Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.10.2005, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 19.10.2005, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN6 Ú T L Ö N D Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Viðskiptatímaritið Financial Times birti í síðasta riti sínu lista yfir 25 ríkustu menn heims. Heildarverðmæti eigna milljarða- mæringanna er 320 milljarðar bandaríkjadala. Í umfjöllun blaðs- ins kemur fram að þeir einstak- lingar sem valdir voru eru ekki einungis ríkir og valdamiklir heldur hafi þeir stuðlað að því að breyta hugsunarhætti, lífsháttum og vinnuháttum fólks. Eftir sem áður trónir Bill Gates á toppi listans sem langrík- asti maður heims og mikill mann- vinur. Steve Jobs, stofnandi Apple, færist hratt nærri honum og fer upp úr sjötta sæti í fyrra. Það er velgengni iPod-spilarans sem kemur honum þangað. Ekki sér fyrir endann á þeirri vel- gengni og því gæti hann fljótlega farið að gera tilkall til fyrsta sæt- isins. Listinn sýnir sem fyrr að bandarísku tölvufyrirtækin eiga vinninginn en fyrstu fjögur sætin verma milljarðamæringar beint út úr Silicon Valley. Nýir á listan- um eru einmitt vinirnir Larry Page og Sergey Brin sem stofn- uðu Google-leitarvélina. Annað sem vekur athygli og hefur breyst frá árinu 2004 er að það eru helmingi fleiri Evrópu- menn á listanum, helmingi færri pólitíkusar og engin kona. Aðferð- irnar við að mæla eignir auðjöfra eru misjafnar og því ber ekki öll- um saman um hverjir skulu verma sæti lista sem þessa. Víst þykir þó að auður og áhrif þeirra allra eru óneitanlega mikil. 19. október árið 1987 hefur oft verið kallaður „svarti mánudag- urinn“. Á þeim degi hrundi Dow Jones-vísitalan skyndilega um 22,6 prósent sem er mesta lækk- un á einum degi í sögu verð- bréfamarkaða. Lækkunin ein- skorðaðist ekki bara við Banda- ríkin heldur endurspeglaðist hún í mörkuðum um allan heim. Í lok október þetta ár höfðu verðbréfamarkaðir í Ástralíu fallið um 41,8 prósent, í Kanada um 22,5 prósent, í Hong Kong um 45,8 prósent og Bretlandi um 26,4 prósent. Hrunið þennan dag er svipað nokkurri dulúð þar sem engar sérstakar fréttir komu upp í að- draganda þess. Menn rökræða enn nú, átján árum síðar, um ástæður fyrir hruninu en enn sem komið er er ekki hægt að benda á eina ákveðna ástæðu fyrir atburðinum. Ofmat bréf- anna, lítill seljanleiki og sál- fræði markaðarins eru meðal þeirra skýringa sem voru nefnd- ar. Sú vinsælasta var kerfis- bundnar fjárfestingar þar sem tölvur voru notaðar við að selja eða kaupa mikið magn bréfa á kerfisbundinn hátt. Einhverjar þessara tilgáta eru taldar hljóta að skýra það hvers vegna hrunið varð þennan dag. Hins vegar ber mönnum ekki saman um ástæð- ur þess af hverju það gerðist ekki einhvern annan dag, hvers vegna þetta gerðist svo hratt og hvers vegna það teygði sig yfir á markaði annarra landa en ein- skorðaðist ekki við Bandaríkin. Í kjölfar hrunsins voru höml- ur settar á viðskipti á mörkuð- um, að miklum hluta til vegna þess að tölvukerfi þessa tíma voru ekki nógu sterk til að anna öllum þeim pöntunum sem hrönnuðust upp við tíðindin. Það gaf seðlabönkum tíma til að spýta fjármagni inn á markað- inn til að hægja á frekari lækk- unum. Menn velta því fyrir sér hvað myndi gerast ef slíkt hrun ætti sér stað í dag, nú þegar tölvutækninni hefur fleygt nægilega fram til að valda slíku álagi. - hhs S Ö G U H O R N I Ð Svarti mánudagurinn -um víða veröld Galdurinn er að láta okkur vinna fyrir þig ÍS LE N SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S JO N 22 57 2 1 0/ 20 03 Skipasendingar Flugsendingar Hraðsendingar Vörumiðstöð Tollafgreiðsla Akstursþjónusta Útflutningur Kjalarvogi • Sími 535 8000 jonar@jonar.is • www.jonar.is JÓNAR TRANSPORT bjóða alhliða flutnings þjónustu í samstarfi við bestu flutnings aðila sem völ er á, bæði hérlendis og erlendis. Þéttriðið þjónustu net um allan heim tryggir flýti, öryggi, hagstæð gjöld og góða vörumeð höndlun frá verksmiðju vegg og heim í hlað. Ríkastir í heimi Financial Times hefur valið 25 ríkustu menn heims Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting miðill gjaldmiðils) BTC Búlgaría 10,52 Lev 37,37 -6,64% Carnegie Svíþjóð 97,00 SEK 7,76 -3,46% Cherryföretag Svíþjóð 29,50 SEK 7,76 -0,78% deCode Bandaríkin 8,17 USD 60,97 1,67% EasyJet Bretland 2,81 Pund 107,21 -5,47% Finnair Finnland 10,60 EUR 73,38 -4,21% French Connection Bretland 2,51 Pund 107,21 -1,48% Intrum Justitia