Fréttablaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 64
10. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR44
menning@frettabladid.is
!
Stjórnar
með sellói
gul tónleikaröð í háskólabíói
Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30
Hljómsveitarstjóri og einleikari ::: David Geringas
David Geringas, einn af frægustu sellistum heims leikur
einleik me› Sinfóníuhljómsveitinni á
fimmtudaginn og stjórnar einnig hljóm-
sveitinni. Efnisskráin er tilhlökkunarefni
og geislar af fjöri og lífsgleði.
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Pjotr Tsjajkovskíj ::: Capriccio Italien
Luigi Boccherini ::: Sellókonsert í D-dúr
Antonín Dvorák ::: Sinfónía nr. 8
tónleikar í kirkjuhvoli, safnaðarheimili keflavíkurkirkju
Á MORGUN, FÖSTUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 20.00
Hljómsveitarstjóri ::: Kurt Kopecky
Einsöngvari ::: Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika í Kirkju-
lundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Þar mun
okkar ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir –
Diddú – flytja margar af sínum uppáhalds perlum.
Perlur og skrautaríur eftir Händel, Bellini,
Mozart, Offenbach, Bernstein og Verdi
Sinfónían í
Bítlabænum
Kl. 19.30
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Háskólabíói stendur hinn
virti sellóleikari David Geringas
við stjórnvölinn, auk þess sem hann
leikur einleik á sellóið. Flutt verða
verk eftir Tsjaíkovskí, Boccherini og
Dvorák.
Þjóðleikhúsið er að taka upp nýtt sýningafyrirkomu-
lag, þannig að leiksýningar á verkefnaskrá leikhúss-
ins verða aðeins sýndar í takmarkaðan tíma. Hins
vegar verða þær sýndar þeim mun þéttar þann tíma
sem þær eru í sýningu.
Fyrsta sýningin á Stóra sviði sem sýnd hefur verið
með þessum hætti er Halldór í Hollywood eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Sýningar á þessu verki hafa verið
að jafnaði þrjú til fjögur kvöld í viku, frá frumsýningu
14. október sl. Sýningum lýkur fyrir jól og Halldór í
Hollywood víkur þá fyrir nýrri sýningu, Túskildingsóp-
erunni eftir Kurt Weil og Bertholt Brecht.
Þetta sýningarfyrirkomulag er vel þekkt í evrópsk-
um leikhúsum, enda viðurkennt að mun hægara er
fyrir sviðslistamenn að ná öruggum tökum á hlut-
verkum sínum þegar sýnt er ört en þegar sýningar eru
með löngu millibili. Þjóðleikhúsið segir ávinninginn
af þessu nýja sýningarfyrirkomulagi umtalsverðan,
ekki einungis í listrænu tilliti heldur einnig rekstrar-
legu, meðal annars vegna þess að ekki þarf að skipta
um leikmyndir um nætur og helgar, og kostnaður við
sýningar er minni þegar sýnt er þétt í afmarkaðan
tíma. Með hinu nýja sýningarfyrirkomulagi skapast
aukið fjárhagslegt svigrúm, sem leikhúsið getur nýtt
til annarra þarfa.
Um síðustu helgi var uppselt á nánast allar sýn-
ingar Þjóðleikhússins, til að mynda sáu tæplega
1000 manns Halldór í Hollywood á Stóra sviðinu.
Halldór sýndur hratt
Halldór í Hollywood.
Kvennakór Hafnarfjarðar fagn-
ar tíu ára afmæli sínu með því
að halda tvenna afmælistónleika,
aðrir verða í Seltjarnarneskirkju í
kvöld og hinir í Víðistaðakirkju á
laugardaginn.
Kórinn hélt nýverið nokkra tón-
leika á Spáni í tilefni afmælisins.
Það var Kórasamband Katalón-
íu sem skipulagði tónleikahald í
Barcelona en í Torredembarra hélt
kórinn tónleika í boði Obra Musical
de l´Orgue Barroc og Menninga-
málanefndar Torredembarra. Í
klausturkirkjunni á Montserrat-
fjalli söng kórinn síðan fyrir
kirkjugesti er troðfylltu þessa
stóru, frægu kirkju sem talin er
einn helgasti staður Spánar.
Allir tónleikar kórsins voru
mjög vel sóttir og lýstu tónleika-
gestir óspart ánægju sinni með
sönginn.
Það ríkti svo sannarlega glað-
leg og skemmtileg stemning hjá
kátum Katalóníubúum sem komu
og hlustuðu á kórinn. Stjórn-
andi Kvennakórs Hafnarfjarðar
er Hrafnhildur Blomsterberg og
píanóleikari Antonía Hevesi.
