Fréttablaðið - 27.11.2005, Qupperneq 12
27. nóvember 2005 SUNNUDAGUR12
MIKILVÆGT GAGNSÆI það er mikilvægt að vel sjáist bæði inn
og út á fjármálamarkaði. Það er auðveldara að kveikja orðróm
en að kveða hann niður. Áhyggjur af stoðum bankanna og
fjármálakerfisins eru ástæðulausar.
Taktfastur slátturinn í lestinni
er svæfandi og tíminn líður hratt
þegar maður er önnum kafinn.
Tom Jenkins situr í lestinni og
hamast við að klára síðustu kafl-
anna í stuttri greiningu sem á að
senda viðskiptavinum bankans.
Veröldin þýtur hjá utan lestar-
gluggans og tíminn líka. Hann
verður að ná að klára þetta.
Bankinn sem hann er að skoða
er íslenskur, reyndar þokkalega
stór. Útkjálkabanki sem hefur
vaxið nokkuð hratt, kannski ekki
ósvipað bankanum sem hann
vinnur hjá, Royal Bank of Scot-
land. Lestin nálgast stöðina og
hann lýkur við skýrsluna. Hefði
kannski þurft að tékka nokkur
atriði, en ákveður að setja punkt-
in aftan við og skýrslan er til.
Hann finnur til feginleika um leið
og hann bítur í neðri vörina og
það er eins og hann verði skömm-
ustulegur um stund. Síðan tekur
straumur mannfjöldans hann
með sér á næsta áfangastað.
Af litlum neista
Kveikja greiningarinnar er af
tvennum toga. Annars vegar hafði
álag á skuldabréf íslensku bank-
anna verið að hækka á eftirmark-
aði og menn vildu finna á því skýr-
ingar. Hins vegar var þrálátur
orðrómur um að KB banki hygðist
kaupa veitingakeðjunna Compass
á einn milljarð punda, eða á annað
hundrað milljarða íslenskra króna.
Það er mikið fé fyrir ekki stærri
banka og veruleg áhætta með því
bundin í einu fyrirtæki. Forsvars-
menn bankans höfðu reyndar verið
spurðir út í þennan orðróm. Þeir
gáfu lítið út á það, en náðu ekki að
eyða honum að fullu.
Þeir sem þekkja til KB banka
gátu sagt sér það sjálfir að bank-
inn stæði ekki í slíkum kaupum
einn ef einhver fótur væri þá
fyrir þessum orðrómi.
Bankinn hefur reyndar náð
góðum árangri í að fjármagna
fyrirtækjakaup. Aðferðafræð-
in hefur reyndar alltaf verið sú
sama. Sterkir stjórnendur sem
brenna fyrir verkefnið og skýr
framtíðarsýn. Standist verkefnið
kröfur bankans fjármagnar hann
kaupin og kaupir sjálfur hlut í
fyrirtækinu, sem síðan er seld-
ur í áföngum. Baugur, Bakkavör,
Össur og Pharmaco sem nú heitir
Actavis eru dæmi um slík verk-
efni sem hafa skilað sér í öflug-
um fyrirtækjum og góðum hagn-
aði fyrir bankann.
Matsfyrirtækin gefa góða einkunn
Tom Jenkins átti reyndar ekki
von á því að þessi skýrsla myndi
vekja mikla athygli, en það gerði
hún og Royal Bank of Scotland
sendi frá sér nýja skýrslu tólf
tímum eftir að forsvarsmenn KB
banka gerðu alvarlegar athuga-
semdir við þá fyrri.
Það varð talsvert havarí
þegar því var slegið upp að álag
á skuldabréf íslensku bankanna
væri að hækka á eftirmarkaði.
Bankarnir hafa sótt sér töluvert
fé á markað með útgáfu skulda-
bréfa í Evrópu.
Athyglin beindist að KB banka
og skýrsla full af rangfærslum
varð tilefni mikils uppsláttar og
umfjöllunar. Rétt áður en frétt-
irnar birtust hafði alþjóðlega
matsfyrirtækið Fitch gefið KB
banka einkunnina A og metur
horfur fyrir bankann góðar með
þeim fyrirheitum að enn sé von á
betri einkunn gangi samþætting
við breska bankann Singer og
Friedlander vel.
