Tíminn - 24.10.1976, Blaðsíða 29

Tíminn - 24.10.1976, Blaðsíða 29
Sunnudagur 24. október 1976 TÍMINN 29 Frœdslufundir um kjurasamninga V.R. krampa, haldið á þvi hita, veitið þvi hjálp við öndun, ef nauðsyn ber til, og farið þegar i stað með það á sjúkrahús. Hafið meðferðis ilátið undan eiturefninu, merki- miða þess, það sem eftir er af innihaldinu eða sýnishorn af upp- sölu, ef fyrir hendi er, til hjálpar við að greina eitrið. Uppköst — eða ekki Komið ekki af stað uppsölu, ef barnið hefur gleypt eyðandi efni, s.s. vitisóda, eða oliuefni, s.s. steinoliu. í fyrra tilvikinu geta uppköst aukið alvarlega á bruna i hálsi og munni. Ef kastað er upp oliuefnum getur orsakast lungna- bólgu af efnafræðilegum toga og gegn henni duga engin fúkkalyf. Auk þess sem eiturilátið segir til um, gefa brunasár kringum munn til kynna eyðandi efni og lykt af andardrætti gefa vis- bendingu um oliuefni. Dæmi um eyðandi efni: Sýrur (saltpéturssýra, ediksýra, brennisteinssýra, o.fl.), Lútar (þvottaefni, vitisódi, salmiak, naglalakkseyðir (aceton) o.f 1.). Dæmi um oliuefni: Steinolia, bensin o.fl. Ef barnið er með meðvitund, fær ekki krampaköst og þarf ekki hjálp við öndun, er fyrsta viðfangsefni þitt að þynna hið hættulega efni án tillits til hvert það var. Hvort sem efnið er eyðandi eða ekki, oliuefni eða of stór lyfjaskammtur, þynntu þá efnið með þvi að gefa barninu vatn eða mjólk (sjá i leið- beiningum um fyrstu hjálp um magnið). Ef barnið hefur gleypt eyðandi efni eöa oliuefni (og eftir að þú hefur þynnt það með mjólk eða vatni) er næsta skref að koma þvi á sjúkrahús þegar í stað, — og taka með þér ilát eitursins, merkimiða og afgangsinnihald tii þess að aðstoða við að greina efnið. Ef stutt er til næsta læknis eða slysadeildar :Eyðiö ekki tima i að framkalla uppköst sjálf — leggið alla áherzlu á að koma barninu undir læknishendur sem fyrst. Ef langt er tii næsta læknis eða slysadeildar: Þar sem rétt er að koma af stað uppköstum er bezta aðferðin að gefa eina matsk. af ipecacsaft og aö minnsta kosti einn bolla af vatni. Ef ekki er kastað upp innan 20.minútna, má endurtaka skammtinn — aðeins einu sinni. Ipecacsaft er fáanleg hjá lyfsölum, og ætti að vera til á heimilum, sem eru þannig i sveit sett, að langt er i læknishjálp. Hægt er að kaupa litinn skammt af ipecacsaft án lyfseðils. Ipecacsaftin er búin til úr suður-ameriskri plöntu og veldur svo til örugglega uppköstum, þvi hún orsakar að heilinn segir mag- anum að tæmast. Ef ipecacsaft er ekki við hend- ina, komið þá af stað uppköstum með þvi að stinga skeiðarskafti eðafingriofan ikok á barninu. Til þess að varna þvi að uppsala lendi i öndunarpipum og lungum barnsins, er bezt að leggja það á gnifu með höfuðið lægra en mjaðmir: litit börn er bezt að leggja yfir hnén i „flengingar- stellingu”. Gefið ekki saltvatn til að koma af stað uppköstum. Sannast hefur að salt er hættulegt sem uppsölu- lyf. Ef ekki er kastað upp innan 20 minútna af einhverjum ástæðum, má endurtaka ipecacinngjöfina — aðeins einu sinni eins og þegar hefur verið sagt. Hringdu i næsta lækni eða sjúkrahús og fáðu frekari fyrirmæli. Munið að við komuna til sjúkrahúss á að hafa meðferöis eiturilátiö, merkimiða og afgang eitursins ef fyrir er eða sýnishorn af uppsölu. Komið barninu strax undir læknis hendur. Hringið á slysa- deild, sjúkrahús eða i næsta lækni og gerið grein fyrir hvað