Fréttablaðið - 03.10.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
61,55 61,85
108,66 109,18
74,22 74,64
9,944 10,002
9,429 9,485
7,952 7,998
0,5427 0,5459
89,18 89,72
GENGI GJALDMIÐLA 30.09.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
104,2646
4 3. október 2005 MÁNUDAGUR
Aðildarviðræður Tyrkja við Evrópusambandið:
Utanríkisrá›herrar héldu ney›arfund
ESB Utanríkisráðherrar Evrópu-
sambandsins héldu neyðarfund í
gær vegna aðildarviðræðna
sambandsins við Tyrkland sem
hefjast eiga í dag. Vegna and-
stöðu nokkurra aðildarlanda
ESB er ekki ljóst hvort viðræð-
urnar geti hafist. Yfirvöld í
Tyklandi hafa hótað að slíta við-
ræðum vegna tillögu Austurrík-
ismanna sem vilja að Tyrkir
geri samstarfssamning við ESB
í stað þess að fá fulla aðild.
Forsætisráðherra Tyrkja,
Recep Tayyip Erdogan, sagði af
þessu tilefni að annað hvort yrði
sýndur pólitískur þroski og
Evrópusambandið yrði gert að
alþjóðlegu afli, eða það myndi
enda sem kristilegur klúbbur.
Utanríkisráðherra Breta, Jack
Straw, sagði í gær að hann vildi
að aðildarviðræðurnar færu
fram því að öðrum kosti væri
hætta á klofningi milli kristinna
og íslamskra þjóða.
Búist er við að aðildarviðræð-
ur ESB við Tyrki geti tekið allt
að tíu ár en Tyrkir þurfa að taka
upp fjölda laga og reglugerða
sambandsins.
Sextíu þúsund stuðningsmenn
þjóðernisflokksins MHP mót-
mæltu aðildinni í höfuðborginni
Ankara í gær en þrátt fyrir það
sýna kannanir að meirihluti Tyrkja
vill aðild að sambandinu.
- sgi
VIÐHALD NAUÐSYNLEGT Tillögu Sjálfstæð-
isflokksins um betrumbætur í Breiðholti
hefur verið slegið á frest.
Opin svæði í Breiðholti:
Hugmyndum
slegi› á frest
UMHVERFISMÁL Sjálfstæðismenn
vilja lagfæra sautján leiksvæði,
opin svæði, íþróttasvæði og skóla-
lóðir í Breiðholti. Kjartan
Magnússon borgarfulltrúi lagði
fram tillögu þess efnis á síðasta
fundi framkvæmdaráðs Reykja-
víkurborgar.
Að Kjartans sögn hafa Breið-
hyltingar verið að kvarta undan
ástandi svæðanna og viðhaldi á
skólalóðum og vilja að hlúð sé að
girðingum, netum í mörkum og
malbik lagfært.
Afgreiðslu tillögunnar var
frestað að ósk fulltrúa R-listans
en hún verður tekin fyrir í næstu
viku.
- smk
ELDGOS Björgunarmenn leita að fólki.
Eldogs í El Salvador:
Hundru› fl‡ja
heimili sín
ELDGOS Eldfjallið Ilamatepec
skammt frá borginni Santa Ana í
vesturhluta El Salvador byrjaði
að gjósa aðfaranótt laugardags
eftir að hafa legið í dvala í ára-
tugi. Mikið hraun flæðir frá fjall-
inu og gosmökkur hefur náð rúm-
lega fimmtán kílómetra hæð.
Í það minnsta tveir létust þeg-
ar skriður féllu í grennd við fjall-
ið, en hundruð manna hafa neyðst
til að flýja heimili sín vegna eld-
gossins. Eldfjallið er í rúmlega 60
kílómetra fjarlægð frá höfuð-
borginni San Salvador og eru
stjórnvöld í El Salvador að íhuga
frekari aðgerðir. - sgi
!
"
# $
$
%
&
'
(
'
)
"
(
*
+ *
,-.
)
**
#
/)
0123 '
0423
"
0523
"
0423 6 7 0823
"
0823 6 7 0923 7 0823 6 7 1023 6 7 1:23
"
1523
"
0423
1523 '
0;23 6 7 9023
+ '
,
'"
7$
<
"
"
<
"
"
7
=
$
=6
> "
"
="
=
6
"
= $
7$
'
#@)A@ B)AC(#@DE,,E
'
'
"
F
' "
$ ?
