Fréttablaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 54
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN14
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Í upphafi þessa árs fékk Þór Sig-
fússon, framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs Íslands, heilræði sem
hefur síðan hefur verið honum
ofarlega í huga. Heilræðið var
„Láttu engan stela gleðinni af
þér“ og kom frá Ásgeiri Bolla
Kristinssonar athafnaskáldi. Þór
þykir heilræðið einstaklega gott
þar sem það endurspeglar þá
skoðun hans að oft á tíðum erum
við of gjörn á að leyfa einhverj-
um öðrum að ráða því hvernig
okkur líður.
Þór segir einnig lífsspeki sem
komin er frá Ragnari í Smára og
Davíð Sch. Þorsteinsson sagði
honum frá, eiga einkar vel við
sig. Ragnar var þekktur fyrir að
segja „Þetta var nú verri sagan.
Hvernig getum við grætt á
þessu?“ þegar vandamál steðj-
uðu að honum.
Einhverju sinni hafði salan á
Smára smjörlíki gengið illa um
nokkurt skeið, nýr keppinautur
hafði komið fram á sjónarsviðið,
líklega smjörlíkisgerðin Svanur,
og veruleg fjárhagsleg vandamál
blöstu við ef ekki væri hægt að
auka söluna. Ragnar sá hvert
stefndi að óbreyttu, fór niður í
Ellingsen og keypti sér svefn-
poka, tannbursta og rakvél. Síð-
an tók hann sér far á pokaplássi í
lest með strandferðaskipinu Súð-
inni í mánaðar söluferð. Þannig
fór hann hringinn í kringum
landið og heimsótti hvern ein-
asta kaupfélagsstjóra og kaup-
mann á landsbyggðinni. Ragnar
seldi þessi ósköp af Smára
smjörlíki, bjargaði fyrirtækinu
og fékk marga trygga viðskipta-
vini í leiðinni.
„Mér finnst alltaf mest krefj-
andi og gaman að leita nýrra
leiða úr erfiðri stöðu eða finna
allt aðra fleti á málum sem geta
stuðlað að eins konar vendingu.
Þess vegna á þessi speki Ragn-
ars í Smára vel við mig,“ segir
Þór.
B E S T A R Á Ð I Ð
Árið 2000 komust vinkonurnar
Hildur Hermóðsdóttir og Þóra
Ingólfsdóttir að því að þær
höfðu þann sameiginlega
draum að spreyta sig á eigin
rekstri. Báðar höfðu þær tölu-
verða reynslu af bókaútgáfu en
þær langaði að stofna útgáfu
þar sem sjónarmið kvenna réðu
ríkjum. Bækur fyrir konur voru
að þeirra mati vanræktur hluti í
bókaútgáfu þar sem konur lesa
töluvert meira en karlar. Úr varð
að þær réðust í verkefnið og um
vorið 2000 leit bókaútgáfan Salka
dagsins ljós með það að leiðar-
ljósi að gefa út bækur fyrir, um
og eftir konur. Strax það árið
komu út tíu titlar á vegum útgáf-
unnar.
Þær stöllur ráku fyrirtækið
saman í tvö ár en haustið 2002
keypti Hildur hlut Þóru og er nú
eini eigandi Sölku. Þá um haustið
hóf Kristín Birgisdóttir störf hjá
henni og hefur síðan verið henn-
ar hægri hönd og í sameiningu
vinna þær öll þau verk sem vinna
þarf innan útgáfunnar. Kjarna-
hugmynd útgáfunnar í dag er sú
sama og þær lögðu upp með í
upphafi þótt fókusinn hafi örlítið
víkkað út. „Maður er auðvitað
alltaf að þreifa sig áfram og mað-
ur þarf alltaf að finna eitthvað
sem maður hefur trú á að geta
lifað á,“ segir Hildur.
HUGUR, LÍKAMI OG SÁL
Síðastliðin tvö ár hefur Salka átt
góðu gengi að fagna og vaxið
hratt. Í fyrra komu út á vegum
útgáfunnar þrjátíu titlar. Titlarn-
ir eru tuttugu í ár en eru þó í raun
fleiri en árið á undan því sumar
bókanna koma út á fleiri en einu
tungumáli. Í ár fóru einnig stórar
bækur í framleiðslu sem tekur
langan tíma að vinna og eru
kostnaðarsamar í framleiðslu og
því mun meiri vinna í kringum
titlana nú heldur en oft áður.
