Fréttablaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 10. nóvember 2005 5
GOLD FUTURE
DJÚPSTÆÐUR LJÓMI-RAKI-ÞÆGINDI-VINNUR GEGN LÍNUM
FYRSTA ORKUGEFANDI HÚÐMEÐFERÐIN
MEÐ VIRKU MÍKRÓ-GULLI
„ÓNÆMI GEGN ÖLDRUN“
Varnarkerfi húðarinnar veikist með tímanum.
HELENA RUBINSTEIN sækir innblástur sinn til einstakra áhrifa gullsins sem þekkt hafa verið í
gegnum aldirnar í kínverskum læknavísindum.
Sími: 568 5170
Verið velkomin á HELENA RUBINSTEIN daga fimmtudag, föstudag og laugardag.
Kynnum m.a. enn eitt undrakremið frá Helena Rubinstein: GOLD FUTURE og haust- og vetrarlitina TSARINE.
Glæsilegir kaupaukar fylgja þegar keyptar eru HR vörur fyrir 5.500 kr. eða meira.
- kvef
- ofnæmi
- eyrnabólga
- ennis og
kinnholusýking
Fæst í apótekum
Ég nota Sterimar, það hjálpar
ÍSLENSKAR LEÐURVÖRUR Í
JÓLAGJAFIR TIL STARFSMANNA
OG VIÐSKIPTAVINA.
Löngum hafa sérvitringar rótað í gömlu dóti til að leita að týndum
perlum og flóamarkaðir hafa ekki síður verið vinsælir hjá þeim
sem vilja vera frumlegir án þess að eyða stórum fúlgum. Frægasti
flóamarkaðurinn í París „Les puces de Saint-Ouen“ er við Porte de
Clingnancourt og er hundrað og tuttugu ára. Þar er ýmislegt að finna,
jafnt nýtt sem notað. Aldrei hefur sú iðja að leita verið vinsælli en
í dag. Lykilorðin eru „vintage“ og „retro“. Þessi tíska er ólík þeirri
sem alltaf á að vera fersk og ný. „Vintage“ er afturhvarf til fortíð-
ar, eins konar endurvinnsla, jafnt í innanhússskreytingum, fatnaði og
snyrtivörum. Þetta afturhvarf gengur ágætlega með vetrartískunni
sem sækir mikið í smiðju sjöunda og áttunda áratugarins. Sjálfsagt er
margt hægt er að draga fram eða finna á flóamörkuðum og nota í þeim
tíðaranda sem nú svífur yfir vötnum.
En það er ekki bara ódýrt gamalt dót sem einkennir þessa aftur-
hvarfstísku. Það er ekki síður í tíðarandanum hjá ofurfyrirsætum
og stjörnum að kaupa gamla kjóla fyrir hanastél og rauðdreglakvöld
til dæmis frá Coco Chanel eða Christian Dior. Það voru þær Naomi
Campbell og Kate Moss sem voru frumkvöðlar á þessu sviði á 9. ára-
tugnum. Þá eru slegnar tvær flugur í einu höggi, að klæðaðst ein-
hverju sem er einstakt og um leið að vera viss um að engin önnur
verði í eins kjól! Í október bauð stórverslunin Printemps á Hauss-
mann-búlvarðinum upp á flóamarkaðsstemningu á sérstöku svæði
og voru viðbrögðin svo góð að verslunin íhugar að opna sérstaka
„vintage-búð“ sem verður opin til frambúðar. En því miður verður
þessi tíska til að hleypa upp verðinu á gamla dótinu sem verður allt í
einu að fágætum forngripum.
Heimilin fara ekki varhluta af þessari tísku. Ekkert er heitara
hjá mörgum í dag en að búa heimilið aðeins munum og mublum sem
eiga sér sögu og hafa sál. Svo eru þeir sem hafa notað sér „vintage“
tískuna og framleiða til dæmis húsgögn og húsbúnað sem er gerður
gamall með ákveðinni tækni en er í raun glænýr. Reyndar er þessi
framleiðsla orðin svo algeng að kaupendur vita ekki lengur hvað þeir
eru að kaupa og sumir reyna að svindla á saklausum kaupendum og
selja nýja vöru sem forngripi. Svo er enn ein tískan í innanhússkreyt-
ingum sem verður æ vinsælli og er kallað „deco de charme“. Þá eru
gömul húsgögn tekin í gegn og máluð án þess að reynt sé að leyna
uppruna eða aldri; til dæmis hluta af útskornum rúmgafli sem verður
að skúlptúr í stofu. bergthor.bjarnason.wanadoo.fr
Afturhvarfstíska og endurvinnsla
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Tískuvikunni í London hefur
verið seinkað í von um að fleiri
geti sótt hátíðina.
British Fashion Council tilkynnti í
vikunni að London Fashion Week
verði haldin frá miðvikudeginum
15. febrúar til sunnudagsins 19.
febrúar. Ákveðið var að færa dag-
setninguna í þeirri von að tísku-
vikan í London fengi meiri athygli
í tískuheiminum, Tískuvikunni í
New York lýkur fjórum dögum
áður en Lundúnahátíðin byrjar.
Hins vegar munu fyrstu tveir
dagar tískuvikunnar í London
skarast við tískuvikuna í Mílanó.
Með þessu minnkar heildarfjöldi
sýningardaga í Evrópu. Aðstand-
endur tískuvikunnar í London
vonast þó til að enn fleiri hönnuðir
geti tekið þátt og að fleiri gestir
muni gera sér ferð til London.
Tískuvika í London