Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2005, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 22.11.2005, Qupperneq 50
 22. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR26 Vegna gífurlegrar aðsóknar Lau. 26. nóv. kl. 14 Sun. 27. nóv. kl. 14 Miðar í síma 511 4200 og á www.kabarett.is EKKI MISSA AF KABARETT! Allra síðustu sýningar 25. nóv. kl. 20 (aukasýning) 26. nóv. kl. 20 ALLRA ALLRA SÍÐASTA AUKASÝNING 2X5_Kabarett 19.11.2005 16:13 Page 1 �������� ������� �� ��������������������� � � � ����������������������������������������������������������������������� ����������� ������������ �������������� �� ����������� ���������������� ���������� �� ���������������������������������� ��������������������������������������������������������������������� �������������������������������������������� ������������������������������������ ��������������������������� ����������������������������������� ������������������������������������������������� ����������������������� ���������������������������������� ������������������������������������������������ Stóra svið Salka Valka Fi 24/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20 Su 4/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20 Woyzeck Lau 26/11 kl. 21 Su 27/11 kl. 21 Þr 29/11 kl. 20 UPPS Fi 1/12 kl. 20 Fö 2/12 kl. 20 Mi 7/12 kl. 20 UPPS Fi 8/12 kl. 20 Fö 9/12 kl. 20 Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21 Kalli á þakinu L au 26/11 kl. 14 Su 27/11 kl. 14 Su 4/12 kl. 14 Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14 Id - HAUST Wonderland, Critic ´s Choice? og Pocket Ocean Mi 23/11 kl. 20 ATH síðasta sýning! Nýja svið/Litla svið Lífsins tré Fö 25/11 kl. 20 Lau 26/11 kl. 20 Fö 2/12 kl. 20 Lau 3/12 kl. 20 Þr 27/12 kl. 20 Alveg brilljant skilnaður Su 27/11 kl. 20 UPPSELT Má 28/11 kl. 20 UPPSELT Su 4/12 kl. 20 UPPSELT Fi 29/12 kl. 20 AUKAS. UPPSELT Fö 30/12 kl. 20 AUKAS. UPPSELT Síðustu sýningar! Manntafl Fi 24/11 kl. 20 Mi 30/11 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20 GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. MIÐASALA: www.midi.is og í Iðnó s. 562 9700 ÉG ER MÍN EIGIN KONA Næstu sýningar: fim. 24.11 kl. 20 ósóttir miðar í sölu fös. 25.11 kl. 20 uppselt lau. 26.11 kl. 20 ósóttir miðar í sölu sun. 27.11 kl. 20 ósóttir miðar í sölu Ath. ósóttar pantanir seldar viku f. sýn. BÓKMENNTIR [UMFJÖLLUN] Steinunn Sigurðardóttir er höf- undur tregans í íslenskum bók- menntum. Hún skrifar ástarsögur, en ekki um ástina því hún er ekki fréttnæm fremur en hamingjan. Hún skrifar um ást sem bíður ósig- ur, um söknuðinn, tregann og eftir- sjána. Og henni tekst að gera það vel, skrifa tilfinningaríkan texta án tilfinningasemi, viðkvæman án væmni. Nú eru nítján ár síðan braut- ryðjendaverk hennar á þessu sviði, Tímaþjófurinn, kom út. Stóra bókin um ástarsorgina þar sem Steinunn ferðaðist óhrædd milli prósa og ljóðs til að lýsa og fylgja eftir skapsveiflum og hug- arástandi aðalpersónunnar, Öldu. Og það eru tíu ár síðan Hjartastað- ur kom út, bókin sem færði henni Íslensku bókmenntaverðlaunin og fjallaði á svo eftirminnilegan hátt um samband mæðgna og ótal- margt annað. Þessar bækur eru nefndar því nýja skáldsagan hennar, Sólskins- hestur, fjallar um þetta efni: um ástina og um mæðgnasamband. Lilla, sú sem söguna segir, hefur átt bernsku með vel stæðum for- eldrum sem þó eru tæpast for- eldrar; Haraldur og Ragnhildur hafa öllu öðru að sinna en börnum sínum Lillu og Mumma. Lilla kynn- ist umkomulausri ógæfumann- eskju í nágrenninu sem fékk ekki að hafa dóttur sína hjá sér. Örlög dætranna, sem í vissum skilningi eru báðar móðurlausar, speglast: „Þú ert nú enginn sólskinshestur,“ segir Halla í mjólkurbúðinni við Lillu. Inn í söguna er ofinn annar þráður, um æskuást Lillu sem allt í einu snýr aftur og gerbreytir lífi hennar. Á sínum tíma tókst henni ekki að halda í ástina, hún höndlaði ekki hamingjuna sem orðið hafði á vegi hennar: „Hamingjan í skæru litunum sem ég kunni ekki á og hrinti þeim frá mér svo litleysið mætti ríkja eitt.