Tíminn - 14.09.1975, Blaðsíða 31

Tíminn - 14.09.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur 14. september 1975. TÍMINN 31 HUOMPLOTUDOMAR NÚ-TÍMANS Alexis Korner Get Off Of My Cloud PC 33427— Columbia ' h "tif «i ll«- ni iW iicitcsh )«vulac inuú,- •*> MUm *ml nwtic pccwMV wi-m> li> mn^ <««c xcuv <4 -»■»»....yiiclWi Im4|>í«c> *■> ««ftl>« »» K&i: tru&fikm « i-bxngtn«liu- ím'* iií pop nnni<.'—Oii6 MHrí \trMy \ki Það eru sjálfsagt ekki margir poppunnendur af yngri kynslóð- inni, sem vita hver Alex Korner er. Og þeir eru liklega enn færri, sem vita, að Alexis Korner er einii af frumhverjum popp- tónlistarinnar og hefur verið nefndur nöfnuin eins og t.d. faðir brezka blúesins, faðir hvita bluesins og hið virta tónlistarblað Rolling Stone kallar hann: Faðir okkar allra. Ahrif Korners á brezka popptónlist eru ótrúlega mikil, og sjást þau bezt i tónlist þeirra manna, sem hann „ól” upp á árunum kringum 1960. Um það leyti stofnaði Korner hljóm- sveitina Blues Incorporated og meðalliðsmanna hennar á þess- um árum voru Mick Jagger, Keith Richard, Brian Jones og Charlie Watts. Upp úr þessu samstarfi stofnuðu þeir Rolling Stones og má með sanni segja, að Korner sá faðir Rolling Stones,' bæði leiddi hann þá saman og tónlistarstill Stones i upphafi var beint frá Korner runninn og fullyrða má, að hljómsveitin sé enn undir áhrif- um frá honum. En þeir félagar i Stones voru ekki einu „stóru” nöfnin i Blues Incorporated, þar komu menn eins og t.d. Graham Bond, Ginger Baker, Jack Bruce, Long John Baldry, Eric Burdon, Paul Jones og John Mayall við sögu. Á þessari upptalningu geta menn séð, hvilik áhrif Komer hefur haft á brezka popptónlist og má nefna t.d. nokkrar af þeim hljómsveitum, sem þessir menn stofnuðu siðar og höfðu tónlistarstil Korners, að fyrir- mynd: Graham Bond Organization, John Mayall’s Bluesbrakers, Animals og siðar Cream, Blind Faith og fleiri og fleiri. Ætlunin með þessum skrifum var skki sú að rekja ævisögu Korners, heldur sú að ræða litil- lega um plötu hans, sem ný- komin er á markaðinn. Það verður að teljast til meiriháttar viðburða, þegar Alexis Korner gefur útplötu, þvi það gerist svo sannarlega ekki á hverjum degi. Plötuna er að visu ekki alveg hægt að kalla nýja, þvi öll lögin eru gömul en klassisk lög i nýjum útsetningum. Má þar nefna lög eins og „You Are My Sunshine” „Slow Down” og siðast en ekki sizt lag þeirra Jaggers og Richard, „Get Off Of My Cloud” i frábærri út- setningu. 011 þessi lög eru löngu orðin klassisk,en á plötunni eru einnig minna þekkt lög. Með Korner er valið lið hljóðfæraleikara, og það eru engir smákarlar, m.a. Peter Framton, Steve Marriot (Humple Pie) Neil Hubbard (Kikomo) og Keith Richard (Stones), sem sjá um gitarleik, Colin Hodghinsson (Black Dorr) Alan Spenner (Kokomo) og Rich Wills, sjá um bassaleik, en um trommuleik sér Terry Stannard (Kikomo) og á píanó leika þeir Tony O’Mattey (Kokomo) og Nicky Hopkins. Korner leikur sjálfur á kassa- gitar, pianó og fleiri hljóðfæri, auk þess sem hann sér um söng að mestu með aðstoð Keith Richard, Steve Marriot og Kokomo Singers og fleiri. Eins og við er að búast, þegar svona stórlið kemur saman