Fréttablaðið - 03.10.2005, Qupperneq 82
Tölvuleikir eru orðnir leiðandi í
afþreyingariðnaðinum í dag.
Tölvuleikir velta miklu meiru en
kvikmyndaiðnaðurinn gerir og
markhópurinn fyrir tölvuleiki
breikkar með hverri kynslóð. Iðn-
aðurinn hefur lengi verið gagn-
rýndur fyrir að ala upp heilu
hverfin af feitum unglingum sem
gera ekkert annað en að borða
sælgæti, drekka gos og spila
tölvuleiki. Með tilkomu EyeToy-
myndavélarinnar sem tengist við
Playstation 2 leikjavélina er loks-
ins komin hreyfing á málið.
Með EyeToy þurfa leikendur
að nota líkamann til að spila og er
stundum mikill hamagangur og
leikendur svitna við að spila leik-
ina. Nike hefur tekið EyeToy opn-
um örmum og hefur hannað
heilsuræktarprógramm fyrir
tölvuleikjahausa.
Heilsuræktarstöð heima í stofu
Sony og Nike hafa tekið höndum
saman og framleitt fyrsta heilsu-
leikinn fyrir Playstation 2. Sony
kom með tækniþekkinguna sína
að borðinu og Nike mætti með
sérfræðikunnáttu sína á sviði
heilsuræktar og úr varð mjög
metnaðarfullur leikur sem heitir
EyeToy Kinetic.
Í leiknum er fjöldinn allur af
heilsuæfingum sem þjálfa allan
líkamann og er hann tilvalinn fyr-
ir þá sem af einhverjum ástæðum
vilja ekki þjálfa líkamann í heilsu-
ræktarstöðvum eða hreinlega
vilja spara sér peninga en komast
samt í form.
Til þess að þjálfa heima í stofu
þarf eitt stykki Playstation 2 tölvu
ásamt EyeToy-myndavél, Kinetic-
forritið, gott gólfpláss og æf-
ingagalla.
Nike Motionworks lagði til að-
stöðu sína, en vanalega er stúdíóið
notað til að skoða íþróttamenn og
hreyfingar þeirra til að stemma
stigu við algengum íþróttameiðsl-
um. Motionworks er eitt full-
komnasta stúdíóið í þessum geira
og lagði teymið sitt af mörkum til
að nýta tæknina í þágu EyeToy
Kinetic. Árangurinn sést vel í
leiknum því allar hreyfingar hjá
þjálfurunum eru sérstaklega vel
gerðar og gefur titlinum það raun-
veruleikagildi sem Sony sóttist
eftir.
Hvað er verið að þjálfa
Þær eru fjórar aðaláherslurnar
sem Kinetic byggir á og er hægt
að þjálfa allan líkaman.
Cardio zone: Eróbikk og dans
Combat zone: Hreyfingar og æf-
ingar sem byggjast á bardaga-
íþróttum
Toning zone: Teygjuæfingar sem
styrkja vöðva líkamans
Mind and body zone: Öndunaræf-
ingar og slökunaræfingar
Í hverju æfingasvæði eru
margar æfingar sem eru hannað-
ar til að byggja upp líkamann.
Einnig er boðið upp á upphitun
sem er góður kostur til að forðast
algeng íþróttameiðsl eins og togn-
un.
Sérsniðið æfingaprógramm
Kinetic býður upp á sérsniðið æf-
ingaprógramm með einkaþjálfur-
um leiksins, Matt og Önnu.
Prógrammið nær yfir 12 vikur og
er árangurinn mældur og þjálfar-
arnir leiðbeina í öllum liðum
prógrammsins. Það er eins gott að
fylgja prógramminu eftir því
þjálfararnir láta þig vita ef þú
sinnir ekki æfingunum og ferð
eftir prógramminu. Æfinga-
prógrammið nýtir klukkuna í
Playstation 2 vélinni til að keyra
æfingadagskrána áfram og ef
ekki er mætt í æfingar riðlar það
prógramminu og þjálfararnir
verða fúlir.
