Fréttablaðið - 03.10.2005, Side 16
Sigmar B. Hauksson, mat-
gæðingur og veiðimaður
eyðir stærstum hluta 55 ára
afmælisdags síns á ferða-
lagi. Hann er á leið heim frá
Spáni þar sem hann flutti
fyrirlestur um verkefnið
Spa city á ráðstefnu um
heilsutengda ferðaþjónustu.
Sigmar er framkvæmda-
stjóri verkefnisins Spa city
Reykjavík sem Reykjavík-
urborg, Orkuveita Reykja-
víkur og Íþrótta- og tóm-
stundaráð standa fyrir.
Verkefnið felst í því að
kynna heilsulindirnar í
Reykjavík, laugarnar og
heita vatnið.
Sigmar man sérstaklega
eftir einum afmælisdegi
fyrir um 20 árum. „Þegar ég
var fararstjóri í París og
hópurinn sem ég var með
var farinn heim fór ég einn
á veitingahús við hliðina á
járnbrautarstöð. Ég fór að
tala við fjóra Frakka sem
sátu nálægt mér. Þegar það
fréttist að ég ætti afmæli
slógu þeir upp veislu og það
var partí á veitingastaðnum
með kampavíni fram á
nótt,“ segir Sigmar sem
fannst þetta allsérstök af-
mælisveisla þar sem hann
þekkti ekki nokkurn mann.
Inntur um óskir er hann
fljótur til svars. „Mig mundi
langa í nýjan Pathfinder-
jeppa,“ segir Sigmar sem er
veiðimaður mikill og nýtir
allar lausar stundir til að
stunda bæði skot- og stang-
veiði. Hann fer til að mynda
á hverju ári til útlanda og
fór nú í ár til Skotlands að
veiða krónhirti. Hann á þó
enn eftir að láta drauminn
rætast og fara til Afríku.
„Ég miða að því að ná í
buffalóa,“ segir Sigmar sem
engin dýr drepur nema þau
sem hægt er að éta. „Það er
prinsipp hjá mér.“
Sigmar er formaður
Skotveiðifélags Íslands og
er því alsæll með að rjúpna-
veiðibanninu skuli vera
aflétt enda hefur hann
barist fyrir því frá því það
var sett fyrir tveimur árum.
Þar sem allur frítími Sig-
mars fer í veiði er nærtæk-
ast að spyrja hvað konunni
finnist um það. „Hún er að
fara að fá sér byssuleyfi
bráðum og er að fá meiri og
meiri áhuga,“ segir Sigmar
sem gaf henni byssu fyrir
nokkru. Þetta er því orðið
nokkurt fjölskyldusport
enda er yngsti sonur Sig-
mars kominn á kaf í þetta
líka. „Þetta er í genunum,
afi minn og pabbi voru mikl-
ir veiðimenn,“ segir Sigmar
sem verður mikið á ferðinni
á næstunni við að kynna
heilsulindir borgarinnar. ■
16 3. október 2005 MÁNUDAGUR
GORE VIDAL (1925- )
fæddist þennan dag.
Langar að ná í buffalóa
SIGMAR B. HAUKSSON MATGÆÐINGUR OG SKOTVEIÐIMAÐUR ER 55 ÁRA
„Hver sá Bandaríkjamaður sem vill og er
tilbúinn til að fara í forsetaframboð ætti
sjálfkrafa að vera útilokaður frá því.“
- Gore Vidal er þekktur bandarískur rithöfundur sem skrifar um mál
sem tengjast stjórnmálum, sögu og bókmenntum.
timamot@frettabladid.is
VEIÐIMAÐUR MIKILL Minnisstæðasta afmælisdaginn upplifði Sigmar
fyrir 20 árum þegar fjórir Frakkar sem hann þekkti ekki neitt héldu honum
veislu á veitingastað í París.
Á þessum degi árið 1944 brutu Þjóðverjar á bak aftur uppreisn sem
staðið hafði í tvo mánuði í pólsku borginni Varsjá. Pólska heimavarn-
arliðið og íbúar Varsjár risu upp gegn þýska hersetuliðinu þann 1.
ágúst árið 1944 þar sem talið var að herafli Sovétmanna myndi
koma til hjálpar og frelsa borgina. Heyrst hafði vopnagnýr rétt utan
við pólsku höfuðborgina stuttu áður þegar Sovétmenn áttust við
þýska herinn.
