Fréttablaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 34
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN10
F R É T T A S K Ý R I N G
Með kaupum Actavis á samheitalyfjastarf-
semi Alpharma er Actavis orðið fjórða
stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi.
Ásýnd fyrirtækisins breytist einnig talsvert
við kaupin og vægi Mið- og Austur Evrópu
minnkar í sölu félagsins. „Við verðum eftir
kaupin með um 40 prósent af sölunni í Vestur-
Evrópu og um 35 prósent í Bandaríkjunum,“
segir Róbert Wessman, forstjóri Actavis.
Kaupin eru þau stærstu sem Actavis hefur
gert. Um fimmtíu milljarðar eru greiddir fyr-
ir fyrirtækið, en heildarfjármögnun með
skuldum félagsins nemur um hundrað millj-
örðum króna. Þetta eru sjöttu kaup fyrirtæk-
isins á árinu. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á
undanförnum árum. Bæði með innri vexti og
með kaupum á fyrirtækjum. Upp á síðkastið
hefur hægt á innri vexti, en áætlanir félags-
ins gera ráð fyrir góðum vexti á næstu tveim-
ur árum. Breytingin á fyrirtækinu er mikil á
skömmum tíma. Árið 1999 velti félagið 57
milljónum evra, var einungis með starfsemi á
Íslandi. Starfsmenn voru 146. Þegar kaupin
verða endanlega frágengin í lok þessa árs
blasir við eitt af leiðandi fyrirtækjum heims-
ins í samheitalyfjaiðnaðnum. Áætluð velta
næsta árs er 1,2 milljarðar evra og starfs-
menn verða tíu þúsund í 32 löndum.
FÓTFESTA Á STÆRSTA MARKAÐNUM
Actavis hefur lengi haft það á stefnuskránni
að koma sér fyrir á Bandaríkjamarkaði sem
er stærsti markaður í heimi fyrir samheita-
lyf. Fyrstu skrefin voru stigin í maí þegar fé-
lagið keypti samheitalyfjafyrirtækið Amide.
Með kaupunum nú verður Actavis í áttunda
sæti hvað varðar markaðshlutdeild á Banda-
ríkjamarkaði. Félagið er á öllum markaðs-
svæðum sínum meðal tíu efstu. Stækkun fyr-
irtækisins og sterkari markaðsstaða skiptir
miklu. Þróunin í samheitalyfjageiranum er
eins og í mörgum öðrum greinum sú að fyrir-
tækin verða færri og stærri. Markaðshlut-
deildin á heimsvísu verður eftir kaupin 3,9
prósent. Langur vegur er í tvö stærstu félög-
in sem eru Teva & Ivax með 12,8 prósenta
markaðshlutdeild á heimsvísu og Sandoz sem
er með 11,1 prósent hlutdeild. Þriðja sætið er
ekki svo langt undan þar situr Merck Kgaa
sem er með 5,1 prósent markaðshlutdeild. Ef
horft er til vaxtar Actavis annars vegar og
Merck Kgaa hins vegar er ekki óvarlegt að
álykta að barátta um þriðja sætið gæti harðn-
að áður en langt um líður. „Við erum að kom-
ast í toppendann á öllum mörkuðum sem er
mikilvægt fyrir okkur,“ segir Róbert. Hann
segir verðið sem greitt var fyrir fyrirtækið
gott. Ef miðað er við veltu og framlegð síð-
asta árs er verðið hátt, en reksturinn hefur
batnað verulega og miðað við rekstur þessa
árs er verðið hagstætt fyrir Actavis. Róbert
vill hins vegar ekki tjá sig frekar um það.
MINNI ÁHÆTTA
Alpharma er með framleiðslu í Bandaríkjun-
um, Noregi, Bretlandi, Kína og Indónesíu. Ró-
bert segir að framleiðsla Alpharma sé hag-
kvæm. Stærð verksmiðjunnar í Bretlandi
geri hana álíka hagkvæma og verksmiðju
Actavis á Möltu, þar sem launakostnaður er
mun lægri. Róbert segir ljóst að samlegð og
hagræðing sé talsverð í lyfjaframleiðslunni.
Afkastagetan verða 24 milljarðar taflna.
Vöruframboðið breikkar, en með sameiningu
verður til félag með 600 lyf í sölu og önnur
Breytt ásýnd Actavis
Actavis hefur á sex árum breyst úr litlu íslensku samheitalyfjafyrirtæki með 146 manns í vinnu í al-
þjóðlegt stórfyrirtæki með tíu þúsund starfsmenn og áætlaða veltu upp á hátt í hundrað milljarða.
Actavis er nú fjórða stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims og þriðja sætið er ekki langt undan. Hafliði
Helgason kynnti sér nýjustu fyrirtækjakaup Actavis sem eru þau stærstu hingað til.
SAMEINAÐIR Róbert Wessman, forstjóri
Actavis og Fred Lynch, framkvæmdastjóri
samheitalyfjasviðs Alpharma. Fyrirtækin
falla vel saman og skörun er tiltölulega lít-
il. Með sameiningunni njóta félögin mis-
munandi styrks hvors um sig á ólíkum
mörkuðum. Actavis nýtur mikillar fram-
leiðslugetu Alpharma og breidd vörufram-
boðs sameinaðs félags er mikil.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ei
ða
Árið 1999 velti
félagið 57 millj-
ónum evra, var
einungis með
starfsemi á Ís-
landi. Starfs-
menn voru 146.
Þegar kaupin
verða endanlega
frágengin í lok
þessa árs blasir
við eitt af leið-
andi fyrirtækjum
heimsins í sam-
heitalyfjaiðnaðn-
um. Áætluð velta
næsta árs er 1,2
milljarðar evra
og starfsmenn
verða tíu þúsund
í 32 löndum.
„Við erum að
þynna út hlutféð,
en getum kippt
því til baka. Mið-
að við arðsemi
og sjóðstreymi
félagsins gerum
við ráð fyrir að
félagið þoli
þessa skuldsetn-
ingu án þess að
auka hlutafé inn-
an næstu átján
mánaða.“