“ En nú hefur hún skyndilega fengið nýtt tækifæri og það er líkt og hún sjái bernsku sína og líf í nýju ljósi, „gömul sæla var um það bil að taka sig upp“. Það er engin ástæða til að rekja þennan þráð frekar en lesandinn finnur strax að hér er höfundurinn aftur á heimavelli; bókin er skrif- uð af miklu öryggi í máli og stíl. Steinunn kann þá list að hrífa les- andann með sér með stuttum, ein- földum setningum eins og þessu kaflaupphafi: „Ég hrasaði ekki um þröskuldinn á Mokka. Ég gekk beint til þín.“ En hún leyfir sér líka tilraunir með stíl, leikur sér með hástafi og leturbreytingar og kemst upp með það. Eins og stund- um áður verður textinn fyrirvara- laust að eins konar prósaljóði, hug- hrifin taka við af frásögninni. Með þessum hætti kemst lesandinn nær persónunum. Steinunni þykir vænt um persónur sínar, varnarleysi bernskunnar er henni alvörumál, líkt og varnarleysi ástarinnar. En fínlega háðskur húmor textans skapar nauðsynlega fjarlægð frá hvers konar tilfinningavellu; svo segir til dæmis þegar faðirinn deyr: „Það tekur oftast nær sama tíma að deyja endanlega og það tekur að skúra þrjú gólf, með því að líka sé farið í horn.“ Fyrirvari minn er eiginlega bara þessi: Hér er lagt upp í stærra verk, hér er sú tilfinningaólga og það drama milli persóna sem ber uppi mikla skáldsögu. En Steinunn takmarkar sig, gefur í skyn, breið- ir ekki úr frásögninni. Hún skrifar nóvellu um efni sem hefði staðið undir stærri bók. En þá reynir á sköpunarmátt lesandans. - Halldór Guðmundsson Höfundur tregans SÓLSKINSHESTUR Höfundur: Steinunn Sigurðardóttir Útgefandi: Mál og menning 2005 Niðurstaða: Lesandinn finnur strax að hér er höfundurinn aftur á heimavelli; bókin er skrifuð af miklu öryggi í máli og stíl. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? NÓVEMBER 19 20 21 22 23 24 25 Þriðjudagur ■ ■ KVIKMYNDIR 20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir nokkrar heimildarmyndir Ásgeirs Long vélfræðings og kvikmyndagerðarmanns í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Myndirnar sem sýndar verða eru Sjómannalíf, Labbað um Lónsöræfi, Virkjun og Saga um lágmynd og eru þær gerðar á árunum 1951-1970. ■ ■ TÓNLEIKAR 17.00 Bandarísku tónlistarmennirnir Drekka og Vollmar leika fyrir gesti og gangandi í Gallerí Humar eða frægð. 20.00 Árvissir kvöldlokkutónleikar Blásarakvintetts Reykjavíkur og félaga verða í Fríkirkjunni í Reykjavík. 20.00 Ellen Kristjánsdóttir syngur í Neskirkju ásamt Eyþóri Gunnarssyni og Þorsteini Einarssyni. ■ ■ FYRIRLESTRAR 12.10 Þorsteinn Vilhjálmsson vísindasagnfræðingur flytur erindi í fundaröð Sagnfræðingafélags Íslands í Þjóðminjasafni Íslands. 7.00 Nanne de Rue, arkitekt frá Hollandi, flytur fyrirlestur er nefnist: „Keep it real“ í LHÍ í Skipholti 1, stofu 113. ■ ■ FUNDIR 09.00 Íslenska óperan efnir til málþings um framtíð Íslensku óperunnar á degi tónlistarinnar. ■ ■ BÆKUR 20.00 Kristjón Kormákur Guðjónsson og Þráinn Bertelsson lesa upp á Skáldaspírukvöldi í Iðu. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.