Fyrri afmælistónleikarnir hér á
landi verða í Seltjarnarneskirkju
í kvöld klukkan 20 og þeir síðari
í Víðistaðakirkju á laugardaginn
klukkan 16. Efnisskrá tónleikanna
er fjölbreytt að vanda. ■
KVENNAKÓR HAFNARFJARÐAR Nýkominn
úr tónleikaferð um Spán en heldur afmæl-
istónleika í Seltjarnarneskirkju í kvöld, og
síðan í Víðistaðakirkju á laugardaginn.
Afmælistónleikar kvennakórs
„Þetta er spunatónlist sem við
ætlum að spila. Samt er þetta ekki
djass, held ég, en þó er þetta skylt
djasstónlist,“ segir Simon Jermyn
gítarleikari, sem verður með tón-
leika í Fríkirkjunni í Reykjavík í
kvöld ásamt Hilmari Jenssyni gít-
arleikara.
Að mestu leyti verða tónleik-
arnir byggðir á spuna, en þó taka
þeir eitthvað af lögum sem hafa
verið samin fyrirfram, í það min-
nsta eitt eftir Simon og væntan-
lega annað eftir Hilmar.
Simon er frá Írlandi, nýflutt-
ur til landsins en hafði áður lokið
meistaraprófi í djassgítarleik í
Hollandi. Hann kom meðal ann-
ars fram á Kirkjulistahátíð í Hall-
grímskirkju í sumar. ■
Spinna í kirkjunni
HILMAR JENSSON OG SIMON JERMYN
Tveir gítarleikarar með spunatónleika
í Fríkirkjunni.
> Ekki missa af ...
... einleiknum Manntafl í Borgarleik-
húsinu, þar sem Þór Tulinius flytur
eigin leikgerð á frægri smásögu Stefans
Zweig.
... einleiknum Ég er mín eigin kona í
Iðnó, þar sem Hilmir Snær Guðnason
fer á kostum.
... sýningu Þórs Vigfússonar í gallerí i8
við Klapparstíg.
Danska ævintýraskáldið
H.C. Andersen og þýska
leikritaskáldið Friedrich
Schiller verða báðir í
aðalhlutverki á tónleikum
Ágústs Ólafssonar baríton-
söngvara í Salnum í kvöld.
Tónleikana nefnir Ágúst „Ævin-
týramaður og rómantíker“, sem
á einkar vel við þar sem á efnis-
skránni eru sönglög og aríur eftir
Grieg, Schumann, Schubert, Ross-
ini og Verdi við texta eftir danska
ævintýraskáldið og þýska róm-
antíkerinn.
Sem kunnugt er hafa Danir
verið að halda upp á það að 200 ár
eru liðin frá fæðingu Andersens,
en mikið hefur líka verið við haft
í Þýskalandi þar sem menn hafa í
ár verið að halda upp á að 200 ár
eru liðin frá andláti Schillers.
„Schiller var talinn Shake-
speare Þýskalands á sínum tíma,“
segir Ágúst, sem kemur fram
ásamt japanska píanóleikaranum
Izumi Kawakatsu.
„Hvorki Andersen né Schiller
eru sérstaklega þekktir fyrir ljóð-
in sín. Þeir eru mjög ólík skáld,
en báðir sömdu þeir ljóð og við
Izumi höfum lengi haft augastað á
tónverkum sem voru byggð á ljóð-
um þeirra. Okkur fannst gott að
nota þetta tækifæri til að minnast
þeirra, ekki síst vegna þess hvað
þeir voru ólíkir. Þetta býður upp
á býsna fjölbreytilegt einsöngs-
kvöld.“
Izumi Kawakatsu hefur búið
í Þýskalandi í ein sex ár þar
sem hún hefur stundað nám í
ljóðasöngsundirleik.
„Ég hitti hana þar sem ég var í
ljóðasöngsnámi í Karlsruhe. Síðan
var okkur skömmu síðar boðið að
taka þátt í tímum í ljóðasöng hjá
Dietrich Fischer-Dieskau. Upp
frá því fórum við að starfa saman
sem dúó og höfum haldið tónleika
víða.“
Þau hafa einnig sótt tíma hjá
hinni virtu söngkonu Elisabeth
Schwarzkopf og tóku á síðasta
ári þátt í alþjóðlegri ljóðasöngs-
dúókeppni í Stuttgart þar sem þau
lentu í öðru sæti.
Ágúst býr í Finnlandi en er með
annan fótinn í Þýskalandi þar sem
hann kemur reglulega fram á tón-
leikum.
„Við Izumi vorum meðal ann-
ars með tónleika í gamalli höll í
Bruchsal núna í október. Nýlega
tókum við líka þátt í norrænum
ljóðasöngstónleikum með norsk-
um og finnskum söngvurum, og
stundum kíki ég líka í tíma hjá
Elísabetu.“
Ævintýrin og rómantíkin
ÁGÚST OG IZUMI Þau hafa starfað saman sem dúó í nokkur ár og koma fram á tónleikum í Salnum í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI