Fréttablaðið - 19.10.2005, Side 58

Fréttablaðið - 19.10.2005, Side 58
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN18 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Theódóra hefur haft hugann við Smárann í Kópavogi undanfarin tíu ár eða allt frá því að hún og maður hennar voru með þeim fyrstu sem byggðu í Lindarhverfinu um miðjan síð- asta áratug. „Hér vil ég vera,“ segist hún hafa sagt eftir að hún hafði keyrt hring eftir hring um svæðið, sérstaklega þegar hún frétti af fyrirhugaðri verslunarmiðstöð sem stóð til að byggja í Kópavogsdalnum. Hún var einnig með fyrstu starfsmönnum Smáralindar. „Ég gekk á fund Pálma Kristins- sonar árið 2000, þegar fyrirtækið var til húsa í Hæðarsmára og byggingarframkvæmdir í fullum gangi, og sótti um starf.“ Í sumar tók hún við starfi markaðsstjóra af Erlu Friðriksdóttur, núverandi bæjarstjóra í Stykkishólmi. Theódóra segir að það hafi verið einstakt tækifæri að sjá þessa miklu byggingu verða að verslunarmiðstöð og mjög skemmtilegur tími þegar litið er um öxl. „Margir sem vinna í Smáralind hafa verið hér síðan húsið opnaði og höfum við eignast marga vini á þessum tíma.“ BEÐIÐ EFTIR JÓLUNUM Theódóra segir að fyrstu árin í Smáralind hafi verið erfið en verslunarmiðstöðin opnaði á þeim tíma sem verulega kreppti að í versl- un. Hins vegar fór að rofa til árið 2003 og frá þeim tíma hefur verið stöðug aukning. Hún áætlar að velta hafi aukist um 20 til 25 pró- sent á milli ára. Hún er spurð hvaðan þessi auking komi þegar haft er í huga að smásöluverslun hefur aðeins aukist um 8-10 prósent á milli ára. „Við hljótum að vera taka til okkar verslun annars staðar frá. Okkar aukna markaðshlutdeild á innlendum markaði og sala til ferðamanna er hluti af skýringunni. Síðan eru þessar hefð- bundnu verslunarferðir til útlanda á undan- haldi, úrval verslana á Íslandi er orðið það gott að við þurfum ekki að fara í verslunarferðir, við höfum allt sem þarf.“ Aðaltíminn í verslun er á næstu grösum og hjá mörgum stendur rekstur- inn og fellur með jólunum. „Skemmtilegasti tíminn er að fara í hönd en jólasalan hefst strax í nóvember. Undirbúningur hófst í september og stendur enn. Það skiptir gríðarlegu máli að standa vel að undirbúningnum en þetta verða fimmtu jólin hjá Smáralind. Upphaflega gáfu menn sér þrjú til fimm ár til að ná sér á strik. Þannig má segja að kaupmenn séu vel tilbún- ir og reiðubúnir undir jólasöluna þetta árið.“ Smáralindin gefur frá sér jólagjafahand- bók sem er nánast orðinn fastur liður í undir- búningi jólanna en efni hennar er annars veg- ar hugmyndir að jólagjöfum frá verslunum og hins vegar ýmiss konar umfjöllun um jóla- haldið. „Jólagjafahandbókin er hugsuð sem þjónusta við viðskiptavininn.“ Fyrir utan að skipuleggja jólaverslun stendur hún í ströngu við að leggja lokahönd á Legósýningu og krakkadaga sem fram fara í byrjun nóvember. „Sýningin er haldin í til- efni fimmtíu ára samstarfs Reykjalundar og Legós. Um risasýningu er að ræða sem flæð- ir um allt húsið.“ TAKA Á MÓTI ÞJÓÐINNI En í hverju felst starf markaðsstjóra Smára- lindar? Theódóra segir að þrennt einkenni starf sitt en það snúist fyrst og fremst um það að undirbúa húsið vel fyrir gestina, eða þjóð- ina eins og hún orðar það, með alls kyns af- þreyingu og uppákomum. Smáralind er af- þreyingarmiðstöð og tölur sýna að við- vera gesta hefur aukist í Smáralind. „Við mælum þennan tíma og viðveru- tími gesta okkar er alltaf að lengjast. Okkar starf er því að hlúa vel að gest- um okkar. Einnig eru sam- skipti við leigutaka og kaupmenn fyr- irferðarmikill þáttur í mínu starfi og svo auðvitað aug- lýsingamál almennt.“ Mikil áhersla er lögð á sýningar og viðburði í Vetr- argarðinum og á göngum og má þar nefna brúðkaupssýn- ingu, ostadaga, krakkadaga og kauphlaup Í byrjun nóvember leng- ist opnunartími Smáralindar á fimmtudögum og verða verslanir framvegis opnar til níu á kvöldin. „Við tókum þessa ákvörðun vegna óska viðskiptavina og leigutaka. Allir eru sammála um að þetta sé rétti dagurinn. Við- skiptavinir vita að fimmtu- dagar eru verslunardagar. Eflaust tekur það tíma fyrir fólk að átta sig á breyting- unni en við erum fullviss um að þetta muni skila sér vel þegar fram í sækir.“ Þegar við ræðum saman stendur yfir haustútsala. Hún er spurð hvort verslun snú- ist ekki of mikið um útsölur. „Maður heyrir oft rætt um það að útsölutímabil séu of löng og mörg. Því má ekki gleyma að íslensk versl- un er farin að taka æ meira mið af verslun er- lendis. Haustútsala eða „mid-season sale“ er þekkt fyrirbæri erlendis. Markmiðið með haustútsölu er meðal annars það að rýma fyr- ir jólavörum.