Tíminn - 24.10.1976, Síða 10

Tíminn - 24.10.1976, Síða 10
10 HMINN Sunnudagur 24. okUber 197« Skipaútgerð ríkisins Ritað um Skipaút- gerðina og rætt við Guðjón F. Teitsson forstjóra Enn veröur um sinn lialdiö áfram aö kynna islenzk fyrirtæki i helgarblööum Timans, svo sem veriö hefur um nokkurt skeiö, meö hléum. Aö þessu sinni kynn- um við SKIP AtlTGERÐ RtKISINS og áttum m.a. samtai viö Guöjón Teitsson, forstjóra, sem gegnt hefur forstjórastarfi viö útgeröina i aldarfjóröung, en hefur annars starfaö þar siðan áriö 1929, er hann var fyrst skrif- stofustjóri Skipaútgeröarinnar. Þaö veldur á stundum nokkrum erfiðleikum við kynningu fyrir- tækja, aö ekki er ótakmarkaö rúm i blaðinu, og er ekki timinn heldur ótakmarkaður hjá blaða- mönnum. Verður þvi að stikla á stóru og oft aö fara hratt yfir mikla sögu i atvinnugrein og starfi. Svo fer einnig hér. Saga Skipaútgerðarinnar, saga strand- feröanna er orðin löng meö þjóð- inni og til þess að stytta leiðina munum við reyna að segja örstutt ágrip af sögu strandferðanna og vitnum þá til merkilegrar bókar, er Gisli heitinn Guðmundsson, alþingismaður skráöi þegar Skipaútgerð rikisins var 20 ára, en þaö var áriö 1949. bó er hér aðeins rakinn einn þáttur útgeröarinnar, en fyrstu 23 árin rak skipaútgeröin einnig varöskipin, en þau voru á hinn bóginn sett undir sérstaka stjórn áriö 1952. Upphaf strandferða 1 áöurnefndu riti sinu segir Gisli Guðmundsson á þessa leiö um upphaf strandferða:. „Telja má, að reglubundnar strandferðir við tsland séu nokkurnveginn jafngamlar lög- gjafarvaldi hins endurreista Alþingis tslendinga. A fyrsta löggjafarþinginu, sumarið 1875, var flutt i neðri deild svohljóðandi „uppástunga til ályktunar um komustaði hins Islenzka póstskips. Frá Tryggva Gunnarssyni, 1. þingmanni Suður-Múlasýslu:” „Neöri deild Alþingis ályktar að fara þess á leit við stjórnina, aö hún sjái svo fyrir, að þaö verði gert að ófrávikjanlegri reglu, meöan ekki komast á reglulegar gufuskipaferðir kringum strend- ur tslands, aö hið is- lenzka póstskip komi við i þremur sumarferðum þess fram ogtilbaka á Seyðisfirðiog i Vest- mannaeyjum, en ekki Djúpavogi, eða i hið minnsta, að þvi sé skylt að biða þrjú dægur til að komast inn á Seyðisfjörð og eitt dægur viö Vestmannaeyjar, nema ofveður eða önnur slik óviöráöanleg atvik banni.” . Tillaga þessi, sem samþykkt var á hinu fyrsta löggjafarþingi, bregður upp einkennilegri en sannri mynd úr samgöngumálum tslendinga eins og þeim var fyrir komið I bernsku þeirra, sem nú eru um áttræðisaldur. „Hið is- lenzka póstskip” var gufuskipið Diana, gert út til 7 lslandsferða á ári á timabilinu 1. marz til 30. nóv. á vegum dönsku stjórnarinn- ar og á hennar kostnaö sam- kvæmt ákvæðum „Stöðulag- anna” frá 1871. Eini fasti við- komustaður þess hér á landi var Reykjavik, en svo hafði veriö „til tekið,” aö skipið kæmi i þrem ferðum á Djúpavog „þegar kringumstæður leyföu”. Þetta hafði þó „margoft brugðizt”, og höfðu farþegar, er til Austurlands ætluðu, stundum lent til Kaup- mannahafnar af þeim ástæöum. En þetta voru einu skipakomur á islenzkar hafnir, að opinberri til- hlutan. Póstskipaferðir til íslands á vegum dönsku stjórnarinnar hóf- ust árið 1778, en gufuskip komu ekki i notkun fyrr en löngu siðar. Siðasta seglskipiö, sem þessar póstferðir annaðist, var Sæijónið (Sölöven), 108 