verður útkoman frábær, og er langt siðan ég hef heyrt svo margar stórstjörnur komnar saman á einni plötu með jafn góðri útkomu. Engar stjörnur mun ég þó viðhafa varðandi plötuna, og er ástæðan einfaldlega sú, að lögin eru samin fyrir það mörgum ár- um, að óhugsandi er að setja á plötuna stjörnustimpil. Ekki færum við að gefa Beethoven fimm stjörnur fyrir 9. sinfóniuna i dag. En allt um það, platan er stór- merkileg og frábær að gæðum, og eflaust lætur enginn rokk- unnandi þessa plötu fram hjá sér fara. sþs LP-plata vikunnar: Alexis Korner — Get Off Of My Cloud Smdar plötur Paradfs: Superman/Just Half Of You Sjaldan eða aldrei hefur islenzk popphljómsveit ýtt jafn hressi- lega úr vör og Paradis með 2ja laga plötu sinni. Platan er hressileg og flutningur ágætur. Sérstaklega ber að geta Péturs Kristjánssonar, söngvara sem sýnir framfarir frá þvi hann var með Pelican. Þá lofar Pétur „kafteinn” góðu sem lagahöf- undur. Semsé: góð plata. Flo & Eddie Illegal, Immoral and Fattening PC 33554 — Columbia ★ ★ ★ ★ + Tveirgamlir kunningjarer voru upp á sitt bezta á seinni hluta siðasta áratugs eru nú komnir fram á sjónarsviöið á ný eftir nokkurt hlé. Þetta eru þeir Mark Volman og Howard Kaylan, eða Flo and Eddie eins og þeir kalla sig i dag. Þeir urðu heimsfrægir sem meðlimir hljómsveitarinnar Turtles og áttu mestan þátt i frábærum söng og röddun Turtles, sem er mcð þvi bezta sem heyrzt hefur. Eftir að Turtles hættu flæktust þeir viða um og gengu meðal annars i lið með Frank Zappa og urðu „Mæður” um tima. Þeir stofnuðu hljómsveitina Phlorescent Leech and Eddie, sem var einskonar skot i myrkri og held ég, að það sé leitun að þeim, sem hafa heyrt á hana minnzt. Eftirþetta ævintýri var hljótt um þá félaga þar tií nú, að þeir koma fram á ný og nú verijur örugglega tekið eftir þeim. Plata þeirra félaga heitir Illegal, Immoral and Fattening og er einkennilegur kokkteill þar á ferðinni. Platan er að hluta til tekin upp i stúdiói og að hluta á hljómleikum og er öllu blandað saman á skemmtilegan hátt. Tónlistin er sambland af Zappa, Turtles og á köflum má heyra rokk i stil við gamla Bowie eða Ian Hunter. Tökum dæmi: Söngur i anda Turtles, melódian i anda Zappa, en spilið I Bowie stil. Illegal, Immoral and Fattening er óneitanlega óvenjuleg plata, hún er uppfull af smáatriðum, grini og alvöru, þeir gera grin að ýmsum stór^ um stjörnum, t.d Rolling Stones, Joni Mitchell, Elton John, C.S.N.Y. og George Harrison, sem þeir stæla og gera stólpa grin að, þó svo að hugur fylgi kannski ekki alltaf máli. 0,0. ÚRSLITIN Á SUNNUDAG A SUNNUDAGINN kemur mun Nú-timinn hefja birt- ingu úrslita I skoðanaakönn- un sinni: 10 spurningar i ágúst, en alls bárust þættin- um rúmlega 280 atkvæða- seðlar, sem er nókkru minna en í siðustu skoðanakönnun, sem var um beztu LP-pIötu ársins 1974. Þá bárust alls rúmlega 300 atkvæðaseðlar. Hins vegar telur Nú-tim- inn, að skoðanakönnun þessi sé vel marktæk, og vill þátt- urinn nota þetta tækifæri og lýsa yfir þakklæti sinu mcð þátttökun^. Nú-timanum er ljóst, að hann hefur á aö skipa traustum og góðum lesendahóp, sem vilar ekki fyrir sér að eyða örfáum krónum til kaupa á frimerkj- um