipta á þeim sigri fyrir
neitt annað.“ Þrátt fyrir að hafa unn-
ið Meistaradeildina þá var gengi
Liverpool á síðustu leiktíð óstöðugt
en Parry vill sjá breytingar á því. „Að
vinna deildina er okkar markmið,
þrátt fyrir að við séum ekki að setja
nein tímamörk á það. Þetta félag
gerir kröfu um að berjast um titla
og ég mun gráta þegar sá dagur
kemur að við getum ekki keppt um
titla,“ sagði Parry.
Zat Knight hefur verið sektaður affélaginu fyrir að brjóta reglur fé-
lagsins en hann
var einnig settur
út úr leikmanna-
hópi liðsins fyrir
leikinn gegn
Man.Utd sem liðið
tapaði. Knight fór
á næturklúbb í
síðustu viku og
braut þar með
reglur félagsins og
það gat Chris
Coleman ekki
sætt sig við. „Zat Knight var settur út
úr leikmannahópi liðsins vegna
brots á agareglum. Ég er ekki búinn
að gera það upp við mig hvort hann
verði með í næsta leik, ég hef tvær
vikur til að ákveða það. Það eru
reglur sem menn þurfa að fylgja hjá
félaginu og þeir vita hverjar þær
eru,“ sagði Coleman.
ÚR SPORTINU
Ungu stelpurnar hennar Díönu
hafa slegi› í gegn í upphafi móts
HK hefur unni› fyrstu tvo leiki sína í DHL-deild kvenna í handbolta flar af sí›asta leik me› tíu mörkum
gegn Fram. fijálfarinn Díana Gu›jónsdóttir segist veri› me› grí›arlega efnilegar stelpur í li›inu.
HANDBOLTI Kvennalið HK í hand-
boltanum er að stíga sín fyrstu
spor í meistaraflokki en hefur
komið flestum á óvart með því að
vinna tvo fyrstu leiki sína í DHL-
deild kvenna.
HK vann Gróttu 30-26 fyrir
rúmri viku og fylgdi því síðan eft-
ir með tíu marka sigri á Fram, 30-
20, á þriðjudagskvöldið. „Við
bjuggum okkur vel undir þessa
tvo leiki og lögðum mikla áherslu
á þessa tvo heimaleiki. Allar götur
síðan ég sá leikjaniðuröðina ætl-
aði ég að vinna þessu tvo fyrstu
leiki. Okkur var spáð neðar en
þessi lið en vissum að við gætum
betur,“ sagði Díana Guðjónsdóttir,
þjálfari kvennaliðs HK. „Það var
tekin ákvörðun síðasta vor um að
taka þátt í vetur og við tókum
þessa ákvörðun í samráði við
stelpurnar. Það hjálpar líka að
vera með tvo útlendinga og ég er
ótrúlega heppin með þær og þá
sérstaklega félagslega. Þær eru
duglegar að leiðbeina stelpunum
og það skiptir rosalega miklu máli
að vera ekki með einhverja út-
lendinga sem eru erfiðir í um-
gengni.“
Hinn 17 ára gamli markvörður
liðsins hefur varið frábærlega í
fyrstu tveimur leikjunum, sam-
tals 48 skot eða 24 skot að meðal-
tali. Kolbrún varði 60% skota
Framliðsins á þriðjudaginn. „Það
voru einhverjir hissa á því að ég
ætlaði ekki að kaupa markmann
en ég er með tvo mjög góða mark-
menn,“ segir Díana spurð um Kol-
brúnu. „Það er annars alltaf ein-
hver stelpa sem kemur fram og
klárar fyrir okkur þessa leiki og
það er aldrei sami leikmaðurinn.
Þær hafa traust okkar á bekknum.
Þær vita það að leikurinn gengur
út á að það eru gerð mistök og við
verðum leyfa þeim að gera mistök
og læra af þeim og þroskast sem
leikmenn. Þess vegna eru þær
líka óhræddar við að taka af skar-
ið,“ segir Díana.
HK-liðið teflir fram tveimur
útlendingum, Auksé Vysni-
auskaité og Tatjönu Zukovsku, og
bera þær vissulega aðalábyrgðina
í leik liðsins en það var skemmti-
legt að sjá hvernig ungu stelpurn-
ar leystu það vel þegar Framliðið
tók þessar tvær úr umferð. Þar
fór fremst örvhenti hornamaður-
inn Rut Jónsdóttir sem á enn eftir
að fagna 15. afmælisdegi sínum.
Rut skoraði 7 mörk úr 8 skotum í
seinni hálfleiknum og sýndi að
þar er landsliðskona framtíðar-
innar á ferðinni. Systir hennar
Auður, sem er tveimur árum
eldri, sýndi einnig góð tilþrif og
þá sérstaklega á lokakafla fyrsta
leiksins þar sem hún skoraði flest
af sínum sex mörkum í þeim leik.
„Við vorum búin að setja okkur
ákveðin markmið og við höldum
okkur við þau. Nú verður maður
bara að vera þolinmóður því nú
reynir á okkur í næsta leik sem er
gegn Íslandsmeisturum Hauka,“
sagði Díana að lokum.
ooj@frettabladid.is
MÁNUDAGUR 3. október 2005
MÖRK HK Í FYRSTU TVEIMUR
LEIKJUNUM:
Arna Sif Pálsdóttir (17 ára) 14 mörk
Auksé Vysniauskaité (21 árs) 13 mörk
Tatjana Zukovska (33 ára) 10 mörk
Auður Jónsdóttir (17 ára) 7 mörk
Rut Jónsdóttir (15 ára) 7 mörk
Jóna S. Halldórsdóttir (16 ára) 3 mörk
Herdís Ósk Helgadóttir (20 ára) 2 mörk
Ásta K. Gunnarsdóttir (16 ára) 1 mark
Varin skot:
Kolbrún Ragnarsdóttir (17 ára) 48 varin