Fréttablaðið - 10.11.2005, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
MobileOffice
FRÁ OG VODAFONE
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
29
86
7
10
/2
00
5
Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
Alvöru
ferðaskrifstofa
BlackBerry® frá Vodafone
NÓVEMBER
Global
Hotspots
DESEMBER
Vodafone
World
KOMIÐ
Vodafone
Mobile
Connect
BlackBerry frá Vodafone er hluti af MobileOffice, heildstæðu þjónustuframboði Og Vodafone fyrir viðskiptalífið sem gerir fólki mögulegt
að miðla upplýsingum óháð stað og stund. Hraði, öryggi og einfaldleiki eru einkunnarorð okkar í þeim lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum.
BlackBerry
®
frá Vodafone er fremsta þráðlausa samskiptatækið í
dag og gerir notendum mögulegt að vera í stöðugum samskiptum
við viðskiptavini og samstarfsmenn. Auk þess að vera GSM sími
veitir BlackBerryfrá Vodafone notendum aðgang að tölvupósti,
dagbók, tengiliðalista og Vefnum, allt í rauntíma.
Með BlackBerryfrá Vodafone er hægt að gera flest það sem
þú gerir á skrifstofunni, óháð stað og stund.
» BlackBerry frá Vodafone er alltaf tengdur
og tölvupóstur berst og er sendur samstundis
» Stór skjár sem hentar vel við að skoða viðhengi
» Aldrei þarf að uppfæra upplýsingar á milli farsímans
og tölvunnar
» BlackBerry frá Vodafone uppfyllir ítrustu öryggistaðla
» BlackBerry frá Vodafone er einstaklega vel hannaður
fyrir kerfisumsjón
Th
e
RI
M
a
nd
B
la
ck
Be
rry
fa
m
ilie
s
of
re
la
te
d
tra
de
m
ar
ks
, i
m
ag
es
a
nd
s
ym
bo
ls
a
re
th
e
ex
cl
us
ive
p
ro
pe
rti
es
o
f a
nd
tr
ad
em
ar
ks
o
f R
es
ea
rc
h
In
M
ot
io
n
-
us
ed
b
y
pe
rm
is
si
on
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Ég er búinn að vera að fylgjast með Íslenska Batsélornum að
undanförnu. Ég held að þetta sé
lélegasta sjónvarpsefni sem ég
hef nokkurn tíma séð. Þetta er
svo lélegt og hallærislegt að það
fer hringinn og verður fyndið. Ég
fæ bjánahroll niður eftir bakinu í
hvert einasta skipti sem ég horfi.
Mér finnst þetta svipaður húmor
og í The Office.
ÉG get ekki hlegið að þessu vegna
þess að mér finnst þetta svo sorg-
legt. Ég vorkenni öllu þessu vesa-
lings fólki, bæði batsjélornum og
stúlkunum. Mér finnst verið að
teyma þau á asnaeyrum. Ég veit
ekki alveg hvað mér finnst um
sálfræðinginn sem kemur fram
í þáttunum. Mér finnst að hann
ætti kannski bara sjálfur að fara
til sálfræðings. Og mér finnst að
þeir sem framleiða þáttinn eigi að
skammast sín mikið og ég vona að
þeir geri það. Ég vona að næsti
þáttur, sem þeir framleiða, verði
ekki um fulla íslendinga á sólar-
strönd, þar sem engu er leynt.
ÍSLENSKI Batsélorinn er eins
lágkúrulegur og hægt er að vera.
Mér finnst stúlkurnar í húsinu
vera eins og mellur í hóruhúsi og
batsjélorinn eins og kúnni. Mér
finnst þetta ekkert vera neitt
öðruvísi. Og eins og í fyrsta klassa
hóruhúsum er ekkert til sparað
við að gera þetta eins glæsilegt og
mögulegt er. Það er kaldhæðnis-
legt að þetta skuli koma núna á 30
ára afmæli Kvennadagsins.
ÉG skil vel hvað hann er að fá út
úr þessu. Hann nýtur lífsins, fer í
keilu og kanósiglingar með fögr-
um konum og fær að fara í sleik
við þær og káfa á brjóstunum á
þeim eftir matinn. Það er eðlilegt
að hann hafi gaman af því. En
hvað fá þær út úr þessu? Langar
þær virkilega til að giftast mann-
inum? Ég trúi því ekki. Kannski
eftir að hann er búinn að sofa hjá
öllum hinum. Ojjbara!
MÉR finnst djöfullegt að draga
fólk niður á lægra plan en það
er á fyrir. Raunveruleikaþættir
þurfa alls ekki að vera þannig.
Það er fullt af slíkum þáttum sem
hafa það að markmiði að hífa fólk
upp á hærra plan, þættir eins og
The Apprentice, Super Nanny eða
Idol.
ÍSLENSKI Batsélorinn er ein-
faldlega metnaðarlaus dagskrá.
Margir furða sig á nafni þáttar-
ins. Batsélor er ekki íslenska. Af
hverju var þetta ekki bara kallað
réttu nafni og nefnt Íslenski
hórkallinn? ■
Batsélorinn