Andspyrnuhreyfingin notaði holræsakerfi borgarinnar til að ferðast
milli borgarhluta og til að koma skilaboðum milli manna. Ekkert
bólaði á sovéska hernum og eftir 63 daga vonlausa baráttu gáfust
heimamenn upp fyrir þýska hernum. Um fimmtán þúsund uppreisn-
armenn létust og um fjórðungur allra íbúa borgarinnar var myrtur.
Eftir uppgjöfina skipuðu Þjóðverjar öllum íbúunum að yfirgefa borg-
ina.
Rauði herinn kom til Varsjár í janúar 1945. Ekki voru raunir Póllands
þar með úti því Stalín hafði lítinn hug á að gera landið að lýðræðis-
legu ríki. Í mars árið 1945 höfðu Sovétríkin hernumið allt Pólland. VARSJÁ
ÞETTA GERÐIST > 3. OKTÓBER 1944 MERKISATBURÐIR
1542 Gissur Einarsson er vígður
Skálholtsbiskup, sá fyrsti í
lútherskum sið.
1932 Írak hlýtur sjálfstæði frá
Bretum.
1975 Gná, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar hrapar í Skálafelli
en enginn slasast.
1981 Fangar í Maze-fangelsinu í
Írlandi hætta hungurverk-
falli eftir sjö mánuði og tíu
dauðsföll.
1990 Austur- og Vestur-Þýska-
land sameinast á ný.
1995 Tilkynnt er að O.J. Simpson
hafi verið fundinn saklaus.
1996 Kvikmyndin Þar sem
djöflaeyjan rís, eftir Friðrik
Þór Friðriksson, er frum-
sýnd.
Uppreisnin í Varsjá brotin á bak aftur
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
www.steinsmidjan.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
Jóna Vilborg Pétursdóttir
Fannborg 1, Kópavogi, áður til heimilis
á Siglufirði,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn
4.10 kl. 13.00.
Jóhann Örn Matthíasson Hulda Ágústsdóttir
Elísabet Kristjana Matthíasdóttir Jón Einar Valgeirsson
Hjördís Sigurbjörg Matthíasdóttir Einar Þór Sigurjónsson
Pétur Björgvin Matthíasson Ólafía Einarsdóttir
Halldóra Sigurjóna Matthíasdóttir Snævar Valentínus
Vagnsson
Matthildur Guðmunda Matthíasdóttir Gunnar Júlíus Jónsson
Stella María Matthíasdóttir Ásgeir Þórðarson
Kristján Jóhann Matthíasson Sigríður Halldóra
Ragnarsdóttir
Braghildur Sif Matthíasdóttir Ásgrímur Ari Jósefsson
barnabörn og barnabarnabörn.
ANDLÁT
Friðrik Th. Ingþórsson, Blásölum
24, Kópavogi, lést á Landspítal-
anum við Hringbraut föstudaginn
16. september. Útförin hefur farið
fram.
Ingjaldur Kjartansson, síðast til
heimilis á Hringbraut 50, andað-
ist sunnudaginn 25. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hjálmar Guðbjörnsson bifreiða-
stjóri, Kleppsvegi 120, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hring-
braut mánudaginn 26. septem-
ber.
Guðmundur Bjarnason vélstjóri,
Háaleitisbraut 79, Reykjavík, and-
aðist á gjörgæsludeild Landspít-
alans við Hringbraut miðvikudag-
inn 28. september.
Ragnar Þorsteinsson, Efstasundi
23, Reykjavík, lést á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi fimmtu-
daginn 29. september.
Reynir Ríkharðsson, Fellsási 9a,
Mosfellsbæ, lést á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi föstu-
daginn 30. september.
!
"
#
"
# "
$
%#& ' ( )*' ) + #
,
$%&'()*+,"-*+%)./0%
)12$+*3-4'%-%05667
BRÚ‹HJÓN
Þann 16. júlí síðastliðinn voru
gefin saman af séra Bjarna Karls-
syni brúðhjónin Unnur Mjöll S.
Leifsdóttir og Einar Þór Gúst-
afsson.
JAR‹ARFARIR
13.00 Þuríður Margrét Georgs-
dóttir verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju.
13.00 Svavar Á. Sigurðsson,
Norðurási 4, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Ár-
bæjarkirkju.
13.30 Aðalbjörg Halldórsdóttir
frá Grenjaðarstað, verður
jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju.
AFMÆLI
Silja Aðalsteins-
dóttir bókmennta-
fræðingur er 62
ára.
Tolli (Þorlákur
Kristinsson) list-
málari er 52 ára.
Róbert Snorrason leikari er 35
ára.