“ ÚTÞENSLA SMÁRALINDAR Nú stendur til að stækka Smáralindina en á næsta ári hefjast framkvæmdir við viðbygg- ingu eða turn sem hugsaður er sem skrifstofu- og versl- unarrými. Stjórnendur Smáralindar telja að bygg- ingin muni efla verslun í húsinu með auknu flæði fólks. „Það er starfsmanna- vænt að tengja saman versl- unarsvæði og skrifstofur. Margir vilja vinna nálægt verslunarmiðstöðvum og vera í nálægð við þá þjón- ustu sem þær bjóða upp á.“ Theódóra er ekki í nokkrum vafa um framtíðar- möguleika Smáralindar. „Við erum miðsvæðis og hér er enn þá mikil uppbygging bæði á íbúðar- og atvinnuhús- næði. Eftirspurn eftir versl- unarrými í Smáralind er mik- il og margir kaupmenn eru á biðlista. Við erum bjartsýn á framtíðina og framundan eru góð tækifæri til að gera Smáralind að enn betri kosti í verslun og þjónustu,“ segir hún að lokum. A U R A S Á L I N Theódóra Þorsteinsdóttir Starf: Markaðsstjóri Smáralindar Fæðingardagur: 2. september 1969 Maki: Ólafur Viggósson Börn Eydís María f. 1994, Stefán Bjarki f. 1998 UNDIRBÝR HÚSIÐ FYRIR GESTI Theódóra Þorsteinsdóttir vinnur og býr í Smáranum. Hún hefur unnið hjá Smáralind frá upphafi og séð mikinn vöxt í húsinu frá opnun þess. Í þungamiðju verslunar Theódóra Þorsteinsdóttir, markaðsstjóri Smáralindar, stendur í ströngu þessa dagana við að skipuleggja jólin í verslunarmiðstöðinni. Hún segir að margt skýri þá miklu aukingu sem hefur orðið í Smáralind á árinu og húsið hafi alla burði til að vaxa frekar. Eggert Þór Aðalsteinsson hitti hana yfir hádegisverði. Fr ét ta bl að ið /V al li Hádegisverður fyrir tvo á T.G.I Friday’s Jarðarberjasalat með kjúklingi Kjúklingasamloka Drykkir Sódavatn Gold Medalist Smoothie Alls 3.300 krónur ▲ H Á D E G I S V E R Ð U R I N N Með Theódóru Þorsteinsdóttur markaðsstjóra Smáralindar Framboð í embætti Aurasálin lýsir því hér með yfir að hún gefur kost á sér til embættis sérstaks sakskóknara í Baugs- málinu. Það er von Aurasálarinn- ar að dómsmálaráðherra taki vel í þetta enda má telja fullvíst að ekki sé beinlínis slegist um þetta starf meðal annarra málsmet- andi aðila í samfélaginu. Reyndar er Aurasálin ekki form- lega lögfræðimenntuð en það ætti ekki að koma að sök. Hingað til virðist sérstök þekking á lög- fræði ekki hafa verið höfð í há- vegum við vinnslu málsins og Aurasálin sér engin rök fyrir því af hverju það eigi að breytast nú. Aurasálin mun í starfi sínu sem sérstakur ríkissaksóknari í Baugsmálinu engin grið gefa. Málið verður sótt af hörku og mun Aurasálin fyrst og fremst stefna að því að fá glæpamennina til að játa brot sín í vitnastúkunni eins og tíðkaðist hjá Ben Matlock. Það verður erfitt fyrir Björn Bjarnason að ganga framhjá um- sókn Aurasálarinnar um embætt- ið enda er hún, ólíkt flestum, hvorki óhæf né vanhæf til verks- ins. Aurasálin á engra annarlega hagsmuna að gæta – hið eina sem vakir fyrir henni er að koma þessum mönnum bak við lás og slá. Sama hvað það kostar. Baugsmálið hefur verið ákaflega hressandi og uppbyggilegt fyrir íslenskt samfélag hingað til og engin ástæða er til þess að láta vopnin niður falla nú þótt ein- hverjar smávægilegar tæknileg- ar veilur hafi fundist í málatil- búnaði ákæruvaldsins. Hér dugir ekki að gráta Björn bónda heldur þarf að safna liði. Og Björn ráð- herra hefur tækifæri til að safna besta mögulega liði með því að velja Aurasálina í það vanda- sama verkefni að ganga milli bols og höfuðs á auðhringnum. Aurasálin hefur ýmsa mannkosti sem óumdeilanlega munu verða dýrmætir og mikilvægir í stríðinu gegn Baugsveldinu. Fyrst ber að nefna að Aurasálin er staðföst og skiptir aldrei um skoðun. Hvorki rök né skortur á rökum breyta nokkrum hlut um þá skoðun Aura- sálarinnar að það þurfi að refsa Baugsveldinu og eina verkefnið sem Aurasálin þarf að hugsa um sem sérstakur saksóknari í mál- inu er að komast að því fyrir hvað á að refsa Baugsveldinu. Raunar er það dapurlegt að í okkar samfélagi sé ekki hægt að refsa glæpamönnum nema fyrir ein- hverja skilgreinda glæpi. Allir menn hljóta að sjá að ekki er allt með felldu í Baugsveldinu. Þetta sanna umsvif þess og ríkidæmi. En Aurasálin skorast ekki undan því að taka þátt í þeirri herferð sem nú þarf að halda í og gefur því kost á sér í þetta embætti og vonast eftir að njóta bæði trausts og stuðnings þings og þjóðar í því vandasama starfi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.