Tíminn - 14.09.1975, Blaðsíða 35
Sunnudagur 14. september 1975.
TÍMINN
35
kona — er lífsmáti, sem verður
henni eðlilegur og réttur. Mömm-
ur vinna við ritvélina fimm tima
á dag. Þannig verður hennar
heimur.
En við ráðum ekki við þetta allt
sjálfar. Ég þekki tvær litlar
stiílkur sem eiga mömmu, sem er
geðlæknir, en vinnur heima. Einn
daginn komu stúlkurnar heim úr
leikskólanum og sögðu, að konur
væru hjúkrunarkonur og karlar
læknar.
,,En ég er læknir,” sagði
mamma hennar. ,,Það vitið þið
þó”.
Enbörnin voru handviss um, að
hún hlyti að vera hjúkrunarkona.
Það sem bekkjarfélagarnir sögðu
við þau og það, sem þau sáu i
sjónvarpi, eða lásu i bókum, var
þyngra á metunum en það for-
dæmi, sem þær höfðu fyrir
augunum heima. Það er þvi
augljóst, að ytri uppbygging þarf
að breytast að sama skapi og við
breytum okkar lifsmunstri. Sam-
félagið verður að styðja okkur
með þvi að breyta einnig sinum
munstrum. Og karlmennirnir
verða að taka þátt i þessum
breytingum.
Ástarþörf
Karlmennirnir, já! Hvaða þátt
eiga þeir i öllu þessu fyrir utan
að bera ábyrgðina á sæðis-
frumunni, sem var svo lánsöm að
komast fyrst að egginu ? Mér hef-
ur alltaf fundizt það áberandi
staðreynd, að feður margra
kvenna, sem hafa áorkað ein-
hveriu, hafa annað hvort tekið
patt i uppeldi þeirra og menntun
eða uppörvað þær mjög: Mary
Godwin, Shelley, Gertrude Stein,
Virginia Woolf — svo nokkur
dæmi séu nefnd. Mér er nær að
halda, að ef fleiri feður væru
virkari i að mennta og uppörva
dætur sinar I staö þess að vera
skuggaverur i bakgrunni, sem
koma i ljós, þegar greiða þarf
reikninga eða sitja fyrir á brúð-
kaupsmyndum, — þá óskuðu
fleiri konur þess heilshugar að ná
árangri I starfi.
Sú staðreynd, að i flestum fjöl-
skyldum ber móðirin ábyrgð á
uppeldi barnanna hefur ýmsar
neikvæðar sálrænar afleiðingar i
för með sér fyrir bæði kynin. I
fyrsta lagi gerir það mæðrunum
kleyft að láta sitt eigið hugarvil
um hlutverk konunnar koma
niður á dætrum sinum. í öðru lagi
þarfnast dæturnar uppörvunar
frá feðrum sinum. í þriðja lagi
leyfist þá mæðrunum að sóa allri
ást sinni i synina — og þannig að
þær svipta dæturnar henni. Siðar
I lifinu hefur þetta sorglegar af-
leiðingar. Konur þyrstir oft eftir
ást og aðdáun, þær eru óvissar
um hlutverk sitt og reiðubúnar að
selja sál sina fyrir ást. Menn hafa
hins vegar oft fengið svo mikla
(oft kæfandi) athygli frá
mæðrum, sem vernduðu þá um
of, að þeir eru hræddir við ástina
og finnst konuást leggja á sig
bönd.
Andlegu þarfirnar
þær sömu
Kynin gera andstæðar kröfur.
Hún vill fá óskipta ást og
Fjármálaráðuneytið
10. september 1975.,
Tilkynning til sölu
skattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin
á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir
ágústmánuð er 15. september.
Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna rikissjóðs ásamt söluskatts-
skýrslu i þririti.
100 fermetrar á
3 þúsund kr.
10 lítra fötur með
PLASTMÁLNINGU
á aðeins kr. 3.000
Innihaldið þekur 100 fermefra
Litir: Hvítt — Beinhvítt — Beingult — Margir dökkir litir
Allt á kr. 3.000 fatan
Grípið tækifærið strax
og sparið ykkur stórfé
VIllKXl"
Voggfóður- og mólningadeild
Ármúla 38 - Reykjavik
Simar 8-54-66 & 8-54-71
Opið til kl.10 á föstudögum
DC 6 jarðýta
óskast keypt, má vera af eldri gerð.
Upplýsingar i sima 94-7765 klukkan 3-5
daglega.
uppörvun — en ef hún fær þetta,
þráir hún samt frelsi. Hann vill
eiga frelsi sitt — en fái hann það,
þráir hann samt óskipta ást og
uppörvun.
Ég hef á tilfinningunni, að þrátt
fyrir liffræðilegan mun á kynjun
um og þrátt fyrir þá staðreynd, að
þau láta kröfur sinar i ljós á likan
hátt, þá eru sálfræðilegar þarfir
þeirra i stórum dráttum þær
sömu. Ég held, að við séum
komin á það stig mannkyns-
sögunnar að mikilvægara sé að
leggja áherzlu á það, sem er likt
með kynjunum sálfræðilega, en
það, sem er ólikt með þeim lif-
fræðilega. Bæði menn og konur
þarfnast frelsis og nálægðar.
Bæði þarfnast félagsskapar, eru
hrædd við að vera yfirgefin, hafa
óbeit á einmanaleika, þarfnast
tilgangsriks starfs, og að eiga
þægilegan bakhjarl I heimilinu,
svo að þau geti tekizt á við
heiminn og oft (en ekki alltaf) þrá
þau að eignast börn. Mér finnst,
að bæði kynin eiga að fá að ráða
þvi að eignast ekki börn, ef þau
vilja hafa það svo — en ég heíd við
verðum að horfast i augu við, að
oft þrá karlmenn börn, eins heitt
og konur, stundum e.t.v. heitar,
þar sem þeir geta ekki eignast
þau án kvenna.
Mér kemur oft i hug, að þörf
margra karla að halda konunum
,,á mottunni” stafi af hræðslu
þeirra við hinn mikla liffræðilegá
styrk kvenna. Samuel Johnson
sagði: „Náttúran hefur gefið kon-
unni svo mikil völd, að lög-
gjafamirhafa af vizku sinni veitt
þeim að sama skapi litil.”
Karlmenn finna það á sér, að ef
þeir drægju ekki á áhrifarikan
hátt úr getu og styrk kvenna, þá
veittist þeim auðvelt að keppa við
þá i dugnaði styrk, langllfi og gáf-
um. Karlmannaþjóðfélagið hefur
barizt gegn þessu meö þvi að
halda aftur af sköpunargáfu
kvenna og veita umframorku
þeirra útrás I barnsfæðingum,
heimilisstörfum og umönnun
manns og barna.
Jafnmikið af
ást og vinnu
Nú sáum við bjarma af enda-
lokum þessa tima. Tæknin hefur
gert okkur kleift að hafa stjórn á
frjósemi okkar, sjúkrahjálp gerir
okkur kleift að halda þeim börn-
um sem við eignumst, og ala þau
upp (i staðinn fyrir að fæða
fjórtán og halda sex eins og svo
margar langömmur okkar og
jafnvel ömmur). Nú er þvi engin
ástæða til, að þjóðfélagslegt,
efnahagslegt og pólitiskt vald
konunnar sé svo takmarkað, sem
það er enn.
Samt hættir okkur til að gley ma
að allar þessar grundvallar-
breytingar, eru minna en
hundrað ára gamlar: getnaðar-
varnalyf, ráð við barnasjúkdóm-
um, hættulausar fæðingar,
kosningaréttur kvenna, vinna
kvenna utan heimilis — allt betta
höfum við öðlazt á siðustu 100
árum. Okkur hefur tæpast gefizt
ráðrúm til að hagnýta okkur sál-
fræðileg áhrif þessara breytinga,
og það er ljóst, að mæðrum okkar
veittist ekki tim' til að gera það i
nægilegum mæli. Við erum ekki
komnar nærri þvi að eiga jafna
fjárhagslega möguleika og karlar
eða þvi, að konur hljóti sömu
meðferð fyrir dómstólum — en
meðan við vinnum að þvf að ná
þessu, verðum við að minna dæt-
ur okkar á, hve nýtt þetta allt er,
hve erfitt var að ná þessum
framförum, og við verðum lika að
kenna þeim að hagnýta sér
breytingarnar sálfræðilega. Það
er auðvelt fyrir börn að ganga út
frá breytingum sem sjálfsögðum.
Dætur okkar munu alast upp i
þeirri trú, að alltaf hafi verið til
sjónvarp, geimferðir, getnaðar-
varnir, lömunarveikisprautur,
hættulausar fæðingar, og að
konur hafi alltaf getað kosið,
veriðkjörgengar og unnið úti — ef
við minnum þær ekki á
staðreyndir.
Vandamál okkar er sem sagt
tviþætt: við verðum að kenna
dætrum okkar að meta hversu
fagur þessi nýi heimur er, og um
leið verðum viðá einhvern hátt að
láta þeim finnast þær eiga heima
i honum. Við getum fremur
hjálpað þeim með þvi að gefa for-
dæmi en að vera með
áminningar, kannski allra bezt
með þvi að láta lif okkar hafa að
geyma jafnmikið af ást og vinnu,
og með þvi að fórna aldrei öðru
fyrir hitt. (Þýtt og endursagt SJ)
Rifflar
Riffilsjónaukar
Skot og
hlífðarföt
POSTSENDUM
SPORT&4L S
cHEEMMTORGf I
HAGLA-
BYSSUR
Til sölu
Rafsuðupottur úr rústfriu stáli c.a. 90
litra.
Upplýsingar i sima 12638.
Atvinnurekendur
RAFMAGNS-
BENZIN-
GAS-
DIESEL-
TMC
GAFFAL-
LYFTARAR frá Japan.
TCM lyftarar hafa margra ára reynslu á ís-
iandi.
Þeir hafa fengið hin erfiðustu verkefni og alltaf
sigrað með sóma.
Afgreiðslufrestur er mjög stuttur.
Ath. — Á timum eins og eru nú, er það kostur
að kaupa strax.—
Kjölur s.f. Keflavik — Símar 2121 og 2041.
HAUGSUGUR
Nýja B&SA haugsugan frá COLMAN er nú
aftur fyrirliggjandi á kr. 543.000.00 með
öllum fylgihlutum.
Kaupfélögin
UM ALLT ÍAND
Samband islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármula 3 Reykjavik simi JÖ90O