á bréf undir atkvæöa- seðia til þáttarins, —og jafn- framt vill Nú-timinn þakka öll þau mörgu bréf, sem hon- um hafa borizt með at- kvæðaseðlunum. Efni þátt- arins virðist vfirleitt falla lesendum vel i geð, ef marka má þessi bréf lesenda, — og er það Nú-timanum hvatning til að halda áfram á sömu braut. Mikiö verk hcfur vcrið aö vinna úr atkvæöascölunum, enda spurningarnar margar. Eitt takk í viðbót og bless. Nú-timinn. Haukar: Þrjú tonn af sandi / Let’s start again Hauka-platan með sandinum er litt áheyrileg plata, enda illa farið með gamalt og gott lag. Harla litið fyndinn texti^og af- leit hljóðupptaka. Söngurinn óskýr og Gulli getur gert betur. Lag Kristjáns Guðmundssonar, er lítið og sætt, — en litið meir. Semsé: frekar léleg plata. 14 Fóstbræður — 14 Fóstbræður FF-Hljómplötur FF-001 ★ STEBEO FÓSTBRflEDU Fjórtán Fóstbræðurhafa nýlega sent frá sér LP-pIötu með átta lagasyrpum úr ýmsum áttum. Greinilegt er, að þeir félagarnir ætla sér að reyna aö halda velli i mótorbáta- og sjúklingaþáttum útvarpsins, og virðist platan gcrð til að þjóna því sjónarmiöi. Alltént virðast fóstbræðurnir forðast að flytja persónulega tóniist. Hvergi á þessari plötu örlar fyrir frumlegheitum i neinni mynd — fóstbræðurnir eru eins og lélegur leikari, sem ætlar sér eingöngu að skila hlutverki sinu þokkalega, en ekki meir. Það er engu líkara en að fóstbræðurnir hafi unnið þessa plötu með hangandi hendi, þvi plötuna vantar allt, sem kallast get- ur neisti eða snerpa. Söngurinn er alls staðar einfald- ur og þykir mér það miður, þvi fjórtán söngmenn hljóta að geta bryddað upp á skemmtilegum og jafnvel óvenjulegum. raddút- færslum. Fjórtán fóstbræður geta vart ætlazt til þess, að söngur þeirra einn sér geti alltaf vakið hrifningu. Það verður meira að komatil.Undirleikurinner ekki upp á marga fiska, átakalitill og einfaldur i sniðum. -G.S. „Gúmmíriddorinn Mér er þvert um geð að þurfa að svara „kveðju” Gsal I slðasta Nú-tima, neyðist þó til. Um persónulegan skæting I minn garð hirði ég ekki, enda ekki svaraverður. Aftur á móti vil ég, vegna þess sem Gsal kallar „siðferðilega skyldu blaðamannsins”, minna á, að sú siðferöilega svarar skylda, sem blaðamanni ber að hafa I heiðri fremur öðrum, er að gæta hagsmuna lesenda sinna. Þvi bið ég afsökunar á að hafa ekki „flett ofan af Stuðmönnum” á Stuttsiöu Mbl. fyrir löngu. Gsal skilur þetta liklega ekki — og kemur mér á óvart. Ómar Valdimarsson. -----------------------------------^ AAest seldu plöturnar vikuna 7. til 13.september: Stórar plotur 1. Sumar á Sýrlandi — Stuðmenn 2. Oneof these nights— Eagles 3. E.C. was here — Eric Clapton 4. Procols ninth — Procol Harum 5. Venus and Mars — Wings 6. Sailor — Sailor 7. Sabotage — Biack Sabbath 8. Main Course— Bee Gees 9. Basement t apes — Bob Dylan and the band 10. Chicago VIII — Chicago Singles: 1. Black Superman — Johnny Wakelin 2. Superman — Paradís 3. Þrjú tonn af sandi — Haukar 4. El Bimbo — Bimbo Jet 5. Love will keep us together — Captain & Tenille _______________ Hljómdeild FACO Hljómdeild FA CO ___________/ Laugaveg 89, Hafnarstræti 17 SENDUM I PÓSTKRÖ = U

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.