Miðað við þungann í umfjöll-
un hér heima vegna greining-
ar Royal Bank of Scotland og
greiningar Dresdner Kleinwort
Wasserstein mátti draga þá
ályktun að bráður vandi væri
á höndum í bankakerfinu og að
loksins væri að koma í ljós að
hin mikla útþensla bankakerf-
isins væri á sandi byggð. Þessi
mynd var dregin upp þrátt fyrir
að alþjóðleg matsfyrirtæki sem
leggja mikla vinnu í skoðun á
fjármálafyrirtækjum hefðu ekki
gert neinar athugasemdir. Einn-
ig liggur fyrir að Seðlabankinn
fylgist grannt með fjármögnun
bankanna og lætur vita ef hætta
er á að ójafnvægi skapist. Þan-
nig fengu bankarnir á sínum
tíma opið bréf frá Seðlabank-
anum vegna þess að skuldabréf
bankanna á erlendum mörkuðum
væru til of skamms tíma. Bank-
arnir brugðust við þeirri gagn-
rýni með því að lengja í skulda-
bréfum á erlendum mörkuðum.
Áhyggjur Seðlabankans lutu að
því að ef að aðstæður á mörk-
uðum versnuðu skyndilega gæti
slíkt leitt til fjármálakreppu ef
ekki væri borð fyrir báru.
Innlán á undanhaldi
Bankar fjármagna sig með
tvennum hætti. Annars vegar
eru það innlán viðskiptavina sem
bankinn lánar út með vaxtamun.
Hitt er að gefa út skuldabréf og
lána svo og fjárfesta fyrir það
fé sem þannig aflast. Forsendan
er sú sama og með innlánunum;
að hærri vextir fáist fyrir féð í
útlánum og fjárfestingum.
Bankar hafa mismunandi
stefnu hvað varðar hlutfall inn-
lána og skuldabréfa í fjármögn-
un sinni. Allt eftir eðli starfsemi
þeirra. Samanburður á milli
þeirra getur því verið villandi.
KB banki keypti danska bankann
FIH í fyrra. Sá banki er virtur
fjárfestingarbanki sem nýtur
góðs orðspors. Ekki ein dönsk
króna er í bankanum í formi inn-
lána. Bankinn fjármagnar öll
verkefni sín með útgáfu skulda-
bréfa á markaði. Svipað gildir um
BN bank í Noregi sem Íslands-
banki keypti.
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri KB banka, segir reyndar
þróunina þá að bankar fjármagni
sig í síauknum mæli með skulda-
bréfaútgáfu. Innlán séu nánast
hvergi að vaxa. Ástæðan er ein-
föld. Gamla bankabókin er ekki
lengur höfuðsparnaðarformið í
heiminum. Sparnaður fólks er í
gegnum lífeyrissjóði, verðbréfa-
sjóði og tryggingafélög sem auk
þess fjárfesta fyrir trygginga-
sjóði sína. Evrópskir bankar eru
íhaldssamari í þessum efnum en
til að mynda bandarískir. Þar kann
að liggja hluti skýringa þeirra
efasemda sem kveiktu greiningar
þessara tveggja banka.
Ýmiss konar lærdóm má draga
af atburðum vikunnar. Bankarn-
ir þurfa að standa vel að allri upp-
lýsingagjöf og bregðast við orðr-
ómi með skýrum hætti. Það er
líka ljóst að þegar einn íslenskur
banki lendir í vandræðum finna
hinir fyrir því líka. Þannig versn-
uðu kjör þeirra allra á einu bretti
á erlendum mörkuðum.
Þar sem líklegast er að þetta
tiltekna ástand sé skammvinnt og
fjárþörf þeirra ekki brýn er ólík-
legt að það verði þeim til tjóns í
þetta sinnið. haflidi@frettabladid.is
Skýrsla skrifuð í lest veldur látum
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna boðar hér
með til sjóðfélagafundar, sem haldinn verður
miðvikudaginn 28. desember nk. kl. 17 á
Grand Hóteli, Sigtúni 38, Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
Gerð grein fyrir tillögum stjórnar til breytinga á
samþykktum sjóðsins.
Sjó›félagar og lífeyrisflegar sjó›sins eiga rétt til
setu á fundinum. Tillögur stjórnar liggja frammi
á skrifstofu sjóðsins.
Reykjavík 27. nóvember 2005
Stjórn Lífeyrissjó›s verzlunarmanna
Sími: 580 4000 • Netfang: skrifstofa@live.is
Sjóðfélagafundur
nánar á visir.is Umsjón:
Ýmiss konar lærdóm má draga af atburðum vikunnar. Bankarnir þurfa að standa vel að allri
upplýsingagjöf og bregðast við orðrómi með skýrum hætti. Það er líka ljóst að þegar einn íslenskur
banki lendir í vandræðum finna hinir fyrir því líka. Þannig versnuðu kjör þeirra allra á einu bretti
á erlendum mörkuðum.
Hroðvirknislega unnin skýrsla Royal Bank of Scotland olli
talsverðu fjaðrafoki sem varð að nokkrum hænum. Íslensk-
ir bankar eru vel metnir af fagaðilum en hafa lítillega feng-
ið að kenna á því að þegar neikvæður og rangur orðrómur
fer á stjá þarf að kveða hann niður með sannfærandi hætti.