Tíminn - 14.09.1975, Blaðsíða 7

Tíminn - 14.09.1975, Blaðsíða 7
Sunnudagur 14. september 1975. TÍMINN 7 Tangó eftir AAorzek fyrsta verkefni L.A. ASK—Akureyri. Vetrarstarf Leikfélags Akureyrar er að hefj- ast nú um þessar mundir og innan skamms hefjast æfingar á leikrit- inu Tango eftir Morzek, undir stjórn Eyvindar Erlendssonar leikhússtjóra. Þýðinguna gerðu Þrándur Thoroddsen og Briet Iléðinsdóttir. Síðar í vetur verður Kristnihald undir Jökli sviðsett undir stjórn Sveins Einarssonar þjóðleikhús- stjóra, en þess má geta að Gisli Halldórsson leikur hlutverk Jóns prímusar. Gisli mun svo siðar stjóma „Rómúlusi mikla” eftir Durrenmatt . Á leikárinu verður einnig sýnt barnaleikritið Rauð- hetta, þá verður Daviðskvöld, sem Guðmundur Gunnarsson sér um, en leikárinu lýkur með Akur- eyrarrevíu, sem Jónas Jónsson stjórnar samningu og sviðsetn- ingu á, en höfundar eru margir. Þá standa fyrir dyrum nýir samningar við starfsfólk L.A. Samið verður um kaup 8 fastráð- inna starfsmanna og um 30 laus- ráðinna. Aðeins einn leikari bæt- istvið hóp fastráðinna leikara hjá L.A., en eins og kunnugt er þá hættu þrir leikarar hjá leikfélag- inu síðastliðið vor. Hins vegar verða lausráðnir nokkrir leikar- ar, er ekki hafa áður sézt á sviði hjá L.A. 40 ár frá vígslu Skíðaskálans A SUNNUDAGINN eru liöin ná- kvæmlega 40 ár frá vigslu Skiöa- skálans i Hveradölum. Kostnaður við byggingu skál - ans var rúmlega 40 þúsund krón- ur og miklu af þessu fé var safnað saman meö svokallaðri Krónu- veltu. í stjórn Skiðafélagsins voru þá: Ú. H. Muller, formað- ur, Jón Eyþórsson veðurfræð- ingur, Herluf Clausen stórkaup- maður, Kristján Skagfjörð stór- kaupmaður og Eirikur Beck framkvæmdastjóri. Núverandi formaður Skiðafélags Reykjavik- ur er Leifur Múller sonur L.H. Múller. Skálaviður allur kom tilhögg- vinn frá Osló og norskur maöur með, til aðstoðar við uppsetning- una. Nú hefur Skiðaskálinn staðið þarna I 40 ár. Vitað er um við- gerðir á þessu sumri, lagfæring á gluggum og annað sem kostaði nærri 2 milljónir króna, sýna þessar tölur bezt hvað verölagið hefur hækkað siðan skálinn var byggður. Fyrir nokkrum árum yfirtók Reykjavikurborg skálann og ann- ast nú rekstur hans. Systkinin Ingibjörg og Steingrimur hafa I mörg ár staðið fyrir veitingum I skálanum og eiga miklum vin- sældum að 'fagna. Skiðaskálinn stendur á svokall- aðri Hjallatorfu sem er eign bænda i Olfusinu. Þessum timamótum verður fagnað með kaffikvöldi i Skiða- skálanum sunnudaginn 14. sept- ember kl. 8:30. Leikarar og aðrir starfsmenn L.A. komu saman og ræddu þau verkefni, sem fram undan eru Frá flutningi útvarpsleikritsins Vakað og sungið. A new NORDMENDE-programme opens the way to great stereo enjoyment: the control unit. cassette-recorder and record player are combined in a compact, elegant combínation! Whether you want to hear your favourite record. or whether you are listening to the radio and maybe want to record the programme simultaneously on a cassette... ...the NORDMENDE stereo combination 5006 SCP. for example, has all that and much more. Co/nbined in the smallest unit. Space saving. vvell laid out and f/J%L fascinatingfy chic! / • / T^*******^ On the next few pages we present' / 3 vanations of this new. M i versatile series. I í Skipholti 19 Simar 23 800 & 23-500 Klapparstig 26 Simi 19 800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.