Engin pressa
Það er að sjálfsögðu nokkuð
slæmt að vera ekki með raunveru-
legan þjálfara úr holdi og blóði
sem segir þátttakendum til en
markmiðið með leiknum er ekki
að þrýsta á þátttakendur að púla
og svitna. Með Kinetic er hægt að
hoppa beint inn í stakar æfingar
og þær eru margar hverjar mjög
skemmtilegar. Það þarf óneitan-
lega aga til að fara í gegnum tólf
vikna prógramm en kosturinn er
sá að hægt er að gera æfingarnar
heima algjörlega á eigin forsend-
um án þess að þurfa æfa innan um
fullar líkamsræktarstöðvar á há-
annatímum. Kinetic býður einnig
upp á sérsniðna tónlist fyrir æf-
ingarnar hvort sem það er slak-
andi tónlist fyrir Tai Chi eða
pumpandi danstónlist fyrir eró-
bikk og hægt er að velja milli mis-
munandi laga.
Allir geta æft
Þar sem EyeToy er orðið eitt vin-
sælasta fjölskyldutækið á Íslandi
fyrir Playstation 2 má fastlega bú-
ast við því að allir meðlimir í fjöl-
skyldunni geti bætt heilsuna
heimafyrir. Framsetningin á
Kinetic er mjög aðgengileg
þannig að unga kynslóðin getur al-
veg eins verið með eins og full-
orðna fólkið. Satt að segja er ekki
svo vitlaust að foreldrar leyfi
börnunum sínum að leika sér í
tölvuleikjum gegn því að þau spili
Kinetic í klukkutíma á hverjum
degi til að fá gagnlega hreyfingu.
Það er eitthvað sem gæti spornað
við óheilsusamlegu líferni og bætt
líkamsgetu á fjörugan máta.
Franz Gunnarsson
Heilsuleikur ry›ur sér til rúms
[ TÖLVULEIKUR ]
UMFJÖLLUN
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 4 í þrívídd
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Sýnd í Lúxus kl. 4, 6, 8 og 10
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 4 ÍSLENSKT TALSýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
★★★
-ÓHT Rás 2
★★★
-HJ MBL
★★★
-SV MBL
Sýnd kl. 4 og 6 Miðaverð 450 kr. ÍSLENSKT TAL
Óbeint framhald af
þáttaröðinni Jesú og
Jósefína sem var sýnd við
miklar vinsældir á Stöð 2
síðustu jól.
Skemmtileg ævintýramynd með íslensku tali.
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Red Eye kl. 6, 8 og 10
Óskar & Jósefína kl. 6
Bewitched kl. 8
The Man kl. 10
Sýnd kl. 8, og 10.20
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Til að hafa stjórn
á hrottum og
illmennum er sett
á laggirnar sérstök
sveit sem kallar sig
Night Watch!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
★★★
-ÓHT Rás 2
★★★
-ÓHT Rás 2
★★★
-HJ MBL
★★★
-SV MBL
Lost Children/Týndu börnin Sýnd kl. 6
Something like Happiness/Eins konar
hamingja Sýnd kl. 6
Shark in the Head/Hákarl í höfðinu Sýnd kl. 8
Bed Stories/Rekkjusögurdraumur Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 6 ÍSLENSKT TAL
Óbeint framhald af
þáttaröðinni Jesú og
Jósefína sem var sýnd við
miklar vinsældir á Stöð 2
síðustu jól.
Skemmtileg ævintýramynd með íslensku tali.
SIRKUS NÝ DAGSKRÁ Í OKTÓBER!
FYLGSTU MEÐ.
THE CUT
MÁNUDAGA KL 22.00
WEEDS
FIMMTUDAGA KL 21.30
VEGGFÓÐUR
MÁNUDAGA KL 21.00
FASHION TV
MÁNUDAGA KL 20.30
ÁSTARFLEYIÐ
BYRJAR FIMMTUDAGINN 20. OKTÓBER