gerzt hefur, fáið frekari fyrir- mæli. Ef annar aðili getur kallað á hjálp, byrjið þá strax fyrstu hjálp. Eiginleikar eitursins ákvarða hvaða fyrsta hjálp er veitt — eins og bent er á hér að neðan — þar til iæknis- hjálp fæst. Ef barnið er meðvitundarlaust eða meö krampa: Reynið ekkiað gefa barninu vökva og framkallið ekki uppköst. Hefjið öndunarhjálp, liggi barninu við köfnun. Haldið þvi heitu og komið þvi á sjúkrahús strax. Takið með umbúöir eiturs- ins, merkimiða, afgang eitursins (ef einhver er) eða sýnishorn af uppsölu til hjálpar við að greina eitrið. Ef barnið hefur tekið inn ætandi (eyðandi, brennandi) efni, eða oliuefni: Framkallið ekki uppköst. Gefið barninu vatn eða mjólk. Skammtur: 1 til 2 bollar fyrir barn undir 5 ára aldri, — allt að L.litri fyrir börn 5 ára og eldri. Komið barninu strax á slysadeild eða sjúkrahús — takið með umbúðir eiturs- ins, merkimiða eða afgang til' hjálpar við aö' greina eitrið. Ef barniö hefur tekið inn lyf i of stórum skammti eða eitur, sem ekki er ætandi (eyðandi, brenn- andi) efni eða oiiuefni: Gefið barninu vatn eða mjólk. Skammtur: 1 til 2 bollar fyrir börn 5 ára og yngri — allt að 1 litri fyrir börn 5 ára og eldri. Komið af stað uppsölu með þvi að stinga fingri eða skeiðarskafti ofan i kok barnsins. Gefið ekki salt- vatn. Komið barninu strax á slysadeild eða sjúkrahús, takið með umbúðir, merki- miða, afgang eiturs eða sýnishorn af uppsölu. Ef iangt er i næsta lækni eða sjúkrahús. Gefið 1 matskeið af ipecacsaft, með a.m.k. 1 bolla af vatni. (Ef engin uppköst verða innan 20 minútna, má endur- taka skammtinn einu sinni). LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER PUNDIÐ FELLUR TEPPIN LÆKKA VERÐ PER/ FERM. Litavers verðlisti yfir GÓLFTEPPI komið á gólfið Einnig seljum við teppin þvert af rúllu og þá lækkar verðið enn meir Nú er tækifærið fyrir alla þá sem erui í gólf - teppahugleiðingum KOMIÐ — SJÁIÐ — SANNFÆRIZT Lítið við_L UTAVER því það Bouquet ,. 3,364 Regency og Bohemia .. 3,250 Orion Sherwood .. 2,680 Jupiter .. 2,150 Aquarius Ria .. 3,250 Harvard Ria .. 2,500 Florence . 3,364 Zeppelin .. 3,660 St. Lawrence .. 2,680 Madison ,. 2,680 Elizabethan Senator.. .. 2,950 * hefur ávallt borgað sig u3Avin-u3Avin-u3AVin-u3Avin-y3AVin-y3AVin-n3Avin-a3AVin ERTU AÐ HUGSA UM UTANLANDSFERÐ LONDON licrðir tvisvar í viku. laugardaga og þriðjudagá'. vikudvöl á góðum ('<C og ódýrum hótelum, Stratford Couh í QxÍQrdstræti og Londoner og Clifton Ford í Welbeck stradli. Ölt herbergi með baði. wc„ útvarpi og yíý sjónvarpi. Margvísleg önnur þjónusta. V.insælar fcrðir. Kynnið ykkur kjörin. y/ GLASGOW -y Ferðir aðra hvora helgi, farið á föstu'dögum og komið aftur á mánudögum. ö: Gott hótel,- Ingram-hótel, miðsvæðis. KAUPMANNAHÖFN Ferðir vikulega. Hótel Westend, Viking og Falcon. Hagstæðustu kjör sem völ er á. KANARIEYJAR Gran Canari og Tenerife. 30 ferðir vikulega í vetur. Margs konar gistirými um að velja, hótel, íbúðir og smáhýsi. Sérstakur Alþýðuorlofsafsláttur. Tryggið ykkur dvöl í tíma. 8 ferðir nú þegar uppseldar. Veitum sérstakan hópafslátt og barnaafslátt. Hajið i’iðskipti þar sem kjörin eru bezt. f jS|k Fef6ostírl(>tota kiunp«goMmtakefnna _ . 5 n ... V vy / linosrN — LANDSYN - ALÞYÐUORLOF SKÓLAVÖRÐUSTlG 16 SÍMI 28899 11 LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER-LITAVER

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.