Svíþjóð 67,25 SEK 7,76 -6,96% Keops Danmörk 20,20 DKR 9,83 -8,98% Low & Bonar Bretland 1,09 Pund 107,21 -4,96% NWF Bretland 6,35 Pund 107,21 2,64% Sampo Finnland 12,70 EUR 73,38 -6,10% Saunalahti Finnland 2,39 EUR 73,38 -4,90% Scribona Svíþjóð 15,70 SEK 7,76 -6,06% Skandia Svíþjóð 39,90 SEK 7,76 -2,71% Miðað við gengi bréfa og gjaldmiðla á mánudag Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 0 8 , 7 9 - 4 , 9 3 % HRUN DOW JONES-VÍSITÖLUNNAR 19. OKTÓBER 1987. Hrun vísitölunnar endurkastaðist um heim allan og hafði mikil áhrif á verðbréfamarkaði í Ástralíu, Kanada, Hong Kong og Bretlandi. Evrópskir hlutabréfamarkaðir hækkuðu á mánudag. Þar átti hollenski raftækja- framleiðandinn Philips hlut að máli eftir að hafa farið fram úr spám fyrir þriðja ársfjórðung. Hlutabréf í félaginu hækk- uðu um þrjú prósent við fréttirnar. Hluta- bréf í olíufyrirtækjunum Royal Dutch Shell og Total hækkuðu hjá hvoru um sig um 2 prósent eftir að hráolíuverð hækk- aði vegna hræðslu um yfirvofandi storm í Mexíkóflóa. Auk þess hækkuðu bréf írska lyfjaframleiðandans Elan Corp um níu prósent í kjölfar fregna um að lyfið Tysabri hafi staðist öryggispróf. - hhs Philips fram úr væntingum 1. Bill Gates, stjórnarformaður og fram- kvæmdastjóri Microsoft 2. Steve Jobs, einn stofnenda og fram- kvæmdastjóri Apple 3. Pierre Omidyar, stofnandi og stjórn- arformaður eBay 4. Sergey Brin og Larry Page, stofn- endur Google 5. Rupert Murdoch, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri News Cor- poration 6. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York og stofnandi Bloomberg 7. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og stofnandi of Fininvest 8. George Soros, vogunarsjóðsstjóri og mannvinur 9. Carlos Slim Helu símaauðjöfur 10. Azim Premji, stjórnarformaður Wipro 11. Lakshmi Mittal, stjórnarformaður Mittal Steel Company 12. Warren Buffett, framkvæmdastjóri Berkshire Hathaway 13. Richard Mellon Scaife, útgefandi og mannvinur 14. Thaksin Shinawatra, forsætisráð- herra Taílands 15. Gordon Moore, fyrrum stjórnarfor- maður Intel 16. Roman Abramovich, rússneskur kaupsýslumaður og eigandi Chelsea 17. Ted Turner, fjölmiðlakóngur og mannvinur 18. Bernard Arnault, stjórnarformaður, framkvæmdastjóri og stærsti hlut- hafi LVMH 19. John de Mol, fjölmiðlastórlax 20. Larry Ellison, einn stofnenda og framkvæmdastjóri Oracle 21. Michael Dell, stjórnarformaður Dell 22. Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA 23. Lee Kun-hee, stjórnarformaður Samsung Group 24. Hasso Plattner, einn stofnenda og stjórnarformaður SAP 25. Li Ka-shing, stjórnarformaður Hutchison Whampoa BILL GATES ER RÍKASTUR Stofnandi, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Microsoft. Eignir hans eru metnar upp á 51 milljarð bandaríkjadala. STEVE JOBS ER RÍKARI Framkvæmda- stjóri Apple. Virði eigna hans er 3 milljarðar bandaríkjadala. PIERRE OMIDYAR ER RÍKUR Stofnandi og stjórnarformaður eBay. Heildarverðmæti eigna hans er 10 milljarðar bandaríkjadala. 2 5 r í k u s t u m e n n h e i m s Baráttan um flugfarþega hefur nú tekið nýja stefnu. Þetta kemur fram á viðskiptasíðu BBC. Hún hefur hingað til að mestu staðið um lággjaldaflugið en er nú að færast yfir á dýrari endann. Flugfélögin Eos og Maxjet hafa tilkynnt að þau ætli að hefja flug milli JFK og Stansted þar sem eingöngu er boðið upp á við- skiptafarrými. Verður fyrsta slíka ferðin farin á fimmtudag. Flugfélögin vonast með þessu til þess að krækja í vænan hluta við- skiptavina British Airways og Virgin Atlantic sem hingað til hafa nánast verið ein um hituna í flugi á viðskiptafarrými á þess- ari flugleið. Hugmyndir fyrirtækjanna tveggja eru ekki að öllu leyti þær sömu. Eos segir að tilfinning við- skiptavinarins verði að hann sé staddur í einkaþotu. Maxjet seg- ist hins vegar vera að hefja fyrsta lággjalda viðskiptaflugið. Sérfræðingar eru mishrifnir af hugmyndunum og telja að ýmsar hindranir verði á vegi flugfélag- anna. Líklegt sé að viðskipta- ferðalangar setji það fyrir sig að fara á Stansted, aðeins eitt flug á dag sé ekki nógu sveigjanlegur kostur og það skorti einhvers konar punktakerfi sem þessi hóp- ur nýtir sér að miklu leyti. - hhs Fljúgast á í háloftunum Lítil flugfélög ögra flugrisunum BA og Virgin Atlantic BRITISH AIRWAYS MÁ VARA SIG. Tvö flugfélög eru að hefja flug milli JFK og Stan- sted þar sem eingöngu er boðið upp á við- skiptafarrými.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.