tonn aö stærð, eða álika og hinir stærri vélbátar fiskiflotans nú á timum (1949). Það fórst með allri áhöfn i ofsa- veöri út af Snæfellsnesi áriö 1857, og kom þá gufuskip I þess stað. Gufuskip þetta hét Arcturus472 br. tonn að stærð, eöa nokkru stærra en Herðubreiö og Skjald- breiö, en minna en Súðin. Auk tillögunnar um viökomu- stað póstskipsins samþykkti Alþingi 1875 „uppástungu til ályktunar um gufuskipaferöir meðfram ströndum Islands” og veitti til þeirra nokkurt framlag á hinum fyrstu fjárlögum, er það afgreiddi samkvæmt stjórnar- skránni, en ætlazt var til, að póst- sjóöurinn danski hefði með hönd- um framkvæmdir og bæri kostn ESJA, fyrsta strandferðaskipiö, sem smlðað var fyrir tslendinga 1923. Skipið var gert út til 1938er nýja ESJA var smfðuð. Guðjón F. Teitsson, forstjóri Skipaútgeröar rlkisins er fæddur 14. febrúar árið 1906 að Grimarsstööum I Andakilshreppi i Borgarfirði og voru foreldrar hans þau Teitur Slmonarson, bóndi þar og kona hans Ragnheiður Danielsdóttir, Fjeldsted. Að aflokinni skóiagöngu hér heima og erlendis varð hann fulltrúi I dómsmálaráðuneytinu árið 1929og var siöan faliðað stofna Skipaútgerð rikisins ásamt Pálma heitnum Loftssyni. Var Pálmi forstjóri, en Guðjón skrifstofustjóri útgerðarinnar. Guðjón F. Teitsson tók við forstjórastarfi hjá Skipaútgerðinni árið 1953, en hafði þá gegnt starfinu I um eins árs skeiö I forföllum Pálma Lofts- sonar, er andaðist árið 1953. Guðjón hefur auk þess að vera forstjóri skipaútgerðarinnar, sinnt margvfslegum trúnaðar- störfum fyrir það opinbera og er kunnur maður af störfum slnum og merkilegum greinum, er hann hefur ritað f blöö- og þá einkum um samgöngumál landsbyggðarinnar. Guðjón F. Teitsson, lætur nú af störfum viö útgerðina fyrir aldurs sakir. að, er umfram yröi framl. lands- sjóðs. Hófust siðan strandferöir áriö 1876, og voru tvær á þvi ári, en þrjár á árinu 1877, og viðkomu- staöirsex. „Diana”, sem fyrr var nefnd, annaðist strandferðir þessar, og fór auk þess milli landa, en þar aö auki sá Sam- einaða gufuskipafélagiö um 7 millilandaferðir á ári, með við- komu i Reykjavik og Vestmanna- eyjum. Sem vænta mátti þóttu slikar strandferðir engan veginn full- nægjandi, og kom það fram á Alþingi á næstu árum. En danska stjórnin var mjög treg til að fjölga feröum þessum, og virðist ekki hafa haft trú á, að þær yrðu til frambúðar. Ennfremur þetta: „Á árunum 1880-95 hélt „Sameinaða” uppi strandferðum með skipum sinum, samkvæmt samningi viö stjórnina og með nokkrum styrk frá Alþingi. Munu strandferðir (hringferðir) þá flestar 5-6 á ári, en stundum ekki nema 3-4. Skipin voru gerð út i Danmörku og hófu ferðimar þaðan, og voru millilandaferöim- ar raunar ávallt mun fleiri en strandferöirnar. Ýmsir muna enn skip, sem i förum voru á þessum árum, enda er þeirra allviða get- iö. Hin Helztu þeirra vom Arctur- us, sem fyrr var nefndur, Valde- mar (821 br. tonn), Phönix (721 Hiðfræga skip Súðin, sem af mörgum var talið eitt sterkbyggðasta skip i heimi. Byrjaði sem ,,brauð- og flotamálaráð- herra" í tíð Jónasar frá Hriflu Jónas frá Hriflu lét full- trúa sinn opna póst sinn og hélt sérstök „bréfakvöld". AAenn skrifuðu Jónasi um alla heima og geima Þormóðsslysið varð til þess að flýta fyrir endurnýjun skipaflota Skipaútgerðar ríkisins

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.