5GH
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
M
YN
D
/A
P
ÍRAK
BANDARÍSKUM HERMÖNNUM
RÆNT Samtök al-Kaída í Írak
segjast hafa tvo bandaríska
sjóliða í haldi. Samtökin vilja að
Bandaríkjaher sjái til þess að
konur sem tilheyra hópi súnníta
verði látnar lausar úr fangelsi. Ef
ekki verði gengið að kröfum
þeirra innan 24 klukkustunda fái
mennirnir ekki að snúa aftur til
síns heima.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
BORGAR ÞÓR NÝR FORMAÐUR
Borgar Þór Einarsson, lögfræð-
ingur var í gær kjörinn nýr for-
maður Sambands ungra sjálf-
stæðismanna á sambandsþingi fé-
lagsins í Stykkishólmi. Borgar
var einn í framboði til formanns
og mun hann gegna embættinu til
næsta sambandsþings sem verð-
ur árið 2007. Borgar hlaut 70,2
prósent greiddra atkvæða.
Björgunarsveitin á Skagaströnd:
Bátur dreginn
til hafnar
BJÖRGUN Línubáturinn Gefjun varð
vélarvana tæpum tuttugu sjómílum
utan við Skagaströnd um klukkan
hálfellefu í fyrrakvöld. Björgunar-
báturinn Húnabjörg lagði af stað
frá Skagaströnd um miðnætti og
kom með línubátinn í togi til hafnar
um klukkan fimm.
Guðmundur Björnsson, björgun-
armaður á Húnabjörg, segir að ann-
ar bátur hafi reynt að draga Gefjuni
en án árangurs. Drátturinn tókst þó
vel hjá Húnabjörgu þrátt fyrir leið-
indaveður.
Að sögn Guðmundar hefur
Húnabjörg dregið fjölmarga báta til
hafnar frá því hún kom til Skaga-
strandar í maí síðastliðnum. - jse
MÓMÆLA AÐILD Stuðningsmenn hægri-
sinnaða MHP-flokksins veifa tyrkneska fán-
anum á fjöldafundi í Ankara þar sem aðild
Tyrklands að Evrópusambandinu var mót-
mælt.
FORVAL „Þetta var frekar afger-
andi niðurstaða. Ég er fyrst og
fremst ánægð með að við skul-
um hafa komið standandi úr
okkar fyrsta prófkjöri,“ segir
Svandís Svavarsdóttir sem var
kosin til þess að leiða lista
vinstri grænna í komandi borg-
arstjórnarkosningum. Svandís
kveður það spennandi tækifæri
að fá að leiða listann. „Ég hef
mikla trú á öllum tíu fulltrúun-
um á listanum,“ segir Svandís.
Hún segir tímann vinna með
vinstri grænum því nú hafi
flokkurinn tækifæri til þess að
styrkja sína kosningabaráttu í
stað þess að bíða með prófkjör
og skapa þannig hættu á inn-
byrðis átökum á lokasprettin-
um.
„Auðvitað eru alltaf einhverj-
ir sem höfðu hugsað sér að gera
betur, hjá því verður ekki kom-
ist,“ segir Stefán Pálsson, for-
maður kjörstjórnar. Stefán segir
sér hafa komið á óvart við taln-
ingu hversu ólíkir kjörseðlarnir
voru. „Fólk virtist hafa gert upp
hug sinn á mjög ólíka vegu og
það leit ekki út fyrir að hópar
hefðu tekið sig saman um hvern-
ig skyldi kjósa,“ segir Stefán.
Hann segir mikið af nýju fólki á
listanum og því sé gott að hafa
tíma til stefnu fram að kosning-
um. Þetta fólk fái svigrúm til
þess að undirbúa sig fyrir hita
leiksins.
„Ég hefði viljað sjá meiri
þátttöku í þessu prófkjöri,“ seg-
ir Árni Þór Sigurðsson sem situr
í öðru sæti listans. Árni segir þó
að þar sem forval sem þetta sé
nýtt fyrir vinstri græna hafi
ekki verið auðvelt að gera sér í
hugarlund hvernig þátttakan
yrði. „Ég held að þetta sé bara
ansi góður listi.“
saj@frettabladid.is
Komum standandi
úr fyrsta prófkjörinu
Vinstrihreyfingin – grænt frambo› hefur loki› forvali fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar. Svokalla› fléttufyrirkomulag sér til fless a› kynin ra›ast
jafnt á listann. Svandís Svavarsdóttir fagnar sigri og mun lei›a listann.
LISTI VINSTRI GRÆNNA
til borgarstjórnarkosninga:
1. Svandís Svavarsdóttir – 277 atkv.
2. Árni Þór Sigurðsson – 167 atkv.
3. Þorleifur Gunnlaugsson – 160 atkv.
4. Sóley Tómasdóttir – 175 atkv.
5. Grímur Atlason – 177 atkv.
6. Ugla Egilsdóttir – 211atkv.
7. Ásta Þorleifsdóttir
8. Magnús Bergsson
9. Guðný Hildur Magnúsdóttir
10. Þorvaldur Þorvaldsson
Eins og sjá má hefur fléttufyrirkomulag
listans talsverð áhrif á uppstillinguna.
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Leiðir lista vinstri grænna í Reykjavík. Hún er fegin að hafa tím-
ann fyrir sér við undirbúning fyrir kosningabaráttuna.