Tíminn - 24.10.1976, Blaðsíða 25

Tíminn - 24.10.1976, Blaðsíða 25
Sunnudagur 24. október 1976 TÍMINN 25 Grænlandsdægur Ása i JG RVK —Asi i Bæ, rithöfundur frá Vestmannaeyjum hefur sent frá sér nýja bók, er hann nefnir „Grænlandsdægur” og er það önnur bók höfundar frá Græn- landi, hin kom út fyrir nokkrum árum, „Granninn i vestri” (1971). Við áttum stutt viðtal við Ása i Bæ i tilefni af útkomu bókar- innar og hafði hann þetta að segja: — Ég dvaldi á Grænlandi sumarið 1969 og kom ekki samur maður heim. Ég hreifst af hrikafegurð þessa lands og ekki siður af þjóðinni, sögu hennar og menningu. Það er mjög erfitt að lýsa þeim áhrifum, sem maður verður fyrir þarna og það er ef til vill lika skýringin á þvi hvers vegna þetta land er yfirleitt byggt. — Ef til vill kynntist ég þó Grænlandi fyrst og fremst hið ytra á þessu sumri, erfiðu atvinnulifinu, hörðu, köldu grjótinu, sem ekkert vinnur i rauninni á, og þessu glaðværa fólki, sem við nefnum Græn- lendinga, til aðgreiningar frá Dönum, sem lika búa á Græn- landi. — Sumarið 1975 fór ég ásamt fjórum mönnum öðrum til Grænlands og sat ráðstefnu i Sisimiút, sem ber hið virðulega heiti Holsteinsborg á dönsku. Við ræddum vandamál og þá kom ýmislegt merkilegt i ljós. Þá sá ég að hin bókin dugði ekki, ef ég á annað borð ætlaði að skrifa mig frá þessu makalausa landi. — Er þetta ljóðabók? — Það held ég ekki, en þó held ég að tónlist og ljóðlist lýsi Grænlandi betur en til að mynda sagnfræðiog útreikningar. Hver og einn verður að gera það upp við sig hvort þetta eru ljóð eða ekki, alveg eins og menn verða að gera það upp við sig, hvort það er sjósókn, eða útgerð að vera á skaki við Vestmanna- eyjar eitt sumar, eða hvort það er endurfæðing. —- Ég hef verið á skaki i sumar við Eyjar og það voru dýrðlegir timar. Ef maður er þunnur, þá læknast það um leið og maður finnur mastursfiskinn bærast undir fætinum þegar maður stigur um borð i trilluna. Með svipuðum hætti hafa Græn- lendingar orðið til, maður stigur á eitthvað sem bærist og maður finnur að allt hefur breytzt. — Nú er bókin myndskreytt. Hver annaðist það? — Það gerði Tryggvi ólafs- son, listmálari, en hann býr i Kaupmannahöfn. Þetta hefur tekizt mjög vel hjá Tryggva og Ragnar Lár gerði káputeikn- ingu og vann upp úr einni af myndum Tryggva. Setberg prentaði. — Hefur þessi bók sérstakt gildi fyrir islendinga? — Hún hefur það, og ef til vill alþjóðlegt gildi lika ef það er ekki of stórt orð fyrir þá sem hafa róið á trillu i sumar, og hafa ekki fiskað alltof mikið. — Þá hafa vinir minir, sem búsettir eru erlendis sýnt mik- inn áhuga á að fá bókina þýdda á Norðurlandamálin. Er það allt i athugun, og of snemmt er að greina frá þvi hér og nú. Það er áhugi á Grænlandi viðar en á Is- landi og menn gefa háum norð- lægum breiddum meiri gaum en áður var, sagði Asi i Bæ að lokum. Þess má geta að Grænlands- dægur er i allstóru broti, 96 siður. Hún er væntanleg i bóka- búðir næstu daga. í tilefni af útkomu bókarinnar efnir Tryggvi Ólafsson til sýn- ingar á myndum úr Grænlands- dægrum og verður sú sýning opnuð innan skamms á Mokka, Skólavörðustig. JG n Kaupum vel unnar LOPAPEYSUR alia fimmtudaga eftir hádegi í Gefjunarbúð- inni á Akureyri og Gefjun Austurstræti alla virka daga milli klukkan 1 og 4. Hugmyndabankinn SAMVIRKI tekur að sér raflagnir í: virkjanir hús skip verksmiðjur SAMVmKIS* Kópavogi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.