Tíminn - 21.09.1975, Síða 37

Tíminn - 21.09.1975, Síða 37
Sunnudagur 21. september 1975. TÍMINN 37 keiluperan meö uuimini 0 NU-TIMINN gert, að flytja þessi erlendu lög á talsvert persónulegan hátt, og er notkun mandólins og banjós- ins hluti af þeirri viðleitni. Við forðuðumst að likja eftir frum- gerðunum og reyndum að túlka lögin á persónulegan hátt. Söng- urinnerlika aðokkardómi tals- vert sérstæður, enda sjaldgæft að heyra 5-raddaðan söng karl- manna. Sjö af lögum plötunnar hafa frarnir The Dubliners flutt á plötum sinum, en við studdumst alls ekki eingöngu við þeirra út- gáfur, heldur gerðum við okkur far um að hlusta á lögin i mörg- um mismunandi útgáfum. Hvað textana áhrærir er i flestum tilfellum ekki um að ræða beina þýðingu á erlenda textanum, en þeir eru, þegar á heildina er litið, þýddir, stað- færðir og frumsamdir. Sitt litið af hverri gerð. Flestir textanna eru eftir félaga okkar, Ellert Borgar Þorvaldsson, sem virð- istnæstum geta hrist texta fram úr erminni, þegar þess þarf með. Textarnir hans verkuðu sem vitaminsprauta á okkur, og hann á mestan þátt I þvi — af okkur félögunum — að þessi plata varð til. Jónas R. Jónsson var okkur afskaplega hjálplegur, og fyrir hans tilstilli komumst við yfir þröskuldinn. Þá er það þáttur Gunnars Þórðarsonar, sem skipti sköpum, eins og áður seg- ir. Umræðuefni: Af tóniistarferl- um Randversmenn hafa komið viða við á sinum tónlistarferli: tveir þeirra voru i svonefndum ölkvartett, sem kom m.a. fram i sjónvarpinu og vakti allmikla athygli. 1 ölkvartett voru Guð- mundur og Sigurður, — og einn- ig hefur Sigurður sungið með 14 Fóstbræðrum. Ellert er hinsvegar gamall poppari frásfldarárunum. Hann lék á þeim árum með hljóm- sveítinni Ónaum. Ragnar sagði okkur, að hann hefði verið i tveimur hljóm- sveitum á sinum vngri árum, fyrsti ónefndri skólahljómsveit, ogsiðar um eins árs skeið i Trix, sem flestir hljóta að kannast við. jón og Guðmundur voru að- sópsmiklir postular i poppóper- unni Superstar, en þeir komu báðir fram i uppfærslu Leik- félags Reykjavikur. Þá má nefna, að Jón lék með Herði Torfasyni eina vertið, og þegar hann var i Kennaraskólanum, var hann f ónefndu triói, sem gekk þó stundum undir nafninu Beitarhúsamenn. Umræðuefni: Staðbundin nöfn — Við notuðum Randvers- nafnið bara i lokin, eftir að við hófum að flytja Randvers-lagið, en við vorum alltaf i stökustu vandræðum með nafn á söng- sveitina, — og yfirleitt skirðum við okkur á lelðinni að þeim stað, þar sem við ætluðum að koma fram. Við gripum oft til þess að hafa „Fimm bækurnar” i huga við nafnagerð — ein- hverju sinni kölluðum við okkur Fimm á flótta, og eitt sinn, þeg- ar við skemmtum hjá veiði- félagi, kölluðum við okkur Fimm i veiðiþjófaleit. — En við vorum alltaf I vandræðum með nafn, og yfirleitt var nafn söng- sveitarinnar staðbundið við þá skemmtun, sem við vorum að troða upp á. Eitt sinn kölluðum við okkur: 200 þús. naglbita. Við höfum ekki komið fram opinberlega siðan i vor, en framhaldsviðræður um það mál eru afskaplega" leynilegar, og þvi viljum við bara fara þess á leit við þig að setja eitt stórt spurningarmerki hér fyrir aft- an! — ? —Gsal— ©Hljómpldómar Þetta eru lögin nýju (9) á plöt- unni. Megasi til aðstoðar eru ýmsir listamenn. og er hlutur Júdasar mestur. Flutningur allur er yfirleitt góður, þó svo að stundum fái maður það á til- finninguna, að of mörg hljóðfæri séu I gangi i einu. Um söng Megasar er sjálfsagt hægt að deila endalaust, en frá minum bæjardyrum séð myndu lögin missa gildi, ef einhver ráddfagur mundi syngja. i söngtúlkun sinni minnir Megas nokkuð á Dylan, sem er ekkert skrýtið i sjálfu sér, þar sem Dylan er nokkurs konar leiðar- Ijós Megasar. Eitt er athyglisvert við söng Megasar: hann virðist gera i þvi að fylgja ekki alltaf melódiunni eftir, ef hann vill leggja áherziu á eitthvað orð i textanum. og kemur það bara vei út. „Millilending” er plata, sem er sér á parti. Hún á að visu litla bróðir, sem er ófáanlegur, en við skulum vona, að „Miliilend- ing” eignist stóra bróður fljót- • iega. Megas. þú ert á réttri braut. G.G. PHILIPS HAFNIA-PLATTI HAFNIA-76 ætlar ekki að gera það endasleppt.Fyrst var gefinn út öskubakki heldur stærri en ISLANDIA öskubakkinn, með myndinni af islenzka Jóns Sigurðssonar-merkinu frá 1911, og nú er næst á dagskráútkoma platta, sem er framleiddur hjá Bing og Gröndahl i takmörkuðu upplagi til að minna á sýning- una. Hann kom i byrjun september. Danske Filatelisters Fælles- raad, fékk teiknarann Henry Thelander, sem ma. teiknaði danska balletmerkið, til að teikna platta fyrir sýninguna. Hann hefur áður teiknað bæði frimerki og ýmsa platta, svo að hann er vel heima á þessu sviði. A plattanum er mynd af hinum vinsæla göngupóstmanni „Fodpost” Kaupmannahafnar, árið 1806, fyrir framan kaup- höllina i Kaupmannahöfn. Ein- mitt i þessari byggingu hafði fyrsti póstur Kaupmannahafn- ar, og þar með Danmerkur, að- setur sitt, er hann tók til starfa að skipan Christians IV. The- lander hefir leyst hlutverk sitt vel af hendi. Hann sýnir póst- manninn, sem hinn glaða flytj- anda góðra tiðinda, með háan hatt og trumbu þá, er hann boðar méð komu sina.Auk þess heldur hann á innsigluðu bréfj i hendinni og hefir pósttösku um öxl.Þess má kannske geta I leið- inni, að innsiglaða bréfið er hið alþjóðlega merki frimerkja- safnara.Ekki er heldur bréfdúf- unni gleymt. Hún stendur að baki póstmannsins. Þá má ekki gleyma versta f jandmanni póst- mannsins, eða bréfberans viða erlendis, hundinum, en hér hleypur hann með bréfberanum með tunguna lafandi. „Fodposten”, eða bréfburð- armennirnir, voru einkafyrir- tæki frá 27. febrúar 1806 til 14. mai 1849, er póststjórnin tók að sér dreifingu bréfanna i Kaup- mannahöfn. Á hinni myndinni sjáum við svo Póstmálastjóra Danmerk- ur, Poul Hansen, er hann af- hendir Henrik Eis, fram- kvæmdastjóra HAFNIA-76 fyrsta plattann, sem kom frá framleiðendum. Vonum við svo bara að um- boðsmenn hér fái nokkra platta til sölu. Sigurður II.Þorstcinsson

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.