Fréttablaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 74
10. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR54
Það eru að koma jól og þá koma
ekki bara út bækur. Popparar,
líkt og skáldin, hugsa sér
gott til glóðarinnar þegar
kemur að jólainnkaup-
um landans. Svokallaðir
kareoke - diskar hafa verið
vinsælir í pökkunum en
það hefur smám saman
verið að fjara undan þeim
á undanförnum árum. Það
hefur kvissast út að óþe-
kkt plötufyrirtæki ætli
að gefa út safnplötu til
að varðveita þennan mikilvæga
menningararf. Þar eiga margir
af nafntoguðustu einstaklingum
Íslands að syngja lög sem eiga vel
við hæfi. Hér skortir hvo-
rki persónulega túlk-
un né innlifun. Ef
þessi diskur selst
ekki í bílförmum
er ljóst að tón-
l istasmekkur
þjó ða r i n na r
er á hraðri
niðurleið.
Það var lagið ...
Í blaðinu í gær birtist mynd af
Maríu Fjólu Pétursdóttur og Þóru
Margréti Baldvinsdóttur. Þar
voru þær báðar titlaðir hönnuðir
hárgreiðslustofunnar Senter. Þóra
Margrét er ein hönnuður stofunn-
ar. Lesendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Leiðrétting
OPNUNARPARTÍ HÁRGREIÐSLUSTOFA
RADISSON HÓTEL María Fjóla Pétursdóttir
og Þóra Margrét Baldvinsdóttir, hönnuður
stofunnar.
Hann ætlaði að taka prófkjörið með trompi en
hafði ekki erindi sem erfiði. Þrátt fyrir frek-
ar slæma útreið þá hefur Gísli ekki lagt árar
í bát og ber harm sinn í hljóði. Með þessum
magnaða flutningi á lagi Sólstrandagæj-
anna heldur frambjóðandinn ekkert aftur
af sér og hleypir öllum sínum tilfinning-
um út. Hjartnæmur söngur sem lætur
engan ósnortin.
Af hverju get ég ekki
lifað eðlilegu lífi
Af hverju get ég ekki
lifað business lífi
keypt mér húsbíl og íbúð
Af hverju get ég ekki
gengið menntaveginn
þangað til að ég
æli?
Ég er rangur
maður á röngum
tíma í vitlausu
húsi.
Gísli Marteinn Baldursson / Rangur maður á röngum tíma
Haraldur Johannessen /
Lög og regla
Ríkislögreglustjórinn hefur tekið
öllum ásökunum sem dunið hafa
á hann með stóískri ró og sýnt að
hann er maður með stórt hjarta
og breitt bak. Það reyndist enda
plötuútgefendanum erfitt að fá
hann til liðs við útgáfuna en þegar
Haraldur gekk inn í hljóðverið var
ekki að sökum að spyrja. Kraft-
mikill flutningur sem slær öllu
við sem áður hefur
heyrst á karókí-
diskum.
Það eru hvorki tónleikahaldarar né
skemmtistaðir sem halda partí ársins
heldur forsetafrúin Dorrit Moussai-
eff. Hún er aðdáandi númer eitt hjá
glamúrsveitinni Trabant og er sögð
vera einhver besti gestgjafi landsins
og þótt víðar væri leitað. Þegar Ólafur
þarf að fara í löng og leiðinleg ferðalög
til að halda fyrirlestra á Norðurlönd-
unum er Dorrit frekar heima og setur
Mannakorn í botn. Þessi einstaki flutn-
ingur ætti að vera enn ein rósin í hnappa-
gat forsetafrúarinnar og fleyta henni í efsta
sæti X-Dominos listans.
Steinunn Valdís /
Ó borg, mín borg
Borgarstjórinn í Reykjavík þarf á
næstunni að heyja mikla baráttu um
efsta sætið á lista Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík. Miðborgin hefur átt
sérstakan hug Steinunnar Valdísar
enda lýsti hún því yfir í viðtali að
borgarstjóranum þætti gaman að
fara út á lífið. Það þarf heldur ekki
mikinn spámann til að sjá að emb-
ættið sem hún gegnir ætti að koma
Steinunni fram fyrir hinar löngu
raðir pöbbanna. Í þessum óði til
borgarinnar gefur hún hvorki Hauki
Morthens né Björk neitt eftir í flutn-
ingi sínum. Sérstakur stíll sem er
útfærður af krúttkynslóðinni í 101.
Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir / Manstu
ekki eftir mér
Hún er komin aftur. Steinunn
Ólína fylgdi manni sínum út til
Ameríku þar sem hann reynir
fyrir sér í kvikmyndaborginni
Hollywood. Hún hefur hins vegar
gefið leiklistinni frí og lagt lag
sitt við skáldagyðjuna. Steinunn
er nú komin á Klakann til að
kynna bókina sína sem þegar
hefur valdið titringi meðal ráð-
settra manna enda er hún ekki
þekkt fyrir að skafa neitt af hlut-
unum. Með „dassi“ af rokki snýr
Steinunn til baka í leðurbuxum.
Flutningur hennar á Stuðmanna-
laginu Manstu ekki eftir mér á
eftir að hrista v e l
upp í
í s le n sk u
þ j ó ð f é -
lagi.
Dorrit Moussaieff / Komdu í partí
Veistu hvað ég gerði þarna
á gamla Fordinum
bauð þeim öllum þremur
far og kveikti á Kananum
Ég spurði hvert skal aka
og hvort einhver ætti vín,
þær sögðu: „Komdu,
komdu, komdu í partí til
mín.“
Mans‘t ekki eftir mér?
Mikið líturðu vel út beibí,
frábært hár
Mans‘t ekki eftir mér?
Hvar ertu búin að vera öll
þessi ár?
Ó borg, mín borg,
ég lofa ljóst þín stræti,
þín lágu hús og allt sem
fyrir ber.
Og þótt tárið oft minn
vanga væti
er von mín einatt, einatt
bundin þér
Ekki benda á mig
segir varðstjórinn
þetta kvöld var ég að æfa
lögreglukórinn
Spyrjið þá sem voru á vakt,
Ég ábyrgist þeir munu segja
satt
Í haust er skótískan uppfull af
skóm sem amma hefði verið stolt
af. Hver hefði haldið að gamal-
dags skór með rúnaðri tá og stæði-
legum hæl í ömmustíl gætu verið
svona sexí. Þeir eru akkúrat málið
við dömulegu gamaldags pilsin og
aðsniðnu jakkana sem hafa birst
í tískuverslununum undanfarið.
Jarðlitir eru það alheitasta, sér-
staklega brúnir, grænir og gylltir
tónar sem fara bæði vel við tweed-
efnin og líka við svarta litinn sem
er allsráðandi í vetur. Þetta eintak
er frá Anthropologie í París en
Kron á Laugaveginum er með
allskyns glæsilegar
útfærslur sem þú
verður að ná þér
í. Mundu svo
bara að passa
þig á
svell-
inu.
Svalir
ömmuskór