Tíminn - 21.09.1975, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 21. september 1975.
smtimis þúsundir söngvara, en
sviðiðer 120 m langtog 18 metra
hátt. Hin myndin sýnir hóp
þjóðdansara sýna einn af
dönsunum sinum.
Söngvahátíð í Eystlandi
Nýlega var haldin m/kil
söngvaháti'ð i Tallin. Þar klmu
fram þúsundir þjóðlíga-
söngvara og dansara viðs \Egar
að. Um 200 þúsund áhorfandur
og áheyrendur voru viðstaddir
sýningar og hljómleika. A
annarri myndinni hér með sést
útileikhús, þar sem hátiðin fór
fram, eh á sviðinu komast fyrir
■
Horfðu sex sinnum d kynlífs-
myndir án árangurs
Forstöðumaður dýragarðs
nokkurs i Sacramento i Kali-
fomiu er nú i þann veginn að
gefast upp við að reyna að út-
vega garðinum gorilluunga.
Gorillurnar i garðinum, par,
hafa ekki getað lært, hvernig
auka á viðkomu ættstofnsins,
hvaðsvo sem gert hefur verið til
þess að fræða hjónakornin um
kynlifið og gang þess. Til þess
að gefast ekki upp undireins út-
vegaði forstöðumaðurinn klám-
myndfrá V-Þýzkal.og vonuðust
allir til þess að það nægði. Það
var þó ekki. Kvikmyndin var
sérstaklega gerð fyrir apa, og
sniðin eftir samsvarandi kvik-
mynd, sem gerð hafði verið
fyrir menn. Sex sinnum fengu
górillurnar að sjá þessa 25
minútna löngu kvikmynd, sem
sýnir hvernig kynbræður tseirra
i dýragarðinum i Vestur-Þýzka-
landi bera sig að, þegar
þeir vilja fjölga stofninum. En
þetta reyndist allt árangurs-
laust. Bæði hinn 150 kg þungi
Chris og hin 68 kg þunga Susie
eru uppalin i dýragarði og hafa
aldrei lært af öðrum, hvernig
þau eiga að haga sér i þessum
málum. Virðist nú allt benda til
þess, að i þessum dýragarði i
Sacramento eigi menn ekki eftir
að lita augum apabörn á næst-
unni.
H.C. Andersen í austri og vestri
Börn um allan heim elska sögur
Hans Christians Andersens.
Bækur hans hafa komið út á
flestum tungumálum, og marg-
ar útgáfur þeirra eru mjög dýr-
mætar orðnar nú i seinni tið. H.
C. Andersen er jafnþekktur i
austri sem i vestri, og hér á
myndinnier litill drengur i Rúss
landi einmitt að lesa eina af
bókum Andersens, sem er
nýkomin út i heimaborg hans.
Hann kann greinilega vel að
meta efni bókarinnar.