Fréttablaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 35
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 11
F R É T T A S K Ý R I N G
200 í þróun. Næmi fyrirtækisins
fyrir árangri einstakra lyfja
minnkar, auk þess sem fleiri
markaðir draga úr áhættu í
rekstrinum. Auk þess opnast nýir
markaðir svo sem Kína og
Indónesía.
Með kaupunum ríflega tvö-
faldast velta Actavis. Framundan
er samþætting starfsemi fyrir-
tækjanna og mun nýráðinn að-
stoðarforstjóri Actavis, Svafa
Grönfeld, leiða þá vinnu. „Við
reiknum með að tíu manns frá
hvoru fyrirtæki fyrir sig muni
einbeita sér að samþættingu
starfseminnar.“ Róbert segir
uppbyggingu fyrirtækjanna líka
sem ætti að einfalda þá vinnu.
Hann vill ekki gefa neitt út á
framtíð stjórnenda Alpharma.
Það sé seinni tíma ákvörðun.
Fred Lynch, framkvæmda-
stjóri samheitalyfjasviðs hjá
Alpharma, tók við félaginu á erf-
iðum tímum. Honum hefur tekist
á undanförnum misserum ásamt
sínu fólki að bæta rekstrarárang-
urinn talsvert sem meðal annars
hefur birst í miklum hækkunum
á gengi félagsins sem er skráð á
New York Stock Exchange. Talið
er líklegt að áfram verði sóst
eftir kröftum hans og annarra
lykilstjórnenda. Fred Lynch
segir að til hafi staðið að selja
þennan hluta fyrirtækisins um
langt skeið. „Salan til Actavis
gekk hins vegar fremur hratt
fyrir sig.“ Hann segir að fyrir-
tækin falli mjög vel saman. „Við
höfum sterka stöðu í Vestur-Evr-
ópu og í Bandaríkjunum, meðan
Actavis er með sterka stöðu í
Mið-Evrópu og Austur-Evrópu.“
NÝUNG Í FJÁRMÖGNUN
Heildarfjármögnun nemur 105
milljörðum króna og er stærstur
hlutinn lán sem tryggð eru af al-
þjóðlega fjárfestingarbankanum
UBS. Lánin eru með 0,9 prósenta
álagi á millibankavexti í evrum
og geta lækkað ef tilskilinn
rekstrarárangur næst. Athygli
vekur að fjármögnun íslensku
bankanna, Íslandsbanka og
Landsbankans er í formi hluta-
bréfa sem Actavis hefur kaup-
rétt að næstu fimm og hálft ár.
Bréfin bera 11 prósenta vexti
sem hækka um eitt prósent á ári
eftir fyrsta árið. Búast má við því
að vilji sé til þess hjá stjórn fé-
lagsins að nýta kaupréttinn.
Verði enginn kaupréttur nýttur
munu bankarnir eignast 39 pró-
senta hlut í fyrirtækinu. „Við
erum að þynna út hlutféð, en get-
um kippt því til baka. Miðað við
arðsemi og sjóðstreymi félagsins
gerum við ráð fyrir að félagið
þoli þessa skuldsetningu án þess
að auka hlutafé innan næstu
átján mánaða,“ segir Róbert.
S T Æ R S T U S A M H E I T A -
L Y F J A F Y R I R T Æ K I H E I M S
E F T I R M A R K A Ð S H L U T D E I L D
Teva & Ivax 12,8%
Sandoz 11,1%
Merck Kgaa 5,1%
Alpharma & Actavis 3,9%
Ratiopharm 3,8%
S T A Ð A S A M E I N A Ð S
F É L A G S Í M I S M U N A N D I
L Ö N D U M
Ísland 1. sæti
Noregur 2. sæti
Danmörk 3. sæti
Svíþjóð 4. sæti
Finnland 4. sæti
Búlgaría 1. sæti
Tyrkland 5. sæti
Þýskaland 6. sæti
Bretland 4. sæti
Bandaríkin 8. sæti
Rússland 10. sæti
Serbía 3. sæti
Frjáls verslun gaf á dögunum út
lista sinn yfir 300 stærstu fyrir-
tæki landsins. Athygli vekur að
Kaupþing banki trónir á toppnum
og er það í fyrsta sinn sem sjáv-
arútvegsrisarnir sitja ekki í topp-
sætinu. Íslandsbanki vermir
fjórða sætið og Landsbankinn
það fimmta og sýnir þetta hversu
mikill drifkraftur hefur leyst úr
læðingi við einkavæðingu þeirra.
Mikill vöxtur einkennir
stærstu fyrirtæki landsins og
nam velta þeirra stærstu 789
milljörðum árið 2004 en var 607
milljarðar árið á undan. 28 fyrir-
tæki velta yfir tíu milljörðum
króna en á síðasta ári voru 25
fyrirtæki á aðallistanum sem
höfðu slíka veltu.
Þ A U T Í U F Y R I R T Æ K I S E M
G R E I Ð A H Æ S T U L A U N I N
Meðallaun í þús.
1. Huginn ehf. útgerð 8.225
2. Skagstrendingur hf. 7.877
3. MP Fjárfestingabanki 7.612
4. Kaupþing banki hf. 7.583
5. Bergur – Huginn ehf. 7.525
6. Stálskip ehf. 7.509
7. Fasteignafélagið Stoðir hf. 7.364
8. Ocean Direct (Sæberg SH) 6.660
9. G.Guðmundsson hf. (Ólafsfirði) 6.600
10. Útgerðarfélagið Frigg ehf. 6.142
Þ A U T Í U F Y R I R T Æ K I S E M
S K I L A M E S T U M H A G N A Ð I
Hagnaður í millj. f. skatta
1. Kaupþing banki hf. 22.495
2. Landsbanki Íslands 14.740
3. Íslandsbanki hf. 13.689
4. Burðarás hf. 11.538
5. Straumur fjárfestingarbanki hf. 7.745
6. Baugur Group hf. 7.344
7. Landsvirkjun 7.195
8. Actavis Group hf. 6.837
9. Ker hf. (ESSO) 4.819
10. Sjóvá – Almennar tryggingar hf. 4.332
300 stærstu