Á vegum útgáfunnar er bóka-
klúbburinn Hugur, líkami og og
sál starfræktur en hjá honum
koma reglulega út sjálfsræktar-
bækur af ýmsum toga og heilsu-
tengt efni. Þessar bækur hafa
verið stór hluti af útgáfu Sölku
og hafa að Hildar sögn gengið
mjög vel. Til að mynda hafa bæk-
urnar Fegraðu líf þitt og Skyndi-
bitar fyrir sálina farið í prentun
þrisvar sinnum. Þær lenda á met-
sölulista hvað eftir annað og selj-
ast alltaf vel.
Þótt sjálfsræktarbækur fyrir
konur séu stór hluti framleiðsl-
unnar koma einnig annars konar
bækur út hjá útgáfunni. Má þar
nefna skáldsögur og barnabækur
eftir innlenda sem erlenda höf-
unda. Nú á dögunum kom út
ferðabókin Gamla góða Kaup-
mannahöfn eftir Guðlaug Arason
og bók um trúarbragðasögu, Hin
mörgu andlit trúarbragðanna,
eftir Þórhall Heimisson. Þær eru
báðar tvær eru eftir karlhöfunda
og höfða jafnt til beggja kynja.
Skáldskapur eftir íslenskar kon-
ur er hins vegar sérstakt áhuga-
mál hjá Sölku sem vonast til að
geta ræktað þá grein betur í nán-
ustu framtíð.
EKKI RÍKUR AF BÓKAÚTGÁFU
Hjá Sölku eru ásamt Hildi þrjár
manneskjur í fullu starfi og sú
fjórða er nýráðin til starfa. Hild-
ur vonast því til að frekari verka-
skipting verði möguleg með til-
komu hennar. Þar að auki eru
margir verktakar á snærum
Sölku en öll umbrotsvinna og
hönnunarvinna fer út úr húsi.
„Maður verður ekki ríkur af
bókaútgáfu, það er víst alveg á
hreinu,“ segir Hildur hlæjandi.
Mjög hár framleiðslukostnaður
háir bókaútgáfum á svo litlum
markaði. Reynt er að mæta háum
kostnaði með lágmarksvinnuafli
og því hafa þeir fjórir starfs-
menn sem þarna vinna í nógu að
snúast og þurfa að vera allt í öllu.
Með því að senda nánast alla
prentun úr landi standa vonir til
að ná endum saman því víða er-
lendis fást að sögn Hildar um
helmingi lægri verð en hér. Þótt
hún vildi gjarnan prenta hér sé
verðmunurinn of mikill til þess
að hún geti horft framhjá honum.
Á skrifstofunni er séð um allt
tengt útgáfunni, allt frá fram-
leiðslunni til dreifingarinnar.
Innan veggja Sölku er því allt
efni valið sem er gefið út, haldið
utan um framleiðsluna og dreif-
inguna, kynningarstarfið og allt
annað sem fellur til. Markaðs-
setningu sjá þær um sjálfar og
allir auglýsingatextar eru samdir
innanhúss. Þær verða alltaf að
vinna fyrir hverjum titli og
reyna að fá um hann umfjöllun
og er það að mestu í höndum
Kristínar sem sér um almanna-
tengslin.
JÓLAVERTÍÐIN KOMIN Á FULLT
Þessi jólin koma tíu titlar út frá
Sölku en að sögn Hildar er jóla-
vertíðin fyrir löngu farin af stað.
Mesta álagið í bókaútgáfunni er
frá september og fram að jólum.
Fyrst er það kapphlaupið um að
klára bækurnar og koma þeim í
prentun og svo kemur sölu-
mennskan og kynningarstarfið
strax í kjölfarið. Öllu máli skiptir
að koma bókunum fljótt á fram-
færi og helst að koma þeim inn á
metsölulista. Þær bækur fá betri
útstillingar í búðunum og hafa
því mikið forskot á aðrar sem
koma seinna.
Hildur segir það nokkuð snúið
að finna jafnvægi í hversu mikið
á að auglýsa. Hún hefur helst val-
ið að auglýsa í dagblöðum og fyr-
ir jólin er auglýst í sjónvarpi. Það
þarf alltaf að vega og meta en
henni finnst stundum að auglýs-
ingakostnaðurinn hirði alla inn-
komuna. Hún segist stundum
vera í vafa um hvort öll þessi
auglýsingamennska borgi sig en
bækur séu þess eðlis að hverjum
titli þarf að fylgja eftir og koma á
framfæri. Því eigi hún varla
nokkurra kosta völ.
