Tíminn - 24.10.1976, Qupperneq 36

Tíminn - 24.10.1976, Qupperneq 36
36 TÍMINN Sunnudagur 24. október 1976 TÍMA- spurningin Hvað finnst þér bezt og hvað verst i þjónustu hins opinbera? GuOmundur GuOmundsson: — Ég man ekki eftir neinu áberandi bezt, en verst eru dómsmálin. Þau eru i ólestri. Siguröur Oddgeirsson: —Þaö týnistallt ikerfinu. Pétur Magnússon: — Mér finnst verst, hvaö skattarnir eru háir. En góö þjónusta sýndi sig i landhelgismálinu, enda þótt viö hefö- um ekki átt að semja bið Breta. Einar Sigmundsson: — Ætli allt sé ekki ágætt aö öllu leyti. Stefán Jónsson: — Mér finnst verst, þegar hiisnæöismálastjórn sendir ekki tilkynningar um lánagreiöslur, og svo er bara hús- eign manns tekin lögtaki einn daginn. Annars er okkar lýöræöisskipulag gott. Viö getum þó alltaf sagt okkar álit. lesendur segja Gróa á Leiti lifir Gamall AlþýOuflokksmaöur skrifar: Alkunn er Sagan um Gróu gömlu á Leiti, fræg sögupersóna aö endemum, sannur samnefn- ari allra þeirra, sem iðka aö út- breiða róg og nið um samborg- ara sina með verulegu magni af lygasögum til áhrifa auka. Þegar ungur maður, sem ætla mætti sæmilega vitiborinn, er að hasla sér völl á sviði stjórn- málanna, hlýtur hann' aö gera sér grein fyrir, hvernig hyggi- legast sé að leggja grundvöllinn aö pólitisku starfi, svo þaö beri sem rikulegastan ávöxt fyrir hann sjálfan og flokk þann, sem hann ætlar að tileinka krafta sina. Maðurinn, sem hér er átt viö og ég hef i huga, er Vilmundur Gylfason. — Hann tilheyrir Al- þýðuflokknum og var i framboði fyrir hann i siðustu Alþingis- kosningum. Vilmundur skrifar harla litið i Alþýöublaðiö og engar áhyggjur virðist hann hafa fyrir flokk sinn og blað þessa stundina þótt allt þar sé aö kollsteypast. Þar væru vissu- lega i alvöru stór og brýn verk- efni fyrir ungan hugsjónarmann aö glima við. — En i staöinn fyrir að dytta að hinum hálf- dauða flokki sinum — Alþýðu- flokknum — gerist Vilmundur enn. leigupenni harðsviruðustu fjár- málaspekúlanta þjóðarinnar, sem einskis svifast til þess eins að koma pólitiskum andstæöingi á kné. Vilmundur hefur skrifað til skiptis I blöð þessara fjár- spekúlanta. Hann skrifar þá hinar sóðalegustu ritsmiðar i Leitis-Gróustil, vitanlega nið og meira nið um ýmsa bestu menn þjóðarinnar, framámenn Framsóknarflokksins eru þar ekki undanskildir. Fátt eitt af slúðrinu er fullyrten þvi er sleg- ið fram sem mögulegu I spurnar formi svo sem: Hefur þessi ekki gerst brotlegur? — Þetta er nú almannarómur ekki satt? o.s.frv. Þessum gómsæta rétti fylgir svo mynd af ungum og mjög sakleysislegum manni eins kon- ar Frelsaramynd, sem fæstir gætu trúað að segði eitt einasta orð ósatt. Með þessari viðbjóðslegu aö- ferð og ódyggð i fyllsta máta er Vilmundur Gylfason að leggja hornstein að framtið sinni og sinum pólitiska frama. Vilmundur mun heita i höfuð afa sins, Vilmundar Jónssonar landlæknis, sem allir töldu stór- gáfaðan drengskaparmann. Úr þeirri átt skyldi maður sist ætla, að litli Vilmundur fengi áhuga r og ást til niðinga og þrýsti hópa fjárglæframanna. En hvernig væri nú fyrir Vil- mund litla Gylfason — til að komast hjá þvi að kafna undir nafni — að taka upp baráttuaö- ferðir afa sins og hinna djörfu og ágætu frumherja jafnaðar- stefnunnar og gera Alþýðu- flokkinn að stórveldi i is- lenskum stjórnmálum? — En vitanlega yrði þá Vilmundur fyrir fullt og allt að leggja til hliðar fjósamennskuna hjá hinu biksvarta afturhaldi enda þótt hún sé allsæmilega launuð. Nokkuð er það hlálegt, að Vil- mundur skuli ekki skrifa sorp- greinar sinar i Alþýðublaðið, hans eigið stjórnmálablað. Ætla mætti að sala blaðsins. ykist þá daga i það minnsta ef Frelsara- myndin fylgdi ritsmiðinni. Það er dapurlegt fyrir okkur, sem kusum Alþýðuflokkinn og dáðum fyrrmeir að sjá hann i gervi umskiptings i greipum nú- verandi stjórnarmanna. Þvi skora ég á alla heiðarlega unga og eldri Alþýðuflokksmenn að losa gamla flokkinn okkar úr álögum og koma honum á ný til vegs og virðingar i islensku stjórnmálalifi, og jafnframt verður þá að frelsa Alþýðu- blaðið úr einræðisviðjum hins „Forna Fjanda” — . Ósmekkleg notkun skjaldarmerkisins í auglýsingu á hermannaflíkum H.T. hringdi: Það er ekkert nýtt að i blöðum hjá okkur birtist ósmekklegar auglýsingar, sem jafnvel jaðra við að vera siðlausar. Verzlunarstéttin hefur að þessu leyti haslað sé völl á heldur lágu plani. Þó get ég ekki að þvi gert að mér finnst nú keyra um þver- bak, með auglýsingu sem ég sá i Morgunblaðinu á föstudag. Þessi auglýsing er hálf siða og er frá einni af tizkuverzlunum unga fólksins i höfuðborginni. t henni eru auglýstar hermanna- skyrtur til sölu. Það sem keyrir um þverbak i auglýsingu þessari er, aö til þess að auglýsa þessar hermannaskyrtur, sem raunar er búningur sem ég tel vart sæma tslendingum, er notað skjaldarmerki islenska rikisins, eins og það kemur fyrir i merki Flugmálastjórnar tslands. Upp að merkinu hallar sér ung stúlka, væntanlega islensk, iklædd hermannaskyrtu. Ég hef áður séð ósmekklegar auglýsingar og það frá þessari sömu verzlun, en nú þykir mér of langt gengið. Hvert stefnir eiginlega hjá okkur? Við búum við þaö aö hafa her á Suðurnesjum, er- lendan her, en á hvaða stigi er siðferðisvitund okkar niður sett, ef skjaldarmerki rikisins er notað til að selja stælingar af flikum þessa hers, eða annarra herja? Onnur spurning vaknar einnig og hún er sú hvernig siðferðis- vitund blaðaútgefenda er, ef þeir birta annað eins og þetta? Þvi spyr ég enn: Hvert stefnir?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.