Fréttablaðið - 22.11.2005, Side 37
Jólaundirbúningurinn er í fullum
gangi á Akranesi eins og víða um
land. Á meðal þeirra sem standa
í slíkum undirbúningi er hópur
eldri borgara sem hittast tvisvar
sinnum í viku og föndra allt á
milli himins og jarðar.
Júlía Baldursdóttir er umsjónar-
maður hópsins, sem er starfrækt-
ur af Akranesbæ. Hún segir að
ýmis námskeið séu í boði, þar á
meðal í leir- og glerlist. Einnig
getur fólk stundað perlusaum,
kertamálningu, kortagerð og
jólakúlugerð. Kúlurnar, sem eru
hengdar upp í glugga, eru ætlaðar
til jólagjafa en ekki til almennr-
ar sölu. „Þetta byrjaði fyrir yfir
tuttugu árum síðan og er ennþá
að þróast. Við vorum til marg-
ra ára á Dvalarheimilinu Höfða,
þangað til fyrir þremur árum. Þá
fengum við félagsaðstöðu Félags
eldri borgara við Kirkjubraut 40,“
segir Júlía. „Við hvetjum fólk
líka til að koma með sína eigin
handavinnu til að fá félagsskap-
inn. Við bjóðum upp á kaffi og
með því á vægu verði og ágóð-
ann notum við til að kaupa ýmis
tæki, til dæmis mót fyrir gler-
bræðslu og ýmislegt í sambandi
við kortagerð. Við erum mjög vel
útbúnar í hvað sem er og kaffi-
salan hefur hjálpað mjög upp á,“
segir Júlía. Hún bætir því við að
konurnar sem mæti á námskeiðin
hjálpi henni líka við að leiðbeina
hinum. „Ég kemst ekki yfir allt
og þær styðja hvor aðra. Það er
skemmtilegt andrúmsloft hvað
þetta snertir og þær gera þetta
með glöðu geði.“
Föndra jólakúlur og stunda perlusaum
Jólakúlurnar fallegu sem eldri borgararnir
föndra eru ætlaðar til jólagjafa.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { vesturland } ■■■■
Sauðkindin hefur verið stór hluti
af lífi Íslendinga frá því að fyrstu
landnámsmennirnir stigu fæti á
íslenska jörð. Þessu gera Borgnes-
ingar sér grein fyrir og á undan-
förnum tveimur árum hefur verið
haldin í bænum svokölluð Sauða-
messa þar sem íslenska sauðkindin
er vegsömuð og dáð.
Gísli Einarsson dagskrárgerðar-
maður hefur haldið utan um skipu-
lag þessarar hátíðar, sem hann segir
hafa heppnast einstaklega vel nú í
október. „Þannig var nú mál með
vexti að við fórum að ræða það
hvernig við gætum blásið frekara
lífi í Borgarnes merð uppákomum
af einhverju tagi. Við komumst
síðan að þeirri niðurstöðu að sauð-
kindinni, sem hefur haldið lífinu í
þjóðinni í gegnum aldirnar, hefði
ekki verið gert nógu hátt undir
höfði. Því ákváðum við að fagna
sauðkindinni með ýmiss konar
sauðshætti,“ segir Gísli og hlær.
Hann segir undirtektirnar hafa
verið nokkuð góðar og menn séu
jafnvel jákvæðir á því að endurtaka
herlegheitin að ári. „Reyndar hefur
gamla mjólkursamlagshúsið, sem
við höfum notast við seinustu tvö
ár, verið tekið undir aðra starfsemi.
Það stendur hins vegar til að bygg-
ja reiðhöll í bænum og með tilkomu
hennar verðum við síður háðir
veðri og vindum. Þessi hátíð hefur
verið mjög vel sótt og á seinasta ári
voru gestir um fimm þúsund tals-
ins. Aðstaðan varð hins vegar allt
of lítil með öllum þessum fjölda. En
ef reiðhöllin verður komin upp fyrir
næsta haust held ég að það verði
engin spurning um að við höldum
Sauðamessu að ári.“
Sauðamessa afar
vinsæl í Borgarnesi
Gísli Einarsson dagskrárgerðarmaður vill veg sauðkindarinnar sem mestan.
11