Það eru ekki bara jólin sem
bjóða upp á möguleika í bókaút-
gáfunni. Í seinni tíð hefur bóksal-
an dreifst meira yfir allt árið og
Salka litur á sig sem heilsárs for-
lag. Tvö síðustu sumur hafa
Sölkukonur dreift auglýsinga-
bæklingi undir slagorðinu „Sum-
ar bækur eru sumarbækur“ um
bækur sem þeim finnst henta vel
sem sumarlesning og hefur það
reynst þeim vel. Það eru því víða
tækifæri og Salka er hvergi
nærri hætt að leita þau uppi.
RAGNAR ÞORGEIRSSON hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri hjá Pricewater-
houseCoopers frá
miðjum september.
Ragnar tekur við af
Jóni Steingrímssyni
sem nú gegnir starfi
fjármálastjóra hjá
Sjóvá. Ragnar er
fæddur árið 1966, menntaður rekstrar-
hagfræðingur og lauk mastersprófi frá
Álaborgarháskóla árið 2000. Ragnar var
áður framkvæmdastjóri Icepro, sam-
starfs um rafræn viðskipti. Hann er
kvæntur Guðríði Hlíf Aðalsteinsdóttur og
eiga þau fjögur börn.
DAVÍÐ BÚI HALLDÓRSSON, löggiltur end-
urskoðandi, hefur tekið við starfi for-
stöðumanns
Pricewaterhouse-
Coopers á Akureyri.
Davíð Búi er fæddur
árið 1977 og hóf störf
hjá PwC árið 2000.
Hann útskrifaðist frá
viðskiptadeild Há-
skóla Íslands vorið 2002 og lauk löggild-
ingarprófum til endurskoðunarstarfa á
árinu 2004. Eiginkona Davíðs er Erla
Björg Viðarsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Saman eiga þau eitt barn.
MIKAEL SKOGSBERG hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri DHL á Íslandi. Mikael
tekur við starfi Þórðar Hermanns Kol-
beinssonar, sem hef-
ur starfað hjá DHL í
Evrópu síðastliðin
fjórtán ár og hefur
víðtæka reynslu og
þekkingu af starf-
semi fyrirtækisins.
Hann hefur meðal
annars unnið sem stjórnandi hjá DHL og
í Belgíu.
KÁRI ÞÓR GUÐJÓNSSON hefur hafið störf
hjá Fyrirtækjaráðgjöf. Kári er viðskipta-
fræðingur (Cand.oecon) frá Háskóla Ís-
lands 1997. Hann hefur áralanga
reynslu úr upplýsingatæknigeiranum,
fyrst sem sölu- og markaðsstjóri Tölvu-
Mynda, síðar framkvæmdastjóri sölu-
og markaðssviðs Maritech Group og
sem rekstrarráðgjafi.
ELIISA KALOINEN hefur hafið störf sem
greiningaraðili hjá Fyrirtækjaráðgjöf Ís-
landsbanka í Reykjavík. Hún starfaði
áður sem viðskiptagreiningaraðili hjá
Nokia Networks. Eliisa lauk meistara-
prófi í verkfræði frá Tækniháskólanum í
Helsinki og er að ljúka meistaraprófi í
hagfræði frá Háskóla Íslands.
HÅKON KJÆRNES hefur hafið störf sem
greiningaraðili hjá Eignastýringu Ís-
landsbanka í Lúxemborg. Hann hefur að
undanförnu búið í London þaðan sem
hann er að ljúka mastersprófi í Shipp-
ing, Trade and Finance frá Cass
Business School. HILDUR HERMÓÐSDÓTTIR ER EIGANDI OG STOFNANDI BÓKAÚTGÁFUNNAR SÖLKU. Í ár koma út tuttugu titlar á vegum útgáf-
unnar, sumir á fleiri en einu tungumáli.
ÞÓR SIGFÚSSON, FRAMKVÆMDA-
STJÓRI VIÐSKIPTARÁÐS ÍSLANDS Þór
segir okkur oft of gjörn á að leyfa einhverj-
um öðrum að stjórna líðan okkar.
Láttu engan stela gleðinni
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ei
ða
Bókaútgáfan Salka
Ármúla 20
Stofnað 2000
Eigandi: Hildur Hermóðsdóttir
Starfsmenn: Fjórir
Bækur fyrir hug, líkama og sál
Hjá Sölku koma út bækur fyrir, um og eftir konur. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir hitti Hildi Her-
móðsdóttur og fékk að vita eitt og annað um útgáfu bóka.